Morgunblaðið - 22.10.2008, Side 19
Daglegt líf 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 2008
Eftir Ómar Garðarsson
Í
Betel í Vestmannaeyjum,
þar sem guðsorð var boðað
af meiri krafti en við eigum
að venjast, hljóma nú ljúfir
tónar hljómsveitarinnar
Mezzoforte. Hljómsveitin er að
taka upp plötu í nýju hljóðveri í
Eyjum, Island Studios, sem hljóm-
sveitarmeðlimir segja að sé meðal
þeirra bestu hér á landi og standist
fyllilega samanburð við það besta
sem þeir hafa kynnst erlendis. Þeir
segja líka að rólegheitin í Eyjum
hafi skilað sér í markvissari vinnu
og vonandi betri tónlist. Einn dag-
inn litu þeir upp frá tónlistarsköp-
uninni og reru til fiskjar og var afl-
inn á matseðlinum um kvöldið.
Island Studios er í eigu Ólafs
Guðjónssonar, skipstjóra og út-
gerðarmanns á Gæfunni VE og
fjölskyldu hans. Á yngri árum söng
Ólafur með hljómsveitum í Eyjum
og síðan hefur hann átt sér þann
draum að koma upp fullkomnu
hljóðveri sem nú er orðið að veru-
leika. Talsverður tími fór í að finna
húsnæði en fyrir valinu varð húsið
að Faxastíg 6 sem er frá árinu
1926 og framundir síðustu aldamót
var kirkja hvítasunnumanna í Vest-
mannaeyjum og heitir Betel. Ólafur
fékk son sinn Árna Óla til liðs við
sig og er afraksturinn frábært
hljóðver og íbúð á efri hæðinni sem
stendur tónlistarfólki til boða.
Tónlist er stór hluti af boðun
hvítasunnumanna og hún mun
áfram ráða ríkjum í Betel en yfir
vötnunum svífur andi predikara
eins og Einars heitins Gíslasonar
sem oftast var kenndur við Betel
og frænda hans Snorra Ósk-
arssonar sem nú predikar norðan
heiða.
Góð aðstaða
„Þetta kom okkur mjög á óvart
og aðstaðan er mun betri en við
áttum von á,“ sagði Eyþór Gunn-
arsson, hljómborðsleikari og
kannski foringi sveitarinnar sem
verið hefur að í yfir þrjá áratugi.
„Þetta stúdíó stenst samanburð við
það besta sem við höfum kynnst
erlendis.“
Gunnlaugur Briem trommari var
ekki síður ánægður. „Aðstaðan og
tækjabúnaður er mun betri en við
reiknuðum með. Og þetta er örugg-
lega eitt af þremur bestu stúdíóum
hér á landi en hér eru herbergin
fleiri sem er kostur.“
Þeir létu vel af dvölinni í Eyjum
og sögðu góðan anda í húsinu. „Við
tókum fljótlega ákvörðun um að
loka á allar þessar leiðindafréttir
sem dynja á þjóðinni og einbeita
okkur að tónlistinni. Hér er ekkert
sem truflar, tíminn nýtist til fulls
og svo er fallegt í Vestmannaeyjum
sem hefur sitt að segja,“ sagði Ey-
þór.
Einn daginn fóru þeir á sjó og
drógu nokkra þorska og tvær ýsur.
„Um kvöldið var slegið upp veislu
þar sem við borðuðum steiktan
þorsk og ýsu sem var góð tilbreyt-
ing,“ sögðu þeir.
Mezzoforte-menn héldu tónleika í
Höllinni í Eyjum og var frábærlega
tekið. Þeir léku lög af nýju plötunni
í bland við gamalt og gott. Eyþór
hrósaði dvölinni í Eyjum og sagði
að Island Studios væri góð viðbót í
íslenskri menningu sem margir
listamenn, bæði erlendir og inn-
lendir, ættu örugglega eftir að nýta
sér.
Mezzoforte leikur ekki oft hér á
landi og síðast voru þeir í Eyjum
1984 en Eyþór sagði að þeir væru
langt í frá dauðir úr öllum æðum –
þeir halda 30 til 50 tónleika á ári.
Núna eru þeir á leiðinni til Þýska-
lands, Sviss og Hvíta-Rússlands
sem er 39. landið þar sem þeir
koma fram.
Ljúfir tónar þar
sem guðsorð var boðað
Morgunblaðið/Sigurgeir
Í dag Eyþór Gunnarsson, Óskar Guðjónsson, Jóhann Ásmundsson, Gunnlaugur Briem, Bruno Mueller og Thomas Dyani.
Mezzoforte tekur
upp tónlist í nýju
hljóðveri í Betel í
Vestmannaeyjum
Hallmundi Kristinssyni datt íhug að morgni, nokkru áður
en hann vaknaði:
Öllum í vinsemd nú á það skal bent:
Enginn má blogga með þjósti.
Faðmlag í tölvuna fæ ég nú sent
og flörtandi snertingu í pósti.
Sigrún Haraldsdóttir tekur undir
að allir eigi að leggjast á eitt í þjóð-
félaginu:
Í samhengi virkar víðu
vináttuhugurinn sterki.
Ég fór áðan full af blíðu
og faðmaði umferðarmerki.
Hálfdan Ármann Björnsson rýnir
í orð Sigrúnar:
Andinn skal okkur forða
öllum frá því að bögga.
En meðal annarra orða,
var umferðarmerkið lögga?
Þá Björn Ingólfsson:
Séð er fyrir endann enn
ekki á hvernig þetta fer.
Ýmsir landsins merkis-menn
munu vilja kynnast þér.
Jón Ingvar Jónsson yrkir í sama
kærleiksanda:
Þegar kemur hrímkalt haust
og húmið leggst á dalinn
elskast næstum endalaust
ærnar, kýr og smalinn.
Af kærleika
og skilti
VÍSNAHORN pebl@mbl.is
HAFI maður minnsta grun um að
maður þjáist af kulnun í starfi er
nauðsynlegt að gera eitthvað í mál-
unum. Þetta ráðleggur bandaríska
heilbrigðisstofnunin MayoClinic á vef-
síðu sinni og segir þar að fyrsta skref-
ið sé auðvitað að þekkja einkenni
kulnunar.
Kulnun er sambland líkamlegrar, til-
finningalegrar og andlegrar þreytu
sem er afleiðing krefjandi vinnu til
langs tíma og sívaxandi streitu. Þann-
ig skiptir engu þótt viðkomandi sé ný-
kominn úr afslappandi fríi, hann kvíð-
ir eftir sem áður fyrir því að þurfa að
mæta aftur í vinnuna.
Sértu með einhver eftirfarandi ein-
kenni kulnunar í starfi þarftu að
kanna málið því afleiðingar geta orðið
m.a. kvíði, svefnleysi, þunglyndi,
vandamál með vín o.fl. og eyðilagt fyr-
ir samböndum þínum og heimilislífi.
Aukin tortryggni og kaldhæðni og
maður er gagnrýnni í vinnunni.
Ekkert getur glatt mann.
Drattast í vinnuna, á erfitt með að
hefjast handa og er orkuminni.
Pirraðri og með litla þolinmæði
gagnvart samstarfsmönnum.
Óyfirstíganlegar hindranir í
vinnunni.
Aldrei ánægður með eigin árangur.
Enginn húmor fyrir sjálfum sér.
Þreyttur á því að vinnufélagar
spyrji um líðan.
Vonsvikinn í vinnunni.
Matur, lyf eða vín eru meðul til að
líða betur eða finna ekki fyrir
neinu.
Breyttar svefnvenjur eða matarlyst.
Óútskýrður höfuðverkur, háls-
eymsli eða verkir í mjóbaki.
Útbrunninn eða ekki?
Reuters
Streita Álag er nú á mörgum vinnustöðum og hættara við kulnun í starfi.
Only 16 lots left to build your new dream
Orlando Vacation Home!
Choose a 4 ,5 or 6 bedroom home, low down
payment and financing available!
Hurry and call your Orlando home experts today...
LAST CHANCE
Windsor Hills Resort
Thorhallur Gudjonsson at
Gardatorg - 896 8232
Meredith Mahn in Orlando at
(321) 438 5566
www.LIVINFL.com
Fjársterkur kaupandi óskar eftir 2ja herbergja íbúðum í lyftuhúsi á svæðum
101, 104, 105, 108 og 200 (smárinn).
Sterkar greiðslur í boði.
Allar nánari uppl. veitir Magnús Geir Pálsson sölumaður í síma 892 3686.
ÓSKUM EFTIR ÍBÚÐUM
Síðumúla 21 • 108 Reykjavík • S . 588 9090 • fax 588 9095
www.eignamidlun. is • e ignamidlun@eignamidlun. is
Sverr ir Kr ist insson, löggi ltur fasteignasal i
@
Fréttir
á SMS