Morgunblaðið - 17.10.2008, Qupperneq 18
Klassík Klassískur
rauður litur sem all-
ar konur geta verið
með. Ljósasti rauði
liturinn og sömu-
leiðis sá bjartasti
af þessum fjórum.
China Red úr
Make Up Store.
Dökk húð Bleiktóna
rauður varalitur
sem getur gert
tennurnar hvítari.
Liturinn hentar
mjög vel þegar aug-
un eru máluð með
svörtum augn-
blýanti og eins kon-
um með dekkri
húð. Pout frá Make
Up Store.
Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu
svanhvit@mbl.is
K
ynþokkafullar og lokkandi rauðar varir
eru í tísku í vetur en mörgum konum
finnst sem þær geti ekki verið með rauð-
an varalit. Margrét R. Jónasardóttir,
förðunarmeistari í Make up Store, segir
að þær sem vilji vera með rauðan varalit geti það.
„Rauður varalitur fer öllum konum sem vilja nota
hann, það þarf bara að finna rétta rauða litinn. Oft er
það þannig að þær konur sem telja sig ekki geta notað
rauðan lit eru ekki vanar rauðum varalit. Svo fer þetta
eftir því hvort viðkomandi kona kann við sig með litinn
því til að bera hann er nauðsynlegt að kunna að meta
hann,“ segir Margrét sem lumar á nokkrum góðum
ráðum fyrir þær konur sem ætla að kaupa sér rauðan
varalit. „Rauður varalitur með appelsínugulum tóni
hentar öllum konum. Aftur á móti hentar rauður vara-
litur sem er blátóna betur konum með dekkri húð. Þær
konur sem vilja vera með hvítari tennur geta valið
rauðan lit sem er bleiktóna eða með appelsínugulum
tóni. Rauður varalitur sem er blátóna getur aftur á
móti dregið fram gráan lit í tönnunum.“
Gott að nota grunn
Margrét segir að það sé ákveðinn rauður litur vin-
sæll í vetur, nokkurs konar brúntóna rauður. „Í vetur
er best að smyrja ekki varalitnum á og hafa hann
þykkan og kremaðan. Núna er smart að nota pensil
eða setja puttann í litinn og bera hann létt á. Þegar
rauður varalitur er notaður er alltaf gott að byrja á að
nota grunn af því að það er vandmeðfarið að vera með
rauðan varalit. Fyrst og fremst er því mikilvægt að
bera á góðan grunn, síðan að nota varabursta og byrja
á efri vörinni því ef byrjað er á neðri vörinni getur hún
orðið þyngri. Þess vegna er fallegra að byrja á bog-
anum, fylla efri vörina út og taka síðan neðri vörina.
Varirnar eru því formaðar með pensli og síðan er gott
að taka puttann og dempa yfir varirnar þannig að lit-
urinn sé ekki smurður á.“
Mild augu og flottar varir
Margrét segir að í vetur sé mikilvægt að varirnar líti
ekki út eins og það sé nýbúið að setja varalit á þær.
„Þá notum við Lip & cheek tint til að fá svona óreglu-
legt útlit en það er borið létt á varirnar. Þá verða var-
irnar léttar og gegnsæjar en ekki alveg fullkomnar. Í
dag er ekki í tísku að setja varablýant með rauðum
varalit, það minnir heldur mikið á áttunda áratuginn.
Það er líka mjög smart að velja fallegan rauðan varalit
sem settur er á með bursta og svo er hægt að bíta í
eldhúsbréf þannig að liturinn verði ennþá mildari,“
segir Margrét sem finnst fallegra að hafa augnmáln-
inguna í lágmarki þegar varirnar eru rauðar. „Mér
finnst fallegra þegar áhersla er lögð á að hafa fallega
línu með augnblýanti, gera augnhárin falleg og svo
mögulega dusta yfir einhverjum lit en ekki mikið. Var-
irnar verða svo flottar þegar augun eru mild.“
Kynþokkafullar rauðar varir
Fyrir
ljósa húð
Þessi litur hefur
verið gríðarlega
vinsæll í haust og
vetur enda brún-
tóna rauður litur.
Liturinn hentar
þeim konum sér-
staklega vel sem
eru með ljósa húð
og rauðhærðar.
Vamp frá
Make Up
Store.
Vinsæll Það hefur
verið mikið selt af
þessum lit enda
er ákveðinn
glamúr í litnum.
Mjög alhliða litur
en samt sem áður
dökkur. Devil frá
Make Up Store.
18|Morgunblaðið
Það skiptir máli að geyma snyrti-
vörurnar sínar á góðum stað. Til
eru sérstök box undir snyrtivörur
sem svipar til veiðiboxa, með mis-
munandi hólfum sem henta öllum
tegundum snyrtivara og tóla.
Gjafa- og skókassar geta líka nýst
vel og þá jafnvel með litlum boxum
ofan í þannig að hægt sé að skipu-
leggja vörurnar betur. Það er mik-
ilvægt að hafa staðinn hreinan sem
snyrtivörurnar eru geymdar á og
gæta þess að ekki komist að þeim of
mikill raki þar sem það getur eyði-
lagt eða dregið úr endingu þeirra.
Baðherbergið er því ekki endilega
besti staðurinn til að geyma snyrti-
vörurnar! maria@mbl.is
Skipulag
á snyrti-
vörunum
Það er að ýmsu að hugafyrir þær konur sem
vilja að varaliturinn líti full-
komlega út og margt sem
hægt er að gera. Hér eru
nokkrar vörur sem geta full-
komnað verkið.
Vel lagaðar varir
Flott allan daginn Krem sem
fær bæði varalitinn og auga-
brýrnar til að haldast allan
daginn. Góður grunnur fyrir
rauðan varalit. Stay in Shape
frá Make Up Store.
Ljómandi gel Gel
sem hægt er að
nota á augu, kinn-
ar og varir og
áferðin er glitr-
andi og falleg. Lip
& cheek tint frá
Make Up Store.
Penslar Það er mjög
gott að nota pensla til að
bera varalitinn á. Áferðin verður
fallegri auk þess sem auðveldara er að
gera útlínurnar vel. Make Up Store.
Rauður varalitur hentar öllum Margrét R. Jónasardóttir, förðunarfræðingur í Make Up Store,
segir að allar konur sem vilji geti notað rauðan varalit. Það þarf einungis að finna rétta litinn.
M
or
gu
nb
la
ði
ð/
Á
rn
i S
æ
be
rg
!"