Morgunblaðið - 07.11.2008, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.11.2008, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 7. N Ó V E M B E R 2 0 0 8 STOFNAÐ 1913 305. tölublað 96. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is HUGLEIKUR DAGSSON SAMT EIGINLEGA ALVEG 80% VITLEYSA SÓLRÚN ANNA SÍMONARDÓTTIR Hauströkkrið kallar á flöktandi kertaljós Leikhúsin í landinu >> 41 „ÉG hef heyrt þennan orðróm líka, en veit ekki hvort það er fótur fyrir honum,“ seg- ir Diana Wallis, þing- maður og varaforseti Evrópu- þingsins, í samtali við Morgun- blaðið. Vísar hún þar til frétta þess efnis að embættismenn ESB hafi gefið í skyn við ís- lenska þingmenn að lagst verði gegn lánum til Íslands meðan deila landanna vegna Icesave- reikninganna sé óútkljáð. „Sé þessi orðrómur réttur yrði ég fyrir miklum vonbrigð- um því ég er þeirrar skoðunar að aðgerðir Breta gegn Íslending- um í nafni hryðjuverkalaga hafi aðeins gert vonda stöðu verri,“ segir Wallis og tekur fram að nú sé tími fyrir samstöðu Evrópu- ríkja. Hvorki Alan Seatter, fulltrúi framkvæmdastjórnar ESB, né Natasha Butler, fulltrúi ráð- herraráðs ESB, vildu í samtöl- um við Morgunblaðið staðfesta frásögn íslensku þingmann- anna. Í samtali við Morgunblaðið hvetur Wallis íslensk stjórnvöld til þess að fara með deiluna um Icesave-reikninga dómstólaleið- ina. „Mér skilst að íslensk stjórnvöld hafi þegar boðið breskum stjórnvöldum að fara með málið fyrir Evrópudóm- stólinn en Bretar hafnað því. Væri ég í sporum íslenskra ráðamanna væri ég ekki smeyk við að fara með málið fyrir breska dómstóla, enda eru þeir ekki hræddir við að dæma eigin stjórnvöldum í óhag.“ | 15 Dómstólaleiðin greið Diana Wallis Diana Wallis, varaforseti Evrópuþingsins, harmar framgöngu Breta í garð Íslendinga vegna Icesave Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is SÍFELLT fleiri leita félagslegrar aðstoðar vegna fjárhagsþrenginga. Þannig leituðu tvöfalt fleiri til Hjálparstarfs kirkjunnar nú í október en í sama mánuði í fyrra. Hópurinn sem leitar sér aðstoðar hefur breyst, að sögn Vilborgar Oddsdóttur, fé- lagsráðgjafa hjá Hjálparstofnun kirkjunnar, og nýir þjóðfélagshópar bæst við. Vilborg segir að staðan hafi breyst hjá mörgum fjölskyldum. Fólk nái ekki endum saman eftir hækkanir á mat og afborgunum á sama tíma og yf- irvinna sé kannski skorin niður. Aðrir hafi verið launalausir í tvo mánuði eftir atvinnumissi. „Þetta er ekki fyrsta skrefið sem fólk tekur. Framan af heldur það að ástandið lagist og reynir að fleyta sér áfram sjálft. En þeir sem koma til okkar núna eru búnir að fá það sem þeir geta hjá fjölskyldunni og eiga ekki neina fyrirgreiðslu hjá bönkunum lengur. Maður heyrir fólk segja að það geti bara ekki beðið fjölskylduna um meiri pen- ing,“ segir Vilborg. Hjálparstarf kirkjunnar hefur ákveðið að helmingur jólasöfnunarinnar í ár gangi til hjálparstarfs innanlands vegna þess hve ástandið er slæmt. | 14 Nýir hópar leita aðstoðar  Tvöfalt fleiri óskuðu eftir aðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar vegna fjárhagserf- iðleika í október  Fólk er áður búið að leita á náðir fjölskyldunnar og bankanna Morgunblaðið/hag Erfiðleikar Fleiri glíma við fjárhagserfiðleika en verið hefur í mörg ár. Margir þurfa að leita ásjár hjálparstofnana til að framfleyta sér. Í HNOTSKURN »Fólk sem missti vinnuna í sumar og áekki rétt á atvinnuleysisbótum bætist nú í hóp skjólstæðinga Hjálparstarfs kirkj- unnar. »Þangað leitar einnig lágtekjufólk meðstórar fjölskyldur sem áður hefur að- eins óskað eftir aðstoð fyrir jól eða við sér- stakar aðstæður. Rýnt í blöð Það vantaði ekkert upp á athyglina hjá krökkunum í 3. bekk Brekkubæjarskóla á Akranesi þegar þeir heimsóttu Þjóðminjasafnið í gær. Eins og lög gera ráð fyrir fengu þeir í heimsóknarbyrjun gagnmerkar upplýsingar um hvað má og hvað ekki í slíkum heimsóknum. Ekki er ástæða til að ætla annað en að hin gullna regla „ekki snerta“ hafi verið virt með sæmd. Röð og regla hjá Skagakrökkum í Þjóðminjasafninu Morgunblaðið/Kristinn  Þeir launþeg- ar, sem lögðu viðbótarlífeyr- issparnað sinn til ávöxtunar hjá Lífeyrissjóði verslunarmanna, hafa tapað 23,4% af innstæðu sinni. Þetta hefur gerst í kjölfar hruns bankanna. Hjá Gildi-lífeyrissjóði verður 12% skerðing á tveimur af þremur leiðum, sem sjóðurinn býð- ur upp á. » 2 Hafa tapað 23% af sér- eignasparnaði sínum  Hópur stjórnenda úr gamla Kaupþingsbankanum stendur að baki tillögu til stjórnar nýja bank- ans um að lán starfsmanna vegna hlutafjárkaupa í bankanum verði innheimt í samræmi við almennar reglur bankans. Þeir vilja að litið verði framhjá ákvörðun gamla bankans frá 25. september um að fella niður ábyrgðir vegna þessara lána og að þeir verði meðhöndlaðir eins og allir aðrir. » 4 Vilja sömu meðhöndlun  Seðlabankamenn eru farnir að hafa áhyggjur af stöðugt hægara innstreymi gjaldeyris þó að í flest- um tilfellum hafi tekist að afla gjaldeyris til fyrirtækja á forgangs- lista. Útflutningsfyrirtæki notast í auknum mæli við erlenda banka- reikninga og komast þannig hjá að koma með gjaldeyri inn í landið. Slíkir reikningar eru ekki ólöglegir en auka hættu á „svartamark- aðsbraski“ með gjaldeyri. » 6 Svartur markaður krónu Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is BANKASTJÓRNIR nýju bankanna tóku sjálfar ákvörðun um að kaupa öll skuldabréf í peningamark- aðssjóðum þeirra. Heimildir Morgunblaðsins herma að þeir hafi borgað um 200 milljarða króna fyrir bréfin. Stjórnvöld segjast ekkert hafa komið að ákvörð- uninni heldur hafi hún verið tekin á viðskipta- legum forsendum. Þegar nýju bankarnir voru stofnaðir lagði ríkissjóður þeim til eigið fé að and- virði 385 milljarðar króna. Stjórnarþingmenn segja að málið hafi aldrei verið rætt í þingsal, þingnefndum eða í þingflokkum. | 16 Bankarnir ákváðu sjálfir bréfakaupin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.