Morgunblaðið - 22.10.2008, Side 41

Morgunblaðið - 22.10.2008, Side 41
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÉG er nú bara búin að fá einhver smáviðbrögð frá vinafólki mömmu og pabba, það hefur eitthvað verið að hrósa manni fyrir þetta. En þar fyrir utan hef ég ekkert fengið mjög mikil viðbrögð,“ segir Halldóra Ársælsdóttir, 16 ára gömul tónlistarkona, en mynd- band með henni gengur nú eins og eldur í sinu um netheima. Í myndbandinu má sjá hana flytja sinn eigin texta við lagið „Litli trommuleikarinn“, en í flutningi Halldóru heitir lagið „Verðbréfadreng- urinn“. Í texta lagsins gerir hún góðlátlegt grín að ungum manni sem lendir í miklum hremmingum þegar hlutabréfin hans falla í verði. Á meðal þess sem ungi maðurinn lendir í er að missa Hummerinn sinn og flatskjáinn, auk þess sem hann kemst ekki í skíðaferð til Colorado. Það sem fer upp … „Ég samdi þetta í desember í fyrra fyrir góðgerð- ardisk sem félagsmiðstöð í Grafarvogi var að gefa út, hann var svo seldur og ágóðinn fór allur til góð- gerðarmála,“ segir Halldóra sem tók þátt í ljóða- slammskeppni Borgarbókasafns í kjölfarið. Hún gerði sér lítið fyrir og sigraði í keppninni og fékk meðal annars að spila í bókasafninu á menning- arnótt. En hvernig datt henni í hug að semja þennan texta í desember í fyrra? Bjóst hún við að verða svona sannspá? „Nei, eiginlega ekki, það voru að koma jól og ég ákvað bara að gera svolítið fyndinn texta við þetta jólalag. Mér datt hins vegar ekkert í hug að ástandið yrði nánast eins og segir í textanum, allavega ekki svona mikið. Ég vissi alveg að ástandið færi að verða slæmt, en kannski ekki svona slæmt. En þessi upp- sveifla stóð náttúrlega svo lengi yfir að hún hlaut að koma niður að lokum, eins og allt annað,“ segir tón- listarkonan unga, sem segist fylgjast nokkuð vel með ástandinu í þjóðfélaginu. Halldóra er á fyrsta ári í Menntaskólanum í Reykjavík. Hún hefur lært á fiðlu í tíu ár, en segist líka dunda sér við að spila á gítar og semja texta. En mega menn eiga von á fleiri lögum á borð við „Verðbréfadrenginn“ á næstunni? „Já, ég vona það allavega. Ég er búin að semja nokkur svona lög í viðbót. En ég hef að vísu verið með smáritstíflu undanfarið,“ segir hún að lokum. Missti Hummerinn og flatskjáinn  Ung stúlka gerir stólpagrín að ástandinu í þjóðfélaginu í laginu „Verðbréfadrengurinn“  Samdi textann löngu áður en hrunið hófst Morgunblaðið/Golli Sannspá „Þessi uppsveifla stóð náttúrlega svo lengi yfir að hún hlaut að koma niður að lokum, eins og allt annað,“ segir tónlistarkonan unga, Halldóra Ársælsdóttir. Sjá má Halldóru flytja hið kostulega lag með því að skrifa „Verðbréfadrengurinn“ sem leitarskil- yrði á Youtube. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 2008 KVIKMYND Háskólabíó og Laugarásbíó Konurnar (The Women) bmnnn Leikstjórn: Diane English. Aðalhlutverk: Meg Ryan, Annette Bening, Eva Men- des, Debra Messing og Jada Pinkett Smith. Bandaríkin, 114 mín. KONURNAR (The Women) er endurgerð á samnefndri banda- rískri kvikmynd frá árinu 1939 sem leikstýrt var af George Cukor og skartaði m.a. Joan Crawford í lykilhlutverki. Myndin var á gerð á tíma þegar konur mynduðu uppi- stöðuna í hópi kvikmynda- húsagesta og Hollywood brást við því með því að gera stórmyndir sem var ætlað að höfða til reynslu- heims og áhugasviða kvenna. Sag- an er byggð á leikriti eftir Clare Boothe Luce frá árinu 1936 og segir frá hópi vinkvenna sem deila áhyggjum sínum, hugðarefnum og vandamálum. Stórt vandamál kem- ur upp þegar Mary (leikin hér af Meg Ryan) kemst að því að eig- inmaður hennar heldur við Chrys- tal (Eva Mendes), íðilfagra ilm- vatnssölustúlku í stórverslun sem beitir kynþokka sínum eins og hverju öðru nákvæmnisvopni. Vin- konurnar koma til hjálpar en þeg- ar á hólminn er komið reynist vin- konuhópurinn ekki óbrigðull. Erfitt er að sjá hverju aðstand- endur endurgerðar Kvennanna töldu sig hafa við fyrri myndina að bæta, en greinilegt er að myndin er markaðssett og hugsuð sem inn- slag í Beðmála í borginni-bylgjuna sem myndin frá 1939 var ákveðinn forveri að. Endurgerðina skortir hins vegar allan sjarma, og sérsak- lega tapar hún niður hinum beitta og hnyttna tóni forverans. Til- raunir til þess að laga efniviðinn úr fyrri myndinni að samtímanum og bæta inn meiri „femínískri“ meðvitund skortir jafnframt allan fókus. Úrval leikkvenna á borð við fyrrnefnda Meg Ryan, Annette Bening, Debra Messing og Jada Pinkett Smith fara með hlutverk vinkvennanna, en persónur þeirra eru staðlaðar og jaðra við að verða skrípamyndir á köflum. Eva Men- des fær hér það lítt þakkláta verk- efni að feta í fótspor Joan Craw- ford í hlutverki þokkadísarinnar skæðu, og stendur þar frammi fyr- ir vonlausri samkeppni. Heiða Jóhannsdóttir Vinkonur í vanda Staðlaðar India Ennenga, Meg Ryan og Candice Bergen í hlutverkum sínum í Konunum. Verðbréfadrengurinn. Vextirnir fara hækkandi. Bónusinn farinn fjandans til. Vaxtamörðurinn seldi Hummerinn. Hlutabréfin fallandi, svekkjandi. Verðbréfasnáðinn. Bankinn tók flatskjáinn. Konan fór með börnin. Stakk af til tengdamömmu. Missti vinnuna, bömmer. Verðbréfaguttinn. Visakortinu lokað. Alltaf í vanskilum. Ekkert varð úr skíðaferðinni til Colorado. Jólin náðu botninum, svekkjandi. Verðbréfapeyinn. Krónan er fallin. Bankarnir þora ekki að lána meir. Verðbólgan étur húsin. Jólagleðin alveg gleymd, niðurdrepandi. Verðbréfadrengurinn FRÁ HÖFUNDI THE NOTEBOOK KEMUR NIGHTS IN RODANTHE RICHARD GERE ÁSAMT DIANE LANE FARA Á KOSTUM Í ÞESSARI FALLEGU ÁSTARSÖGU. EMMA ROBERTS ER NÝJA STELPAN, Í NÝJA SKÓLANUM ÞAR SEM NÝJU REGLURNAR ERU TIL VANDRÆÐA! JÁKVÆÐASTA MYND ÁRSINS MYND SEM ÞÚ VERÐUR AÐ SJÁ -BBC -HJ.,MBL SEX DRIVE kl. 8 B.i. 12 ára PATHOLOGY kl. 8 B.i. 16 ára / AKUREYRI / KEFLAVÍK REYKJAVÍK ROTTERDAM kl. 8 - 10:10 B.i. 14 ára BABYLON A.D. kl. 10:10 B.i. 16 ára PINEAPPLE EXPRESS kl. 8 B.i. 12 ára / SELFOSSI EINHVER HROTTALEGASTA SPENNUMYND SÍÐARI ÁRA, Í ANDA HINNA MÖGNUÐU FLATLINERS SEX DRIVE kl. 8 - 10:10 B.i. 12 ára BURN AFTER READING kl. 10:20 B.i. 16 ára SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í AKUREYRISÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI SÝND Í KRINGLUNNI OG KRINGLUNNI ATH. STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA. SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í KEFLVÍK SÝND Í SELFOSSI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.