Morgunblaðið - 17.10.2008, Side 4

Morgunblaðið - 17.10.2008, Side 4
Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu svanhvit@mbl.is S ýning Hildar Bjarkar Yeoman fata- hönnuðar á tískuteikningum í Kronkron hefur vakið mikla at- hygli en hún stendur til 21. októ- ber. Svo mikla raunar að umfjöll- un um Hildi og teikningar hennar mun birtast í næsta tölublaði af portúgalska Vogue. „Ég hef mjög gaman af að teikna tískuteikningar og sem merki um það þá kenni ég tískuteiknun í Listaháskóla Íslands. Tískuteiknun á rosalega vel við mig. Ég nota ýmsa tækni við teikningarnar, til dæmis teikna ég á pappír, á efni og svo framvegis. Ég hef gaman af að blanda mismunandi að- ferðum saman, að hafa allt opið og geta skil- að þessu á alla mögulega vegu. Ég er mjög hrifin af gömlu handverki og leitast við að finna nýjar leiðir til að nota það, hvort sem það er útsaumur, hekl eða eitthvað annað. Gamla handverkið kemur líka berlega í ljós í mörgum tískuteikninga minna þar sem ég teikna oft á efni og sauma út í myndirnar.“ Vann hjá Jonathan Saunders Hildur útskrifaðist árið 2006 frá Listahá- skóla Íslands og hefur unnið að ýmsum verk- efnum síðan. „Í hálft ár var ég í London þar sem ég vann hjá Jonathan Saunders sem er mjög þekktur í tískuheiminum. Það var ekki erfitt að komast að hjá honum. Ég fletti hon- um upp á netinu og fann út hvar vinnustað- urinn hans var, mætti þangað með möppu og hann réð mig á staðnum. Þetta var góð reynsla og umfram það þá var þetta marg- tæk reynsla. Jonathan Saunders prentar flest sín efni sjálfur og er með heilt lið sem sér um það, svo er annar hópur sem sér um að sauma og svo framvegis,“ segir Hildur sem tók nýverið þátt í samkeppni sem breska undirfatafyrirtækið Lascivious stóð fyrir. „Fyrirtækið var að gefa út spil og á þeim áttu að vera teikningar eftir nokkra listamenn. Ég var ein af listamönnunum sem voru valdir og mínar myndir munu því prýða stokkana. Það var mjög skemmtilegt að taka þátt í keppninni.“ Ekkert nema gaman Þrátt fyrir að vera að miklu leyti í tísku- teikningunum hefur Hildur líka verið að hanna enda segir hún fatahönnun og tísku- teiknun samtengt efni. Sjálf teiknar Hildur allt sem hún hannar. „Ég hallast ekki að annaðhvort tískuteiknun eða fatahönnun. Það er miklu skemmtilegra að vera með allt opið og geta gert það sem mann langar til. Inn- blástur minn fæ ég úr öllu mögulegu. Allt sem er í kringum mig hefur einhver áhrif á mig; tíðarandinn, tónlist, kvikmyndir og þjóð- félagið sjálft. Ég er alltaf vakandi fyrir um- hverfinu og ég held að það sé þannig hjá flestum hönnuðum.“ Aðspurð hvort Hildur ætlar sér að vinna á Íslandi í framtíðinni segist hún ekki vera viss. „Ef ég verð að vinna sem tískuteiknari þá skiptir ekki máli hvar ég er. Satt að segja væri ég til í að hafa það opið hvar ég verð í framtíðinni, það væri gott að þurfa ekki að binda sig við einn sérstakan stað,“ segir Hildur sem viðurkennir að það geti verið erf- itt að framfleyta sér sem ungur hönnuður. „Þess vegna er nauðsynlegt að vera snið- ugur, sérstaklega hérna heima. Það er ómögulegt að loka á einhver tækifæri heldur er best að hafa allt opið svo hægt sé að taka ýmis verkefni að sér. Það er líka bæði skemmtilegast og fjölbreyttast því þá kynnist maður alls konar fólki og það er náttúrlega ekkert nema gaman.“ Er mjög vakandi fyrir umhverfinu Tískuteikning Gyðja í síðkjól frá Gaspard Yurkievich. Fleiri verk eftir Hildi má sjá á síðunni hilduryeoman.com. Vatnagyðja Gyðjan er með höfuðskraut frá Soniu Rykiel sem er einn af uppáhalds- hönnuðum Hildar. Thelma-design Mynd sem Hildur gerði fyrir Thelmu-design en Hildur sér um allar tískuteikningar hennar. Leda og svanurinn Mynd sem Hildur gerði með blandaðri tækni. Myndin er teiknuð á efni og svo er saumað út í hana. Morgunblaðið/Ómar Hugmyndarík Hildur Björk Yeoman ásamt bleikri, heklaðri púðluhundatösku sem hún hann- aði. Töskurnar ásamt fleira af hönnun Hildar Bjarkar fæst í Kronkron. 4|Morgunblaðið Það er um að gera að endurnýta föt og upp á síð- kastið hafa víða verið haldnir fatamarkaðir þar sem ýmiss konar fatnaður gengur kaupum og sölum. Í fínni kantinum Í Harvey Nichols-verslunum á Englandi, sem þykja í fínni kantinum, býðst viðskiptavinum að koma með og gefa vandaðan fatnað í október sem síðan verður gefinn áfram til góðgerð- arstofnunarinnar Dress for Success. Í staðinn fá viðskiptavinirnir úttektarnótu sem þeir geta eytt að vild í versluninni. Verslunin hefur því hvatt konur víða um landið til að draga fram kjóla, skyrtur, skó og annað sem safnar bara ryki inni í skáp. Rekið af sjálfboðaliðum Góðgerðarstofnunin Dress For Success er rekin af sjálfboðaliðum og vinnur að því að veita konum sem erfitt hafa átt með að koma undir sig fótum fjárhagslegt sjálfstæði. Sjálfboðaliðar sjá um að styðja við konurnar, aðstoða þær við að finna sér störf og sjá þeim fyrir fatnaði til að þær geti komið vel fyrir í atvinnuviðtölum. maria@mbl.is Að gefa og nýta Vandað Harvey Nichols lætur til sín taka. Gildir út október Snyrtistofan Dögg - Smiðjuvegi 4 (Græn gata) - 200 Kópavogur Sama húsnæði og Hársmiðjan - S. 55 22 333 - kristin@snyrtistofandogg.is - www.dögg.is Litun og plokkun augnhár og brúnir - 2.700 kr. Fótsnyrting - 4.500 kr. á Snyrtistofunni Dögg eru seldar Guinot meðferðir og vörur Tímapantanir í síma 55 22 333 Tilboð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.