Morgunblaðið - 07.11.2008, Side 18

Morgunblaðið - 07.11.2008, Side 18
18 FréttirERLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2008 ReutersTogstreita Vopnabræður McCains og Palin voru engir perluvinir. Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is MIKIL togstreita var milli aðstoð- armanna Johns McCain og Söru Pal- in síðustu vikurnar fyrir forseta- kosningarnar í Bandaríkjunum. Repúblikanar reyndu að leyna deil- um aðstoðarmannanna en þær hafa nú gosið upp á yfirborðið eftir ósigur repúblikana. Aðstoðarmenn McCains og Palin hafa nú rætt deilurnar opinskátt við fréttamenn í skjóli nafnleyndar. Þeir hafa m.a. leyst frá skjóðunni um um- deild kaup á fötum handa Palin og fjölskyldu hennar á kostnað Repúbl- ikanaflokksins sem greiddi alls 150.000 dollara, sem svarar rúmum 19 milljónum króna, fyrir fatnaðinn. Dagblaðið Los Angeles Times hafði eftir ráðgjöfum McCains að komið hefði í ljós að aðstoðarmenn Palin hefðu keypt föt fyrir allt að 30.000 dollara, 3,8 milljónir króna, til viðbótar og ætlað að láta flokkinn greiða fyrir þau. Lögfræðingur flokksins yrði sendur til Alaska til að sækja föt sem Palin hefði ekki skilað. Aðstoðarmenn Palin segja að hún hafi ekki vitað hvað fötin kostuðu og henni hafi blöskrað bruðlið. Fréttastofa Fox-sjónvarpsins skýrði frá því að þekkingarskortur Palin á nokkrum sviðum hefði einnig valdið titringi. Carl Cameron, frétta- maður stöðvarinnar, hafði eftir að- stoðarmönnum McCains að Palin hefði ekki viljað aðstoð við að und- irbúa viðtal við Katie Couric í kvöld- fréttatíma CBS-sjónvarpsins. Að- stoðarmenn McCains hefðu m.a. komist að því í kosningabaráttunni að Palin hefði ekki gert sér grein fyr- ir því að Afríka væri álfa (en ekki land) og ekki vitað hvaða lönd ættu aðild að NAFTA, fríverslunarsamn- ingi Norður-Ameríku (Bandaríkj- anna, Mexíkó og Kanada). Hermt er að aðstoðarmönnum McCains hafi einnig gramist það að Palin hafi reynt að notfæra sér stöðu sína sem varaforsetaefni til að vinna að því að hún verði forsetaefni repú- blikana eftir fjögur ár. Hún hafi t.a.m. ætlað að flytja ræðu á undan McCain þegar hann játaði sig sigr- aðan en nánasti ráðgjafi McCains hafi tekið fyrir það og sagt að ekki sé venja að varaforsetaefni flytji ræðu kosninganóttina. Aðstoðarmenn McCains hafa einnig ýjað að því að ráðgjafi Palin hafi lekið skaðlegum upplýsingum í fjölmiðla um kosningabaráttu repúblikana. Hulunni svipt af innbyrðis deilum  Aðstoðarmenn Johns McCain og Palin leysa frá skjóðunni um mikla togstreitu á milli þeirra í kosningabaráttunni  Ráðgjafar McCains gagnrýna Palin fyrir bruðl og þekkingarskort Reuters Segirðu já? Barack Obama, nýkjörinn forseti Bandaríkjanna, ræðir við Rahm Emanuel, fulltrúadeildarþingmann frá Illinois, en þeir eru gamlir vinir. Obama bað í gær Emanuel að gegna embætti skrifstofustjóra í Hvíta húsinu en það er eitt af valdamestu embættum landsins og svarar til embættis forsætisráðherra í mörgum Evrópulöndum. Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is VÆNTANLEGUR forseti Banda- ríkjanna, Barack Obama, hefur þegar skipað fólk í undirbúningsnefnd vegna valdaskiptanna 20. janúar. Fyrir henni fara John Podesta, skrifstofustjóri Hvíta hússins í tíð Bills Clinton, og tveir nánir sam- starfsmenn Obama, Valerie Jarrett og Pete Rose. Ljóst þykir að gamlir Clinton-liðar verði margir í nýrri stjórn sem gæti auðveldað Obama að láta valdaskiptin ganga vel og snurðu- laust fyrir sig. Að venju má búast við að skipt verði um fólk í allt að 4.000 embættum þegar nýr flokkur tekur við og mun öldungadeildin þurfa að samþykkja um eitt þúsund af þessum skipunum. Rætt er um að Lawrence Sum- mers, fjármálaráðherra í tíð Clintons, taki aftur við því embætti en fleiri nöfn eru nefnd. John Kerry, forseta- efni demókrata 2004, er sagður líkleg- ur utanríkisráðherra og tveir fyrrum Clinton-menn, James Steinberg og Gregory Craig, eru sagðir líklegir í embætti þjóðaröryggisráðgjafa. Obama hefur þegar beðið fulltrúa- deildarþingmanninn Rahm Emanuel frá Illinois um að taka við embætti skrifstofustjóra í Hvíta húsinu en því er oft jafnað við embætti forsætisráð- herra. Emanuel er 48 ára, hann var einn af ráðgjöfum Clintons 1993-1998 og er nú einn af valdamestu mönnum fulltrúadeildarinnar. Hann er sagður miðjumaður í stjórnmálum en ein- staklega harður í horn að taka og hef- ur oft velgt repúblikönum undir ugg- um. Eitt sinn hefndi hann sín á pólitískum andstæðingi í hálfgerðum mafíustíl með því að senda honum dauðan fisk í kassa, segir í The Los Angeles Times. Hætt er við að sumir repúblikanar líti ekki á valið á Em- anuel sem sáttahönd af hálfu Obama. Gates áfram með varnarmálin? Hugsanlegt er talið að repúblikan- inn Robert Gates verði áfram varn- armálaráðherra. Gates þykir óum- deildur en ekki er vitað hvort hann muni þiggja slíkt boð. Obama verður að feta þröngan stíg í þessum efnum. Maðurinn sem bauð sig fram til að koma á langþráðum breytingum verður gagnrýndur af mörgum dyggum stuðningsmönnum ef yfirbragð nýju stjórnarinnar þykir vera of hefðbundið. En jafnframt er ljóst að á jafn erfiðum tímum og nú fara í hönd vill hann nýta sér reynslu- boltana. Fréttaskýrandinn Peter Baker segir í International Herald Tribune að Obama verði að koma í veg fyrir að nýja stjórnin líkist ein- hverju sem nefna mætti „þriðja kjör- tímabil Bills Clinton“. Obama velur fólk í nýja forystusveit Notfærir sér krafta fyrrverandi liðsmanna Bills Clinton og líklegt að repúblikaninn Gates verði áfram með varnarmálin Í HNOTSKURN »Obama hyggst hafa aðmestu aðsetur í Chicago næstu vikurnar. Óljóst er hvort hann sækir efnahags- málafund stórveldanna um miðjan mánuðinn. »Obama vill að þingið sam-þykki á næstu vikum að veita 100 milljörðum dollara til opinberra framkvæmda og til að aðstoða fjölskyldur, borgir og sambandsríki. Svo gæti farið að samþykkt verði lægri fjárveiting, um 61 millj- arður. ; < < ; ; ; ; ; ; ; ; ; ; ; ; ; ; ; ; < ; < ; ; ; < ; < ; ; < ; ; < ; ; < ; ; < ; < ; ; < < ; < < < < < < < ; < ; < < ; ; < < < < < < < ; < < < < < < < < < < < < < ; $$=/ $$   "48" $ >  5"* "(? @:$ ?5$ "$5  5@"1$8$"8$" ('6 $$ :!$ $5"("5 " ($    ! "  #  $ %"&' ( )   * + # ,,-.- */  &00 0 ,- %1  2 3 ,4- 0 530 ,-' $%&'()%  *+,%*',-.                                                   $$=/ $$  !" A1B=-$ #$%&" '" 6   *   C;.D0E3F;;0#/.%0%&,9DF#0D;9#AGB               ! "   #  $ %  &   '                ()&*"() '' +,- +,./,,,+01+0/20.. 34&"! 5 5 /2 2 6 7 6 2 2 2/ / 6 . ,8- /,,-      )  !!   /,,.9 :': 3A7D<0#A7;B,%%,  % '*4;"':=>4?'*;=&:!@ &&"A"B@()&* () '' C" 8 A@'"'D:!E' "''() ''8 F"&;" C"  !@!" Verður Sarah Palin næsta forsetaefni repúblikana? Palin er á meðal fimm eða sex manna sem þegar eru taldir líklegir til að sækjast eftir því að verða for- setaefni repúblikana eftir fjögur ár. Þeirra á meðal er Mitt Romney, fyrr- verandi ríkisstjóri Massachusetts sem beið ósigur í síðustu forkosn- ingum. Rick Perry, ríkisstjóri Texas, Newt Gingrich, fyrrv. forseti fulltrú- deildar þingsins, og Bobby Jindal, ríkisstjóri Louisiana, eru einnig sagð- ir hafa sett stefnuna á Hvíta húsið. S&S GEORGE W. Bush forseti óskaði í gær Barack Obama til hamingju og fór hlýjum orðum um demó- kratann sem hefði brotið blað í sögu þjóðarinnar. Hét Bush því að valdaskiptin í janúar myndu ganga vel fyrir sig. Heimildarmenn segja að Obama muni gæta þess vel að fara ekki inn á valdsvið Bush þær vikur sem eftir eru af starfstíma hans, gæta verði þess vandlega að ekki séu tveir menn að reyna að gegna forsetaembættinu samtímis. En jafnframt vill Obama tryggja að honum verði ekki kennt um að- gerðir sem Bush stendur fyrir. Þess vegna vill hann gott samráð en innan hóflegra marka. kjon@mbl.is Bush heitir samráði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.