Fréttablaðið - 21.04.2009, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 21.04.2009, Blaðsíða 8
8 21. apríl 2009 ÞRIÐJUDAGUR ■ Sendið umboðsmanni neytenda ábendingar eða sparnaðarráð á neytendur@ frettabladid.is DR. GUNNI neytendur@ frettabladid.is Leggðu þitt af mörkum ókeypis námskeið í náttúruvernd Námskeiðið fer fram í Ska afelli dagana 1. l 3. maí n.k. Nánari upplýsingar á umhverfisstofnun.is eða í síma 591 2000. Skipholti 50b • 105 Reykjavík Stilling hf. • Sími 520 8000 • www.stilling.is • stilling@stilling.is Demparar 1 Hvert hefur hafnfirskt til- raunavatn verið sent? 2 Hvað voru mennirnir þrír sem voru handteknir fyrir meint fíkniefnasmygl úrskurð- aðir í langt gæsluvarðhald? 3 Hvaðan fengu Íslendingar aðstoð meðan skútan var elt? SJÁ SVÖR Á SÍÐU 30 STJÓRNMÁL „Bankarnir þjónust- uðu eigendur sína fram yfir aðra viðskiptavini og sérstaklega bar mikið á þessu eftir að lausafjár- kreppan á alþjóðamörkuðum skall á og batt enda á nánast frjálst aðgengi að ódýru lánsfé. Síðasta árið fyrir bankahrunið má segja að íslensku viðskiptabankarn- ir þrír hafi engum þjónað nema sínum stærstu eigendum.“ Þessu heldur Ólafur Arnarson fram í nýrri bók sinni, Sofandi að feigðarósi, sem fjallar um banka- hrunið í október. Að mati Ólafs höfðu bankarnir leiðst of langt út í að fjárfesta og lána stærstu eigendum sínum og stór hluti áhættu þeirra var tek- inn í þágu þessara stóru eigenda. „Krosseignartengslin, sem hvað mest voru gagnrýnd af erlendum greiningardeildum, blaðamönnum og matsfyrirtækjum árið 2006, voru í raun krabbameinsæxli sem þá var byrjað að éta undirstöðu bankanna,“ segir í bókinni. Mjög er fjallað um Davíð Odds- son enda aðkoma hans að málum mikil, fyrst sem forsætisráðherra og svo sem Seðlabankastjóri. Ólafur telur Davíð hafa gert mörg mistök og undir það síðasta hafi enginn hlustað á hann. „Það tók enginn minnsta mark á honum af því að það var ekki litið á hann sem faglegan Seðlabankastjóra heldur stjórnmálamann, enda hagaði hann sér sem stjórnmála- maður,“ segir Ólafur. Gagnrýnt er í bókinni að ríkis- bankarnir voru á sínum tíma seldir mönnum sem höfðu engan bakgrunn í bankarekstri. Ábyrgð- in er sögð formanna þáverandi stjórnarflokka, Davíðs og Hall- dórs Ásgrímssonar formanns Framsóknaflokksins. Ólafur kallar ákvörðunina um þjóðnýtingu Glitnis óhæfuverk sem hrint hafi af stað „skelfi- legri“ atburðarás. „Eins og varað hafði verið við fól þjóðnýting Glitnis í sér fall bankakerfis- ins.“ Hann segir bankana vissulega hafa verið í þröngri stöðu og lík- legt megi teljast að einhver þeirra hefði farið í þrot þótt öðruvísi hefði spilast. Röð rangra ákvarð- ana sem teknar hafi verið að und- irlagi eða af Davíð Oddssyni hafi leitt til þess sem varð. Undirstöður voru fúnar að mati Ólafs, sem segir Seðlabank- ann hafi grafið undan fjármála- kerfinu með því að standa í vegi fyrir að bankarnir fengju að færa reikninga sína í evrum. Þá hafi peningastefnan á Íslandi verið glórulaus í mörg ár. Allir ráðherr- ar sem komið hafi að efnahags-, fjár- og viðskiptamálum undan- farinn tæpan áratug beri mikla ábyrgð í þeim efnum. bjorn@frettabladid.is Bankarnir þjónuðu bara eigendum sínum Síðasta árið fyrir hrun þjónuðu bankarnir bara stærstu eigendum sínum. Þetta er fullyrt í nýrri bók um bankahrunið í október. Höfundur segir engan hafa litið á Davíð Oddsson sem faglegan Seðlabankastjóra heldur stjórnmálamann. Verð á prenthylkjum í venjulega heimilisprentara er satt að segja hálfgerð bilun. Yrsu blöskraði verð- lagið þegar hún þurfti að endurnýja hylki í Dell V105 bleksprautuprent- ara sem hún keypti í fyrra á 13.390 kr. Sami prentari kostar 16.850 kr. í dag. „Ég fór í EJS á Grensásvegi. Það þarf tvö hylki í þennan prentara. Það svarta kostaði 6.290 kr. og litahylkið kostar 5.250 kr! Þvílíkt og annað eins. Ég er orðlaus.“ Ekki er gefið upp hver nýtingin er í þessu tilfelli, en fólk ætti að kannast við að prentarar fara snemma að pípa um að hylkin séu að klárast. Þegar fólk kaupir sér nýjan prentara ætti það því að taka verð prenthylkja inn í myndina. Í ESJ fæst einnig hinn stórvirki Xerox Phaser laser-prentari á 39.900 kr. Í hann þarf fjögur hylki og eitt- hvað held ég að Yrsa myndi segja ef hún þyrfti að endurnýja hylkin þau. Þrjú þeirra eru á 23.300 kr. stykkið, og það fjórða kostar 27.390 kr., sem sé tæplega hundrað þúsund krónur samtals, eða jafn mikið og tveir og hálfur prentari. Þess má geta að með nýjum prentara fylgja hylki sem eru „örlítið endingarverri“ en þessi dýru, sam- kvæmt starfsmanni. Ýmislegt má auðvitað gera til að spara prentsvertuna. Ein leið til þess er að nota leturtegund sem er sérstaklega hönnuð til að spara blek. Þetta letur heitir Ecofont og má nálgast frítt á www.ecofont.eu. Neytendur: Prenthylki eru ekki gefins Ókeypis letur sparar prentsvertu ECOFONT MENNING Katrín Jakobsdótt- ir menntamálaráðherra segir að eðlilegt hefði verið að bæjarstjórn Akraness leitaði samráðs við ráðu- neytið áður en rekstur byggða- safnsins á Akranesi væri færð- ur í hendur einkaaðila. „Við erum ekki formlegur rekstraraðili, en það kemur fjármagn til reksturs- ins frá okkur. Því hefði mér þótt eðlilegra að þeir hefðu haft sam- ráð við okkur.“ Um 36 prósent af heildarveltu safnsins 2007 komu frá ríkinu. Líkt og Fréttablaðið greindi frá í gær hyggur bæjarstjórn Akraness á samninga við fyrirtækið Vætti hf. um að það taki að sér rekst- ur byggðasafnsins að Görðum og listaseturs að Kirkjuhvoli. Safnaráð hefur eftirlit með söfn- um sem njóta ríkisstyrkja. Rakel Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Safnaráðs, segir að eðlilegt sé að ráðið veiti umsögn um jafnrót- tæka breytingu á starfseminni og raun beri vitni. Ítrekað hafi þess verið óskað en umsagnar hafi ekki verið leitað. Í bréfi sem ráðið sendi bæjarstjóranum kemur fram að umsögn sé væntanleg 30. apríl. Gísli S. Einarsson bæjarstjóri segir málið verða tekið fyrir á fundi bæjarstjórnar í dag. Þá minnir Rakel á að staða byggðasafns sé undir viðurkenn- ingu þjóðminjavarðar komin. Grundvallarbreyting á starfsemi geti breytt stöðu safna. Því sé eðli- legt að þjóðminjavörður sé hafður með í ráðum. - kóp Fyrirhugaður einkarekstur á byggðasafninu að Görðum á Akranesi: Ráðherra átelur samráðsleysi AKRANES Bæjarstjórn hyggur á samning við einkafyrirtæki um rekstur byggða- safns og listaseturs. ÍRAN, AP Dómsmálaráðherra Írans hefur fyrirskipað nýja rannsókn á máli bandarísku blaðakonunnar Roxana Saberi, sem í síðustu viku var dæmd af undirrétti í Teheran í átta ára fangelsi fyrir njósnir. Þetta ákvað ráðherrann eftir að Mahmoud Ahmadinejad Írans- forseti bað ríkissaksóknarann að sjá til þess að Saberi fengi alla þá málsvörn í áfrýjuninni sem íranskt réttarkerfi byði upp á. Barack Obama Bandaríkjafor- seti sagði á sunnudag að hann hefði „alvarlegar áhyggjur“ af velferð Saberi; hann væri þess fullviss að hún hefði engin tengsl við njósnastarfsemi. - aa Bandarísk blaðakona í Íran: Heitið fullri málsvörn ÓLAFUR ARNARSON „Það tók enginn minnsta mark á honum (Davíð Oddssyni) af því að það var ekki litið á hann sem faglegan Seðlabankastjóra held- ur stjórnmálamann.“ Ólafur starfaði síðast hjá Landic Property en vann áður hjá fjárfestingarbönkunum Dresdner Kleinwort Benson og Lehman Brothers. Þar áður var hann framkvæmda- stjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins og aðstoðarmaður Ólafs G. Einarssonar í mennta- málaráðherratíð hans. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.