Morgunblaðið - 22.10.2008, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 22.10.2008, Qupperneq 11
Fréttir 11INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 2008 Í SÍÐUSTU viku var opnuð vef- lausn sem birtir fjölbreytt gögn um náttúrufar og auðlindir Íslands á síðunni www.natturuvefsja.is. Náttúruvefsjáin er afrakstur samstarfs sem stjórnað hefur verið af Vatnamælingum með aðstoð frá Orkustofnun, Gagarín og fleiri að- ilum. Markmiðið með náttúruvefsjánni er að koma niðurstöðum úr rann- sóknum einstakra stofnanna á framfæri á sameiginlegum vett- vangi og í almenna notkun í leik og starfi. Hún nýtist jafnt stjórnsýslu, sérfræðingum, almenningi og fyr- irtækjum s.s. vegna búsetubreyt- inga, húsbygginga, í tengslum við ferðalög, afþreyingu og útivist. Fjölbreytt gögn um náttúrufar Eftir Gunnlaug Árnason Stykkishólmur | Karlakór Reykja- víkur mætti til Stykkishólms um helgina og hélt tónleika í Stykk- ishólmskirkju til styrktar org- elkaupum. Stjórnandi kórsins, Friðrik S. Kristinsson, er uppalinn í Hólminum og fékk hann félaga sína til að skreppa vestur til tón- leikahalds. Kórinn er með fjölmennustu kór- um landsins og voru söngmenn hans yfir 70 talsins. Á tónleikunum komu einnig fram Karlakórinn Kári sem skipaður er söngmönnum úr Stykkishólmi og Grundarfirði og svo stúlknakór Grunnskólans í Stykkishólmi. Tónleikarnir tókust afar vel. Enn og aftur sannaðist hversu Stykkishólmskirkja er gott tón- leikahús. Tónleikagestir þökkuðu söng- fólkinu vel og innilega að lokum fyrir góðan söng og skemmtilega samverustund. Á tónleikunum var kynntur nýr geisladiskur sem orgelsjóður gefur út. Um er að ræða upptöku af minningartónleikum um Sigrúnu Jónsdóttur sem fram fór í Stykk- ishólmskirkju fyrir tveimur árum. Sigrún starfaði sem organisti og kórstjóri í Stykkishólmskirkju við miklar vinsældir en hún lést aðeins 36 ára. Stykkishólmskirkja var vígð árið 1990. Þá leyfði fjárhagur kirkj- unnar ekki að fjárfesta í nýju org- eli. Notast hefur verið við orgelið úr gömlu kirkjunni. Væntingar hafa löngum verið um kaup á org- eli við hæfi. Fyrr á árinu skrifaði svo sóknarnefnd undir samning um smíði á nýju orgeli fyrir kirkjuna. Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Karlahljómar Karlakór Reykjavíkur og Karlakórinn Kári héldu tónleika í Stykkishólmskirkju. Tónleikarnir þóttu takast afar vel. Karlakór Reykjavíkur léttir undir með Hólmurum UM 160 manns sóttu stuðnings- og upplýsingarfund fyrir erlenda starfsmenn á Landspítalanum, en fundurinn var haldinn vegna þrenginga í fjármálum á Íslandi. „Starfsmenninir hafa verið kvíðafullir og þeim hefur fundist vanta upplýsingar frá samfélaginu. Þeir lýstu því mikilli ánægju með það framtak spítalans að standa fyrir fundunum og töldu þá gagn- lega. Margt hafi skýrst og mörgum spurningum verið svarað sem hefðu vaknað hjá þeim í þeim óróa sem einkennt hefur íslenskt samfélag undanfarið,“ segir í fréttatilkynn- ingu. Fundir voru haldnir bæði á pólsku og ensku, en erlendir starfs- menn á Landspítalanum eru alls á fjórða hundrað. Starfsmenninir eru uggandi yfir stöðu sinni og störfum, launum og réttindamálum. LSH Erlendir starfsmenn spurðu m.a. um nýja stöðu á vinnumarkaði. Hafa áhyggj- ur af stöðunni ÁRLEGUR Slagdagur félagsins Heilaheilla verður hald- inn á laugardaginn í Kringlunni, Smáralind og Gler- ártorgi á Akureyri. Frá klukkan 13 til 16 verður almenn- ingi boðið upp á ókeypis læknisfræðilega athugun sem tengist slagi. „Á Slagdeginum í fyrra greindist einn viðskiptavinur í Kringlunni með einkenni heilaslags og hann var strax sendur á bráðamóttöku Landspítalans. Mér skilst einnig að í mörgum tilvikum hafi einstaklingum verið ráðlagt að leita til heimilislæknis vegna of hás blóðþrýstings eða einhverra streituvaldandi þátta,“ segir Þórir Stein- grímsson, formaður Heilaheilla. Á hverju ári fá um það bil 700 manns á Íslandi heila- slag eða um tveir á dag. ,,Við viljum koma fræðslu um sjúkdóminn á fram- færi og með hvaða hætti er hægt að minnka líkurnar á honum,“ leggur Þórir áherslu á. Árlegur Slagdagur Heilaheilla Þórir Steingrímsson Í DAG, miðvikudag, opnar Fé- lagsþjónustan í Kópavogi nýtt frí- stundaheimili fyrir fatlaða nem- endur í 5.-10. bekk í grunnskólum Kópavogs. Frístundaheimilið er til húsa í Smáraskóla við Dalsmára. Í vetrarfríum og á starfsdögum er opið kl. 8:00-17:00. Markmið frí- stundaheimilisins er að veita þeim nemendum sem þar dvelja öruggt athvarf eftir skóla þar sem boðið er upp á skipulagðar tómstundir við allra hæfi, útivist og slökun. Um er að ræða heilsárs, skóla- tengt tilboð þar sem nemendum gefst tækifæri til að dvelja við leik og störf. Opna nýtt frí- stundaheimili STUTT Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „TILSKIPUNIN, sem lögin um Tryggingasjóð byggist á, kveður ekki á um ábyrgð ríkisins, ef hún er framkvæmd réttilega,“ segir Stefán Már Stefánsson prófessor. Á hádegisverðarfundi Orators í gær flutti Stefán Már Stefánsson er- indi um neyðarlögin og EES- samninginn, skyldu ríkisins vegna EES-samningsins og þar á meðal skyldu ríkisins til efnda á inneignum bankanna erlendis. Í umræðum kom fram að svo virt- ist sem tilskipunin væri þunga- miðjan í málinu, þótt hún hefði ekki verið mikið í umræðunni. Stefán Már sagði að tilskipunin skipti mjög miklu máli, því ef hún hefði ekki verið lögleidd eða fram- kvæmd réttilega gæti ríkið borið skaðabótaábyrgð. Í lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta (lög 98/1999) segir m.a.: „Nú hrökkva eignir viðkomandi deildar sjóðsins ekki til þess að greiða heildar- fjárhæð tryggðra innstæðna, verð- bréfa og reiðufjár í hlutaðeigandi að- ildarfyrirtækjum og skal þá greiðslu úr hvorri deild skipt þannig milli kröfuhafa að krafa hvers þeirra allt að 1,7 millj. kr. er bætt að fullu en allt sem umfram er þessa fjárhæð skal bætt hlutfallslega jafnt eftir því sem eignir hvorrar deildar hrökkva til. Fjárhæð þessi er bundin við gengi evru (EUR) miðað við kaup- gengi hennar 5. janúar 1999. Sjóð- urinn verður ekki síðar krafinn um frekari greiðslu þótt tjón kröfuhafa hafi ekki verið bætt að fullu. Hrökkvi eignir sjóðsins ekki til og stjórn hans telur til þess brýna ástæðu er henni heimilt að taka lán til að greiða kröfuhöfum.“ Spurt var hvort þessi heimild skipti ekki máli við ríkjandi aðstæður. Heimildarákvæði Stefán Már sagði að hann liti á þetta sem heimildarákvæði. Eðlilegt væri að sjóðurinn tæki lán til að brúa lítið bil, en þetta tæki ekki á banka- hruninu. Hins vegar sagðist hann telja að það væri grundvöllur fyrir bótaábyrgð ríkisins, ef ekki hefði verið greitt í sjóðinn samkvæmt því kerfi sem íslensk lög segðu fyrir um. Morgunblaðið/Ómar Fjölmenni Fullt var út úr dyrum hjá Stefáni Má Stefánssyni í stofu 101 í Lögbergi við Háskóla Íslands. Ekki kveðið á um ábyrgð ríkisins Í HNOTSKURN » Tryggingarsjóður ersjálfseignarstofnun. » Í lögum um innstæðu-tryggingar og trygg- ingakerfi fyrir fjárfesta segir að heildareign verðbréfadeild- ar Tryggingarsjóðsins skuli að lágmarki nema 100 milljónum króna. Heildareign inn- stæðudeildar skal að lágmarki nema 1% af meðaltali tryggðra innstæðna á næst- liðnu ári. Tilskipunin sem lögin um Trygginga- sjóð byggist á þungamiðjan í málinu Bjóðum 10% kynningarafslátt og kaupauka Kringlan, sími 533 4533 Smáralind, sími 554 3960 LA PRAIRIE HELPS YOU FIGHT AGING - AND WIN Fimmtudaginn 23. okt. Hygea Kringlunni Föstudaginn 24. okt. Hygea Smáralind Velkomin á La Prairie kynningar eftirtalda daga, milli kl. 13-18... Spennandi nýjunar!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.