Fréttablaðið - 21.04.2009, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 21.04.2009, Blaðsíða 10
10 21. apríl 2009 ÞRIÐJUDAGUR GENF, AP Mahmoud Ahmadinejad Íransforseti sakaði Vesturlönd um að beita helför nasista gegn gyðing- um til að réttlæta að réttur væri þverbrotinn á Palestínuaröbum. Þessi ummæli urðu fulltrúum Evr- ópuríkja á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um kynþáttamisrétti, sem hófst í gær í Genf í Sviss, tilefni til að ganga af fundi í mótmæla- skyni. Bandaríkjastjórn sniðgekk ráðstefnuna alveg og Ísraelsstjórn gekk svo langt að kalla sendiherra sinn í Sviss heim vegna megnrar óánægju sinnar með að Íransfor- seta skyldi boðið að ávarpa ráð- stefnuna. Ban Ki-Moon, framkvæmda- stjóri SÞ, átti fund með Ahmadin- ejad áður en hann flutti ávarp sitt. Kvaðst Ban hafa ráðlagt Íransfor- seta að tala gætilega til að forðast að hleypa upp ráðstefnunni. Eftir ávarpið lýsti Ban vonbrigðum sínum; Ahmadinejad hefði notað ávarpið „til að ásaka, kljúfa og jafn- vel fara með hatursáróður,“ þver- öfugt við tilgang ráðstefnunnar. Í ávarpinu sagði Ahmadinejad meðal annars, að Bandaríkin og Evrópa hefðu staðið að stofnun Ísraelsríkis eftir síðari heimsstyrj- öld, en það hefði verið gert á kostn- að Palestínumanna. „Þeir gripu til hernaðaryfir- gangs til að gera heila þjóð heim- ilislausa með þjáningar gyðinga að yfirvarpi,“ sagði hann. Það varð um fjörutíu erindrek- um Frakklands, Bretlands og fleiri Evrópuríkja tilefni til að yfirgefa salinn. Áður en ráðstefnan hófst höfðu ráðamenn þessara ríkja varað við því að fulltrúar þeirra myndu yfirgefa ráðstefnuna ef hún yrði vettvangur gyðingaandúðar eða annarra sjónarmiða sem fælu í sér harkalega gagnrýni á Ísrael. Sú staða kom upp á síðustu kyn- þáttamisréttis-ráðstefnu SÞ sem fram fór í Suður-Afríku fyrir átta árum. Ahmadinejad bætti við að hann teldi Ísrael vera „grimma kynþátta- misréttis-kúgunarstjórn“. Ungir franskir gyðingar í grímu- búningum höfðu uppi hávær mót- mæli í salnum og hentu rauðum trúðsnefjum í Ahmadinejad er hann hugðist hefja mál sitt. Mót- mælendurnir sögðu síðar að þeir hefðu verið að reyna að koma því til skila „hvers konar skrípaleikur þessi ráðstefna er“. Fulltrúar Íslands gengu ekki úr salnum. audunn@frettabladid.is Í PONTU Í GENF Ahmadinejad flytur ávarp sitt á ráðstefnunni. Ban Ki-Moon, framkvæmdastjóri SÞ, hlýðir á. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Íransforseti hleypir upp ráðstefnu SÞ Mahmoud Ahmadinejad er eini þjóðhöfðinginn sem sækir ráðstefnu SÞ gegn kyn- þáttamisrétti í Genf. Hann hleypti henni upp með gagnrýni á Ísrael í ávarpi í gær. Fulltrúar Evrópuríkja gengu af fundi. Bandaríkin sniðganga ráðstefnuna alveg. Starfsendurhæfing • hvatning – þátttaka – tækifæri Morgunverðarfundur með Gail Kovacs Þriðjudaginn 28. apríl 2009 kl. 8.15 – 10.00 á Grand Hótel Reykjavík. Gail Kovacs er sérfræðingur á sviði starfsendurhæfingar og hefur starfað sem alþjóðlegur ráðgjafi á því sviði um áratuga skeið í Bretlandi, Kanada og Bandaríkjunum. Dagskrá: • Vigdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Starfsendurhæfingarsjóðs. „Hlutverk og áherslur Starfsendurhæfingarsjóðs“ • Gail Kovacs, sérfræðingur í starfsendurhæfingu og alþjóðlegur ráðgjafi. „Vocational Rehabilitation: The Capacity to Avoid Incapacity“ • Umræður með þátttöku fundarmanna Fundarstjóri er Ingibjörg Þórhallsdóttir, sérfræðingur hjá Starfsendurhæfingarsjóði. Fundurinn og veitingar eru í boði Starfsendurhæfingarsjóðs. Þátttakendur eru beðnir um að skrá þátttöku sína fyrir sunnudaginn 26. apríl nk. á www.virk.is. Einnig er hægt að skrá sig með því að senda tölvupóst á virk@virk.is – Verum virk A T A R N A

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.