Morgunblaðið - 22.10.2008, Page 16

Morgunblaðið - 22.10.2008, Page 16
16 Fréttir VIÐSKIPTI |ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 2008 þeir rekstur Glitnis í Noregi og skuldir upp á 47 milljarða norskra króna. Bankastjóri sparisjóðsins Hed- mark segir í tilkynningu um kaupin að Glitnir sé áhugaverð fjárfesting. Samkvæmt tilkynningu til kaup- hallarinnar í Osló þurfa stjórnvöld að samþykkja kaupin en fastlega er gert ráð fyrir að gerist fyrir 30. nóvember. Á e24.no kemur fram að velta Sparebank 1 hafi numið 474 milljörðum norskra króna á síðasta ári. camilla@mbl.is DÓTTURFÉLAG Glitnis í Noregi, Glitnir Bank Asa, hefur verið selt hópi sparisjóða þar í landi fyrir 300 milljónir norskra króna, eða um 5,1 milljarð íslenskra króna. Glitnir í Noregi varð til þegar Glitnir keypti BNbank og Kreditt- banken þar í landi. Samanlagt kaupverð bankanna tveggja var 3,4 milljarðar norskra króna, eða rúm- lega tífalt kaupverðið nú. Sparisjóðirnir eru tuttugu og til- heyra sparisjóðasamtökunum Sparebank 1. Við kaupin yfirtaka Samtök sparisjóða kaupa Glitni í Noregi ÞETTA HELST ... ● Verðbréfafyrirtækið Evolution Group hefur keypt eignastýringardeild einstaklingsviðskipta hjá Singer & Friedlander, dótturfélagi Kaupþings í Lundúnum. Kaupverðið er sagt vera 5 milljónir punda, jafnvirði tæplega milljarðs íslenskra króna. 40 fyrir- tæki lýstu áhuga á að kaupa deild- ina, þar sem um 40 manns starfa fyr- ir 4.000 viðskiptavini með um 1,5 milljarða punda í stýringu. Deildin verður sameinuð Evolution. Daily Telegraph hefur eftir sérfræðingum að kaupverðið sé afar hagstætt og langt undir markaðsverði. Eignastýring Singer & Friedlander seld FINNUR Svein- björnsson, for- maður skila- nefndar Kaup- þings, hefur verið ráðinn banka- stjóri Nýja Kaup- þings og tekur til starfa í dag. Hann verður með 1.950.000 kr. í mánaðarlaun. Finnur starfaði áður í fjármála- ráðuneytinu og Seðlabankanum. Hann var framkvæmdastjóri sam- taka fjármálafyrirtækja, fram- kvæmdastjóri Kauphallarinnar og síðast bankastjóri Icebank sem nú heitir Sparisjóðabanki Íslands. Þá hefur hann starfað sem ráðgjafi Geirs Haarde forsætisráðherra. Elín Sigfúsdóttir, fyrrverandi for- stöðumaður fyrirtækjasviðs Lands- bankans, er bankastjóri Nýja Landsbankans og Birna Einarsdótt- ir, fyrrverandi framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Glitnis, er bankastjóri Nýja Glitnis. Laun þeirra hafa ekki fengist uppgefin. Benedikt Sigurðsson, upplýsinga- fulltrúi Kaupþings, sagðist í gær ekki vita til þess að breytingar yrðu gerðar á stjórn bankans. Þá lægi ekki fyrir hve margir af um það bil 1500 starfsmönnum Kaupþings færu yfir í Nýja Kaupþing. camilla@mbl.is Bankastjóri Nýja Kaupþings ráðinn Finnur Sveinbjörnsson var formaður skilanefndar og fær 2 milljónir á mánuði Birna Einarsdóttir Finnur Sveinbjörnsson Elín Sigfúsdóttir sagði, að ekki er sjálfgefið að hægt sé að nota gjaldeyrinn á reikningum á Íslandi þegar á þarf að halda. Finnur Geirsson, forstjóri Nóa- Síríusar, segir að vissulega gangi hægt að fá gjaldeyri til kaupa á hrá- efni. Það hafi samt ekki háð þeirra framleiðslu enn sem komið er. Aðrir stjórnendur framleiðslu- og þjónustufyrirtækja segja dæmi um að þeir hafi fengið höfnun. Við- skiptabankinn þeirra gaf þá skýr- ingu að beiðnir þeirra um gjaldeyri uppfylltu ekki skilyrði Seðlabankans um „nauðsynlegan innflutning“. Einnig væru dæmi þess að Seðla- bankinn sjálfur hefði hafnað um- sóknum á sömu forsendum. Kvótinn ekki fullnýttur Á hverjum degi heldur Seðlabank- inn uppboð á evrum að hámarki 25 milljónir evra. Í fyrradag voru aðeins seldar 16 milljónir evra. Af fimm uppboðum hafa aðeins einu sinni 25 FRÉTTASKÝRING Eftir Björgvin Guðmundsson bjorgvin@mbl.is ÞEIR sem selja vörur og þjónustu erlendis flytja ekki gjaldeyri heim því erfitt er að grípa til hans þegar á þarf að halda. Í raun er gjaldeyrir á innlánsreikningum í íslenskum bönk- um einungis ávísun á gjaldeyri og ekki fastur í hendi. Ástæðan er að Seðlabankinn takmarkar allt útflæði gjaldeyris vegna gjaldeyrisskorts. Jón Steindór Valdimarsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir að aðilar atvinnulífsins hafi átt fund með fulltrúa Seðlabankans og stjórnvalda í gær til að finna leiðir til að greiða úr þessu vandamáli. Mik- ilvægt sé að útflytjendur færi gjald- eyrinn heim. Forsenda þess sé að sömu aðilar geti nálgast gjaldeyrinn strax aftur þegar á þurfi að halda til að kaupa aðföng eða þjónustu er- lendis frá. Nú fari þeir í eins konar biðröð í Seðlabankanum þar sem til- teknar beiðnir njóti forgangs í við- skiptum við bankann. Stofna reikninga erlendis Í samtölum við útflytjendur í gær kom fram að fjölmargir hafi brugðið á það ráð að stofna reikninga erlend- is sem viðskiptamenn greiddu inn á fyrir vörur eða þjónustu. Tvennt ráði því. Í fyrsta lagi sé greiðslumiðlun til og frá Íslandi seinfær og jafnvel ófær. Seðlabankinn fullyrðir samt að verið sé að greiða úr þeim vanda. Önnur ástæðan er, eins og áður milljónir evra verið seldar. Þegar leitað var upplýsinga hjá Seðlabankanum af hverju ekki væri selt meira af evrum þar sem ljóst væri að kauptilboðum hefði verið hafnað var sagt að í meginatriðum væri það verðið sem réði. Það fær ekki staðist vegna þess að fjölmargir eru tilbúnir að kaupa evr- ur á í kringum 150 krónur. Ein- hverjar aðrar ástæður liggja að baki að dagskvótinn er ekki nýttur. Nær stoppi en temprun Gjaldeyrismiðlarar sem Morgun- blaðið ræddi við sögðu ástæðuna ein- falda. Ekkert nema allra „nauðsyn- legastur innflutningur“ fengi náð fyrir augu stjórnenda Seðlabankans. Gjaldeyrir væri af það skornum skammti að það ætti varla við lengur að tala um temprun á útflæði gjald- eyris. Þetta fékkst ekki staðfest hjá Seðlabankanum. Vilja tryggja aðgang að gjaldeyrisreikningum  Útflytjendur óttast að geta ekki leyst út gjaldeyri á Íslandi  Seðlabankinn nýtir ekki daglegt svigrúm til sölu á gjaldeyri                                                               !    "          #  "  $    !   % &                      ' ()         *      ' (( $      *   +! *' *      " *              ! " # # $ % &   '(              ! ""# ) * + +*           !  "   #$    #  % & '     ( ) !   *    +,-./ + 0!   1 2  3   ,  )  '    4   ,  ,51 #!  16 ! /7   8 "     #  - . 9   9 !        /  + ,-./ /-./ )-,0 1-)2 (-22 (1-2/  3/-0/ (-4/ 3-/. .)-,/ (.)-// (///-// (01-// (03-// 2/-0/ .-0/ ()00-//                   8     : 2 ;  < ( + = >=?= @A=B@ 0 A== 0 0 >>@>CACBB 0 0 C?CAD>A 0 0 0 D@?CD? 0 0 =>B>= 0 0 0 =E@ @E?@ 0 >E= >?E= 0 A=E= 0 0 D@E== >=E== 0 0 >?E= 0 0 >A>CE== 0 0 0 0 0 0 0 >?EC= 0 A>E>= 0 0 D@ED= 0 >===E== 0 >AE== 0 0 >ACBE== >E= 0 1"    0 >B A 0 >C 0 0 A 0 0 B 0 > 0  0 0 > 0 0 F    =>===D >>===D >>===D C>===D >>===D =>===D 0 >>===D C>===D C>===D >>===D A>===D >>===D >>===D >>===D >@>===D C@==D >>===D =>===D AC==D : : : :  : : .*G .*G ,/, ))3 5(-1 6/-. H H .*G 3!G ('3,2 203 6/-, 62-3 H H F4I /  4'/,1 (')43 52-0 51-( H H 1:+# FG 1'2,/ 1'3.1 5(-2 5(-( H H .*G> .*G#?= )03 3(. 6/-, 5/-, H H ● VIÐSKIPTI með hlutabréf í Kaup- höllinni á Íslandi voru töluvert meiri í gær en verið hefur undanfarna daga. Þau námu samtals um 155 milljón- um króna í gær samanborið við ein- ungis 29 milljónir í fyrradag. Úrvalsvísitalan í Kauphöllinni hækkaði um 0,3% í gær og er loka- gildi hennar 657 stig. Mest hækkun varð í gær á hluta- bréfum Eimskipafélagsins, en þau hækkuðu um 6,1%. Þá hækkuðu bréf Össurar 3,3% og bréf Bakkavar- ar um 0,8%. Mest lækkun varð í gær á hlutabréfum Atlantic Petroleum, en þau lækkuðu um 59,1%. Þá lækk- uðu hlutabréf Atorku um 5,9%. gretar@mbl.is Hækkun í Kauphöll og aukin viðskipti FRÉTTASKÝRING Eftir Björgvin Guðmundsson bjorgvin@mbl.is „ÁRÉTTAÐ er að vandinn er til kominn vegna þess fyrirkomulags sem Seðlabanki Íslands viðhafði við að veita laust fé í íslenskum krónum til stóru bankanna þriggja. Þar sem smærri fjármálafyrirtæki voru háð fyrirgreiðslu stóru bankanna þriggja var þeim nauðugur einn kostur að taka að sér þetta hlut- verk,“ segir í minnisblaði smærri fjármálafyrirtækja sem Morgun- blaðið hefur undir höndum. Í minnisblaðinu er lýst veðlána- viðskiptum fjármálafyrirtækjanna við Seðlabanka Íslands þar sem skuldabréf Landsbankans, Glitnis og Kaupþings voru lögð að veði. Nú hafa þessi veð rýrnað í verði og Seðlabankinn rukkað fjármálafyrir- tækin um allt að 150 milljarða í við- bótartryggingu. Fulltrúar VBS fjárfestingar- banka, Saga Capital, SPRON, Ask- ar Capital og Icebank sátu fund þar sem minnisblaðið var samþykkt. Ástæðunni fyrir því að þessi fjár- málafyrirtæki sitja uppi með nú verðlítil skuldabréf bankanna er lýst í minnisblaðinu. Þar segir að stóru bankarnir hafi notað smærri fjármálafyrirtæki til að ná sér í laust fé í Seðlabankann. Viðskipta- bankarnir gáfu út skuldabréf sem smærri fyrirtækin ýmist keyptu eða fengu að láni. Í þeim tilvikum þar sem fjármálafyrirtækin keyptu bréfin voru þau lögð inn í Seðla- bankann sem veð fyrir láni. Lánið var svo notað til að greiða stóra bankanum fyrir skuldabréfið. Þann- ig gátu bankarnir tæknilega séð nánast náð sér takmarkalaust í pen- inga hjá Seðlabankanum. Sumir sögðu þetta jafnast á við peninga- prentun. Reglunum breytt Seðlabankinn tilkynnti 25. ágúst sl. að reglunum hefði verið breytt. Takmarkanir voru settar á trygg- ingarhæfi verðbréfa bankanna. Forsvarsmenn ofangreindra fjár- málafyrirtækja telja það hafa alvar- legar afleiðingar að nýju bankarnir yfirtaki ekki skuldir samkvæmt þeim skuldabréfum sem þau eiga og hafa verið lögð að veði gegn veð- lánum í Seðlabanka. Það gerir það að verkum að verðmæti skuldabréf- anna fellur verulega og fjármála- fyrirtækin verða fyrir búsifjum. Segja veðlánin hafa verið nauðugan kost Í viðskiptablaði Morgunblaðsins 21. ágúst síðastliðinn var greint frá að- ferðum stóru viðskiptabankanna til að ná sér í lausafé nánast án takmarkana í Seðlabanka Íslands. Seðlabankinn sagði í tilkynningu sama dag viðskiptin eðlileg þó að reglum væri síðar breytt. Í gær var til- kynnt að líkur væru á að Seðlabankinn yrði fyrir tjóni vegna falls bankanna. Umdeild lánaviðskipti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.