Morgunblaðið - 07.11.2008, Síða 6

Morgunblaðið - 07.11.2008, Síða 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2008 Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is STEINDUR kirkjugluggi eftir Valgerði Bergsdóttur myndlistarmann er kominn á sinn stað í stafni kirkju- skips Áskirkju. Starfsmenn Dr. H. Oidtmann í Linn- ich í Þýskalandi settu gluggann upp fyrr í vikunni. Í stað þess að horfa út í Laugardalinn munu kirkju- gestir framvegis virða fyrir sér atriði sem tengjast ævi og starfi Péturs postula. Hann var fiskimaður og síðar lærisveinn Jesú Krists. Glugginn verður form- lega vígður á 25 ára vígsluafmæli kirkjunnar á þriðja sunnudegi í aðventu sem ber upp á 14. desember. Efnt var til tveggja þrepa samkeppni meðal mynd- listarmanna vorið 2006 um gerð glugga í Áskirkju og gáfu 26 listamenn sig fram til verksins. Forvalsnefnd valdi úr þeim hópi þrjá listamenn og varð tillaga Val- gerðar fyrir valinu í febrúar 2007. Vinna við gerð gluggans hófst hjá Dr. H. Oidtmann í mars síðast- liðnum. Séra Sigurður Jónsson, sóknarprestur í Áspresta- kalli, sagði að þema verksins ætti vel við í ljósi þess að kirkjan sé öðrum þræði sjómannakirkja. Dval- arheimili sjómanna Hrafnista er í sókninni og veitir kirkjan heimilinu mikla þjónustu. Þá er kirkjan sjálf skipslaga. Dr. H. Oidtmann er elsta fyrirtækið á sínu sviði í Þýskalandi, stofnað 1857. Gerður heitin Helga- dóttir starfaði mikið með fyrirtækinu á sínum tíma. Það hefur unnið talsvert hér á landi undanfarin ár, m.a. við viðgerð á mósaíkmynd Gerðar á Tollhúsinu, gerð steindra glugga í kirkjunni í Reykholti og í Seljakirkju. Pétur fiskimaður og postuli í stafni Áskirkju Morgunblaðið/Árni Sæberg Myndin öll Stefan Oidtmann og Reinhard Bock fella síðustu eininguna í steinda glugganum á sinn stað. FRÉTTASKÝRING Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is INNFLYTJENDUR eru enn að lenda í vandræðum með að fá gjald- eyri til viðskipta sinna. Fyrir fyrir- tæki sem ekki hafa verið á forgangs- lista, s.s. með matvörur, lyf og olíu, hefur það tekið á aðra viku að fá af- greiðslu sinna mála og sum smærri fyrirtæki hafa engan gjaldeyri feng- ið. Þannig hafa t.d. sumar smærri fataverslanir ekki fengið neina fyr- irgreiðslu enn, og fara því að verða uppiskroppa með vörur fyrir jóla- verslunina. Þó að tekist hafi að afla gjaldeyris í flestum tilvikum til fyrirtækja á forgangslista eru seðlabankamenn farnir að hafa áhyggjur af stöðugt hægara innstreymi gjaldeyris. Sam- kvæmt upplýsingum blaðsins hafa útflutningsfyrirtæki í auknum mæli notast við erlenda bankareikninga til að leggja inn á og ekki viljað koma með gjaldeyri inn í landið við núverandi aðstæður. Því má segja að tvöfalt hagkerfi sé í gangi. Eru þetta sögð eðlileg viðbrögð fyrirtækja, það sé mannlegt eðli að reyna að bjarga sér í neyð. Vitað er að innflytjendur hafa nýtt sér þessa erlendu reikninga útflutn- ingsfyrirtækja og gengið frá sínum viðskiptum þar. Þó að ekkert ólög- legt sé við þetta eykur þetta hættu á „svartamarkaðsbraski“ með gjald- eyrinn. Hefur evran jafnvel selst á upp undir 300 krónur. Viðmið- unargengi Seðlabankans á evrunni er nú um 166 krónur. Gjaldeyrinn heim! Að þessu er óbeint vikið í Pen- ingamálum Seðlabankans í gær. Þar segir að skömmtun gjaldeyris hafi haft í för með sér tvöfaldan gjaldeyr- ismarkað. Einhver gjaldeyrisvið- skipti hafi átt sér stað utan hins formlega markaðar, bæði innan- lands og utan. Þeir sem ekki hafi að- gang að erlendum gjaldeyri séu reiðubúnir að kaupa gjaldeyri á hærra verði en fæst á hinum form- lega markaði. Erlendar bankastofn- anir hafi skráð gengi krónunnar mun lægra en það hafi verið skráð hér á landi. Á meðfylgjandi mynd sést að verðmyndun á evrunni hefur verið að jafnast, miðað við tölur af daglegu uppboði Seðlabankans með evrur síðan í júlí sl. „Handhafar erlends gjaldeyris, t.d. útflutningsfyrirtæki, hafa ekki haft hag af því að flytja gjaldeyri heim umfram brýnar þarfir á skráðu gengi Seðlabankans. Nauðsynlegt er því að aflétta sem fyrst hömlum á gjaldeyrisviðskiptum þannig að gengi krónunnar ráðist af framboði og eftirspurn. Fyrr verður traust ekki fyllilega endurvakið á gjaldeyr- ismarkaði,“ segir í Peningamálum. Slagorð okkar Íslendinga er því ekki lengur „Handritin heim“ heldur „Gjaldeyrinn heim“. Íslandi lýstu fleiri en einn viðmæl- andi sem alvarlega veikum sjúklingi með stórt blæðandi sár. Stjórnvöld og Seðlabankinn væru að reyna að plástra sárið og koma í veg fyrir frekari blæðingu, og á sama tíma væru aðilar eins og alþjóðagjaldeyr- issjóðurinn að koma með stóra poka af blóði til að dæla í sjúklinginn. Hins vegar væri eina leiðin til að sár þessa sjúklings fengi að gróa að fá gjaldeyristekjur inn í landið. Ekki falleg lýsing en líkast til sönn.  Enn tafir á öflun gjaldeyris  Tvöfalt hagkerfi með æ fleiri erlendum bankareikningum íslenskra fyrirtækja  Sár „sjúklingsins“ Íslands grær ekki fyrr en með „blóði“ frá alþjóðagjaldeyrissjóðnum Reynt að stöðva blæðinguna                                                  ! " # $#% &#%  #' )( Í HNOTSKURN »Áhyggjur eru innan Seðla-bankans af hægu inn- streymi gjaldeyris. »Útflytjendur hafa margirstofnað erlenda banka- reikninga til að taka við greiðslum. »Meðal þeirra er HBGrandi, sem er með reikn- ing í Noregi, en forstjórinn segir greiðslur þaðan hafa komið til landsins í norskum krónum. „ÞAÐ er enginn að tala um kosn- ingar á þessu stigi málsins. Ég tel hins vegar rétt að ríkisstjórnin end- urnýi umboð sitt þegar um hæg- ist,“ segir Ellert B. Schram, þing- maður Samfylk- ingarinnar. Æskilegt sé því að boðað verði til kosninga áður en kjörtíma- bilinu lýkur. Að mati Ágústs Ólafs Ágústssonar, varaformanns Samfylkingarinnar, getur slíkt vel komið til greina. „Enn sem komið er ríkir traust á milli þess- ara flokka, en mér finnst kosningar alveg koma til greina og þá frekar fyrr en seinna,“ segir Ágúst. Krafan um að fá að ganga til kosninga sé vax- andi meðal þjóðarinnar. Komast þarf fyrir vind Þeir segja hins vegar ólíklegt að nægjanlegt jafnvægi til að boða til kosninga náist í efnahagsmálum þjóð- arinnar á næstu vikum og mánuðum. Allir séu líka sammála um að komast þurfi fyrir vind fyrst. Stjórn- málaflokkarnir þurfi þó engu að síður að taka mið af því því gerbreytta landslagi sem nú blasir við, þó að Ágúst Ólafur bæti við að enginn ætli að fara að gera sér leik að því að sprengja ríkisstjórnina. „Þessi ríkisstjórn var mynduð um flest annað en það sem nú blasir við í þjóðfélaginu á næstu misserum,“ seg- ir Ellert. Þegar hafist verði handa við þá endurreisn efnahags-, fjármála og velferðarkerfis sem við blasi sé stjórnvöldum því, að hans mati, bæði rétt og skylt að fá nýtt umboð. „Stjórnmálaflokkarnir geta þá teflt fram sínu fólki og hver veit nema fram komi nýir flokkar og hópar og bjóði fram. Það veit enginn hvaða gerjun þetta kann að hafa í för með sér á hinum pólitíska vettvangi,“ segir Ellert. annaei@mbl.is Vaxandi krafa um kosningar Endurnýi umboð sitt þegar um hægist Ellert B. Schram Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is RÁÐUNEYTI hafa gripið til aðgerða til að draga úr kostnaði á síðustu vik- um, eftir að efnahagskreppan dundi yfir. M.a. hefur verið dregið úr ut- anlandsferðum eins og kostur er. Helgi Már Arthursson, upp- lýsingafulltrúi heilbrigðisráðu- neytisins, segir að gefin hafi verið út almenn sparnað- artilmæli í ráðuneytinu og m.a. verið dregið úr utanlandsferðum á vegum ráðuneytisins. „Það er að vísu stutt síðan en ég veit að í einhverjum til- fellum hefur fólk hætt við að fara á fundi og ráðstefnur.“ Gripið til hagræðingar Svipaða sögu hefur Pétur Ásgeirs- son, skrifstofustjóri í utanríkisráðu- neytinu, að segja. Tekin hafi verið sú ákvörðun fyrir tveimur vikum að skera niður ferðalög eins og hægt er. „Línan er sú að við förum núna eingöngu í þær ferðir sem teljast vera óhjákvæmi- legar og sömu fyrirmælum hefur verið beint til sendiskrifstofanna.“ Þannig sé í hverri viku hætt við ferðir sem áður voru áformaðar. „Auk þess höfum við sent sendiskrifstofunum fyrirmæli um að grípa til allra mögulegra hagræð- ingaraðgerða í rekstri og höfum stopp- að allar framkvæmdir, viðhald og stofnkostnað.“ Jóhannes Tómasson, upplýsinga- fulltrúi samgönguráðuneytisins, segir að á dögunum hafi samgönguráð- herra fundað með forstöðumönnum stofnana ráðuneytisins og brýnt fyrir þeim að fara í saumana á öllum kostn- aði og hið sama hafi verið gert innan ráðuneytisins sjálfs. „Menn hafa m.a. verið beðnir um að draga úr ferðum og það hefur beinlínis verið hætt við þátttöku í fundum og ráðstefnum eft- ir þetta.“ Dregið úr ferðum ráðuneyta Hætt við ferðir til útlanda í hverri viku

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.