Morgunblaðið - 17.10.2008, Blaðsíða 21
Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu
svanhvit@mbl.is
Þ
að er jafn mikilvægt fyrir
karlmenn að hugsa vel um
húðina á sér og það er fyr-
ir konur þótt það sé ekki
eins viðurkennt á meðal
karlmanna. Sigrún Konráðsdóttir,
snyrtifræðingur á snyrtistofunni Þú
um þig, segir að eitt það allra versta
sem karlmenn geta gert sé að
skvetta rakspíra framan í sig eftir
rakstur. „Rakstur ertir húðina og að
nota rakspíra þannig er eins og að
skvetta spritti framan í sig. Það er
miklu betra að nota krem sem er
hugsað eftir rakstur því þau eru
rakagefandi. Það er mikilvægt fyrir
karlmenn að nota góð krem reglu-
lega því það er mikið álag á húðina
að skera hana með hníf á hverjum
degi. Karlmenn þurfa líka að velta
fyrir sér hvernig þeir raka sig, hvort
það sé með hárvextinum eða á móti
sem má alls ekki því þá er hætta á
inngrónum hárum og meiri bólum.
Það er nauðsynlegt að nota bæði
sápu til að mýkja húðina áður en
rakað er og krem á eftir til að mýkja
húðina.“
Karlmenn í snyrtingu
Sigrún segir að auk þess sé mik-
ilvægt fyrir karlmenn að hreinsa
húðina á hverjum degi og nota krem
á morgnana. „Þetta er sérstaklega
mikilvægt fyrir karlmenn sem vinna
utandyra. Karlmenn hugsa mun bet-
ur um húðina á sér nú en fyrir
nokkrum árum. Áður leituðu ein-
ungis þeir sem voru með mjög
slæma húð til læknis eða fengu
snyrtingu en alls ekki þeir sem voru
með eðlilega húð. Núna er það þann-
ig að þegar karlmenn koma einu
sinni í húðhreinsun eða andlitsbað
þá finna þeir svo mikinn mun að þeir
koma aftur og byrja að nota krem
þegar þeir finna muninn,“ segir Sig-
rún og bætir við að það hafi aukist
verulega að karlmenn komi í snyrt-
ingu. „Þeir sem starfa við tölvur, af-
greiðslustörf og annað koma gjarn-
an í handsnyrtingu. Svo er mjög
mikið um að karlmenn komi í fót-
snyrtingu og ég hef heyrt að þeim
finnist sem þeir svífi eftir á.“
Ilmandi krem
Sigrún segir að þótt karlmenn séu
ekkert sérstaklega duglegir að nota
krem og húðvörur þá hafa þeir bætt
sig verulega undanfarin ár. „Núorð-
ið er til svo mikið af vörum fyrir
karlmenn og þetta er orðið miklu að-
gengilegra. Áður fyrr stílaði þessi
markaður einungis inn á konur og
kremin voru í gullkrukkum og bleik-
um túpum. Nú eru til vörur sem eru
stílaðar inn á karlmenn og með karl-
mannlegum ilmi. Karlmönnum
finnst því ekkert endilega sem þeir
séu með krem, heldur líður þeim
eins og þeir séu með rakspíra á sér.“
Karlmenn þurfa líka
að huga að húðinni
Unglegur Krem sem var hannað
til að taka á merkjum um öldrun
og bæta gæði húðarinnar. Skin
Minerals Regenerating cream
frá Giorgio Armani.
Endurnærandi Rakagef-
andi raksturskrem sem
nærir húðina til að vernda
hana fyrir ertingu sem
fylgir rakstrinum. Skin
Minerals Shaving cream
frá Giorgio Armani.
Dagleg notkun Áhrifa-
ríkt gel til að þvo andlit
daglega. Skin Shine Cont-
rol face wash frá Boss.
Fyrir þreytta húð Styrkj-
andi gel svo húðin sé heil-
brigðari á að líta. Skin
Minerals Fortifying serum
frá Giorgio Armani.
Heilbrigð húð Rakagel
sem gott er að nota
bæði kvölds og morgna
og kemur í veg fyrir að
húðin glansi. Skin
Shine Control Moisture
gel frá Boss.
M
or
gu
nb
la
ði
ð/
V
al
dí
s
T
ho
r
Morgunblaðið |21
Um þessar mundir eru flestir að
reyna að spara og vilja því ekki
eyða fúlgum fjár í nýjar flíkur. Því
er ekki úr vegi að rifja upp orð
Susie Faux, eiganda verslunar-
innar Wardrobe í London, en hún
bjó til frasann „Capsule War-
drobe“ sem mætti þýða sem „þétta
fataskápinn“. Susie telur að konur
þurfi færri flíkur en betri. Hún
segir að kona þurfi aðeins að eiga
tvennar buxur en þær verði að
passa fullkomlega og vera úr góðu
efni. Eins segir Susie að hver kona
þurfi að eiga fallegan kjól eða pils
fyrir fínni tækifæri, fínan jakka
sem passar vel, kápu og fallega
prjónaða peysu. Það má þó ekki
gleyma skófatnaðinum og Susie
telur að hverri konu nægi ein-
ungis tvö pör af skóm. Eitt par af
flatbotna skóm og annað af skóm
með örlitlum hæl. Veskin eiga
sömuleiðis að vera tvö, eitt stærra
hversdagsveski og annað fínna
veski til að fara með í boð. Und-
irstaða þétta fataskápsins er sú að
flíkurnar séu ekki endilega í tísku
heldur verði hægt að nota þær ár
eftir ár. svanhvit@mbl.is
Færri flíkur, meiri gæði
Tómlegt? Það þurfa
ekki að vera margar
flíkur í fataskápnum en
þær þurfa að passa vel
og vera í góðum gæðum.
Photos
Ákveðið hefur verið að leggja gríð-
arlega fjármuni í að gefa Oxford-
stræti, helstu verslunargötu Lond-
on, andlitslyftingu. Hugmyndin er
sprottin frá Judith Mayhew-Jonas,
sem nýlega var skipuð stjórn-
arformaður New West End-
fyrirtækisins sem sér um fram-
kvæmdir á svæðinu. Verða þær
byggðar á uppbyggingu í New
York, meðal annars í kringum Tim-
es Square. Í framtíðinni ætti því að
verða enn skemmtilegra en áður að
versla á Oxford-stræti í nýju og end-
urbættu umhverfi. maria@mbl.is
Endurbætur
á Oxford-
stræti
Örtröð Oxford Stræti er afar vin-
sælt hjá ferðamönnum í London.
KÁPURNAR KOMNAR
Laugavegi 63 • S: 551 4422
SKOÐIÐ SÝNISHORN Á LAXDAL.IS