Morgunblaðið - 22.10.2008, Síða 13
Fréttir 13INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 2008
STANGVEIÐI
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
GJÖFULASTA laxveiðitímabili í
manna minnum er að ljúka. Þótt
veiði í ám með náttúrulega laxa-
stofna hafi lokið í september, hefur
verið kastað fyrir laxa allt til þessa
dags í ánum sem hafgönguseiðum
er sleppt í, eins og í Rangárnar og
Tungufljót í Biskupstungum.
Blaðamaður heyrði í Orra Vigfús-
syni, formanni NASF, Verndar-
sjóðs villtra laxastofna, en við lok
vertíðarinnar hefur hann iðulega lit-
ið yfir veginn. Nú er hann að vonum
lukkulegur með veiðina sem hann
segir verða um 82.000 laxa.
„Árið 2005 var metveiði, en þá var
heildarveiðin 55.000 laxar,“ segir
Orri. „Gamla metið var sett árið
1978 en þá var nánast ekkert um
seiðasleppingar í ár og veiddum
fiskum sjaldnast sleppt frjálsum. Á
seinni árum hefur orðið algengara
að „veiða og sleppa“ og svo eru svo-
kallaðar hafbeitarár farnar að gefa
gríðarlega veiði.“
Orri segir tölfræðinga NASF
hafa tekið saman veiðitölur úr ám
víða um land og ef skoðaðar eru ár
sem byggja á seiðasleppingum, þá
telja þeir að í þeim hafi veiðst um
28.000 laxar. Í öðrum ám hafi veiðst
um 52.000 laxar – sem er svipuð
veiði í þeim og árið 1978. Ef hafbeit-
arár eru undanskildar hefur það
aukist verulega á þessum tíma að
löxum sé sleppt, eða úr 8% í 25%.
„Óvenju margir stórlaxar veidd-
ust á Íslandi í sumar, og einnig í ná-
grannalöndunum, en þeir hafa nú
verið friðaðir fyrir úthafsveiðum í
15 ár. Ýmislegt bendir til þess að
ástandið í úthöfunum sé gott.
Laxveiðiárnar á Norðurlandi
koma tiltölulega vel út, en suðvest-
urhornið, Borgarfjörður og Mýrarn-
ar gáfu afar góða veiði.
Hafbeitarárnar virðast vera að
skila hærra og hærra endurkomu-
hlutfalli úr hafi. Jafnvel er rætt um
5% og meira í sumum stöðvunum.
Hafnará er talin hafa skilað 7,5%
endurkomu laxa í sumar og haust.“
Hafa fjármagnað netauppkaup
Orri fylgist grannt með því sem
gerist í laxveiðinni í Nágrannalönd-
unum og hann segir að í Noregi hafi
einnig verið afar gott stórlaxaár, en
talsvert minna af smálaxi.
„Í ánni Gaula, sem rennur í Þránd-
heimsfjörð, var næsta daglegt brauð
að 35 punda lax eða stærri væri dreg-
inn á land. Í Altaánni voru veiddir 15
laxar yfir 50 pundum og í nágrenni
hennar veiddist 82,5 punda lax í net!“
Orri segir að þrátt fyrir afar óhag-
stætt efnahagsástand hafi NASF
tekist að fjármagna öll sín netaupp-
kaup á árinu. Þegar hafi verið greitt
fyrir stöðvun úthafsveiða Grænlend-
inga og Færeyinga. Þá hafi verið
greitt fyrir netauppkaup við vestur-
strönd Skotlands, við þrjár laxveiðiár
í Wales, í Biscaya-flóanum í Frakk-
landi og í Þrándheimsfirði í Noregi.
Þá er NASF í vikunni að setja á stofn
nýjan verndarsjóð í Noregi sem fyr-
irhugað er að taki að sér uppkaup á
netum víða við strendur landsins.
Veiðin um 82.000 laxar
Hátt í 30.000 löxum meira en metveiðisumarið 2005, að sögn Orra Vigfússonar
Óvenju margir stórlaxar veiddust hér og í nágrannalöndunum í sumar
Stórlax! Mollie Fitzgerald landaði í sumar og sleppti síðan þessum 54 punda laxi í Altaánni í Noregi. Hún fékk tvo
aðra laxa þetta kvöld, 24 og 35 punda. Góð stórlaxaveiði var í Noregi í sumar, rétt eins og á Íslandi.
Í HNOTSKURN
» Metveiði var á laxi á Ís-landi í sumar. Orri Vigfús-
son telur að veiðin sé um
82.000 laxar.
» Álíka mikið veiddist í hin-um náttúrulegu lax-
veiðiám og sumarið 1978, eða
um 52.000 laxar.
» Í hafbeitaránum virðistvera hærra endurkomu-
hlutfall en áður. Í þeim veidd-
ust um 28.000 laxar.
ÞAU tilvik þar sem börn voru án
nokkurs búnaðar í bíl voru 3%, að því
er niðurstöður nýjustu könnunar
Umferðarstofu, Sjóvár Forvarna-
húss og Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar sýna. Árleg könnun var gerð
í maí sl. og snýr að öryggi barna í bíl-
um.
Í tilkynningu segir m.a. að athygli
veki að árið 1997 voru tilvik þar sem
enginn búnaður var notaður 32% af
heildinni en eru nú 3%.
Í nýjustu könnuninni voru 14,2%
barna með búnað sem ekki hæfði
stærð þeirra og þyngd, en slíkur
búnaður getur skapað falskt öryggi.
Könnunin var gerð við 58 leikskóla
víða um land og þátttakendur voru
1.886.
Ástandið í þessum efnum reyndist
vera best á Húsavík og í Borgarnesi,
en af sveitarfélögum á höfuðborgar-
svæðinu komu Seltjarnarnes og
Garðabær best út.
20 börn sátu fyrir framan örygg-
ispúða en þau voru 23 árið 2007, þar
af voru 12 börn eingöngu með bíl-
belti, en 2 alveg laus. Þessi tilfelli eru
mjög hættuleg en börn mega ekki
undir neinum kringumstæðum sitja í
sæti við virkan öryggispúða því
springi hann út getur það haft lífs-
hættulegar afleiðingar.
Börn án ör-
yggisbúnað-
ar í 3% tilvika
VELFERÐARSVIÐ Reykjavíkur-
borgar mun á næstunni taka í notk-
un fjögur smáhýsi á Granda sem ætl-
uð eru til varanlegrar búsetu fyrir
einstaklinga sem glímt hafa við lang-
varandi heimilisleysi vegna áfengis-
og /eða vímuefnaneyslu, veikinda
eða annarra þátta.
Í Morgunblaðinu í gær var rang-
lega sagt að hvert hús myndi hýsa
fjóra til átta einstaklinga. Hið rétta
er að samtals muni húsin fjögur hýsa
fjóra til átta einstaklinga. Beðist er
velvirðingar á þessum mistökum.
Smáhýsin fjög-
ur rúma 4-8
einstaklinga
HAGFRÆÐIDEILD
HÁSKÓLA ÍSLANDS
www.hag.hi.is
Hagfræðideild HÍ – Málstofa í efnahagsmálum
Fimmtudaginn 23. október kl. 12:00-13:30, Hátíðasalur HÍ
Bankakreppan á Norðurlöndum í
upphafi tíunda áratugarins
Prófessor Erling Steigum, Norwegian School of Management.
Í lok níunda áratugarins var mikil uppsveifla í Finnlandi, Noregi og
Svíþjóð. Erlent fjármagn streymdi inn í löndin, einkaneysla var mikil,
skuldsetning jókst og fasteignaverð hækkaði. Sameining Þýskalands,
sem hafði í för með sér aukningu ríkisútgjalda og vaxtahækkun
þýska seðlabankans, varð síðan til þess að fjármagn streymdi aftur
út úr þessum löndum, fasteignaverð lækkaði og fyrirtæki og heimili
stóðu uppi með skuldirnar. Gengislækkun varð síðan til þess að
auka skuldabyrðina enn meira. Margir bankar lentu í hremmingum
og sumir voru þjóðnýttir. Í fyrirlestri sínum mun Erling Steigum
lýsa þessari reynslu norðurlandaþjóðanna og hvaða lærdóm megi
draga af henni fyrir Íslendinga sem nú standa frammi fyrir svipuðum
vandamálum.
Allir velkomnir. Aðgangur ókeypis.
„ÞAÐ var ósköp svipað að lesa þessa
grein eins og dagblöðin í dag. Það
er sama hörmungarástandið,“ segir
Hjalti Guðröðarson, verkamaður
hjá Spýtunni á Ísafirði, sem fann
122 ára gamalt eintak af frétta-
blaðinu Ísafold í einangrun húss
sem verið var að rífa á Hnífsdal.
Algengt var fyrr á árum að nota
blöð í einangrun húsa en sjálfsagt er
sjaldgæft að finna jafngamalt eintak
og Hjalti fann. Það er þó efni grein-
arinnar, sem vekur ekki síst athygli,
því í henni er lýst bágbornu ástandi
sem ekki er ósvipað því sem nú er
uppi. Eintakið sem Hjalti fann er frá
6. október 1886 og stendur þar m.a.:
„Það er einkum áríðandi, þegar
maður er í hættu staddur, að „missa
ekki móðinn“, annars fer allt í
handaskolum og glötunin er vís.
Ástand lands vors er nú eins og
stendur sannarlegt hættu-ástand:
veðurátt ill og hörð, allir aðal-
atvinnuvegir ógreiðir, verzlun og
stjórn óhagstæð.
Í slíkum kringumstæðum gætir
mest, að landsmenn „ekki missi
móðinn“.
orsi@mbl.is
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Hjalti „Það var ósköp svipað að lesa þessa grein og dagblöðin í dag.“
Ísafold frá 1886
stappar stáli í fólk