Morgunblaðið - 07.11.2008, Blaðsíða 19
SÞ leita lausna á
átökunum í A-Kongó
UPPREISNARMENN í Austur-
Kongó hafa bundið enda á vopnahlé
sem leiðtogi þeirra, Laurent
Nkunda, lýsti yfir í síðustu viku. Síð-
degis í gær staðfesti talsmaður frið-
argæslu SÞ að uppreisnarmenn und-
ir stjórn Nkunda, hefðu náð
yfirráðum í tveimur þorpum á af-
skekktu landsvæði í A-Kongó sem yf-
irvöld og friðargæsluliðar hafa ár-
angurslaust reynt að ná á sitt vald á
liðnum árum.
Að sögn mannréttindasamtakanna
Human Rights Watch hafa uppreisn-
armenn og stjórnarhermenn orðið
valdir að dauða yfir 20 manna í átök-
um í bænum Kiwana undanfarna tvo
daga. Í gær náðu uppreisnarmenn
yfirráðum í þorpi norður af Kiwanja
eftir átök við stjórnaherinn.
Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri
SÞ kallaði í gær eftir tafarlausu
vopnahléi í landinu og hvatti vopnaða
hópa sem hafa átt þátt í átökunum til
að veita viðleitni til stjórnmálalegra
lausna stuðning sinn.
Ki-moon verður á fyrirhugðum
fundi Afríkuríkja í Kenía í dag þar
sem reynt verður að komast að frið-
arsamkomulagi. Búist er við að Laur-
ent Kabila, forseti A-Kongó, verði á
fundinum auk forseta Rúanda, Paul
Kagame sem þykir hafa nokkurt vald
yfir leiðtoga Tutsi-uppreisnarmanna,
Laurent Nkunda. jmv@mbl.is
Stríðandi fylkingar bönuðu 20 óbreyttum borgurum í gær
AP
Átök Börn bíða eftir matargjöfum
nálægt borginni Goma í A-Kongó.
Í HNOTSKURN
»Átökin í Austur-Kongó erudrifin áfram af þjóðarhatri
sem enn lifir síðan árið 1994 þeg-
ar hálf milljón tútsa var drepin í
Rúanda.
»Leiðtogi uppreisnarmanna,Laurent Nkunda, segir
stjórnvöld A-Kongó ekki hafa
varið tútsa sem flýðu þjóð-
armorðin.
»Gagnrýnendur segja Nkundastrengjabrúðu tútsa sem nú
eru við völd í Rúanda.
Fréttir 19ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2008
DMÍTRÍ Medvedev, forseti Rúss-
lands, hefur tilkynnt að nýjum rúss-
neskum eldflaugum verði komið
fyrir í Kalíníngrad-héraði, sem til-
heyrir Rússlandi og er milli Lithá-
ens og Póllands. Medvedev segir
þetta nauðsynlegt til að svara fyr-
irhuguðu eldflaugavarnakerfi
Bandaríkjamanna í Austur-Evrópu.
bogi@mbl.is
;C..%H.#EHD<3D,G&,,;%,#H;30
;6""$> $$ $I@:8$8 (> J!$:?$
"$?$ (8 $:$5@$$$$ $'':8$$2
$$85J!$:E4$:;6""$"@$(8!$*
;6""$:" $:$5@$ $?5
70
8* +'0 %*8 93 : ;
&,&%HD<3D,G&,;
$44 G!& BH 4 '*I
&*@& :D:@F"; &;';'D *HD
%DB 4!C ''"DA"BD'"''"
4C"!&( B4>4! @" @
@F"=:D:B:&*@& :D:
;&& '*"8
I/1
/ * 3+ * 0 2 7J6 <>/.,I-,,
K : 8$68.,,D
.'1 "$-.,D
H:" 68*" 8
; C . . D , % <
&;';'D *
K$44& '*L
MNO
PN MQ
R
<+ /,,
E 4*GD"
@& :D @DB"''"
4 '*I/1
+ *
=
* 0 2*
;:LM
EBD! B
H C @F"
D D'&*@& :D:
E4$:
S '* ;"'G!& B
"4 C !4(E4!)B
Eldflaugavörnum svarað
AP. Timpu | Smáríkið Bútan sem liggur í Himalaja-
fjöllum fékk nýjan konung í gær eftir að beðið hafði
verið eftir heillavænlegasta andartakinu í tvö ár.
Klukkan 8.31 á fimmtudagsmorgun krýndi Jigme Sin-
gye Wangchuck son sinn, Jibme Khesar Namgyal
Wangchuck, konung með hrafnakórónunni og hlaut
hann þar með titilinn Druk Gyalpo eða Drekakon-
ungur. Sonurinn hefur reyndar starfað sem konungur
síðastliðin tvö ár en samkvæmt ráðleggingum stjörnu-
spekinga var beðið með krýninguna þar til í gær.
Flestir Bútanar trúa því að konungarnir séu ástæðan
fyrir því að þjóðin, sem er um 700.000 manns, hafi hald-
ið fullveldi sínu og menningu þrátt fyrir að landið sé
umlukt risaþjóðunum Kína og Indlandi.
AP
Hátíð Bútanar í þjóðlegum klæðnaði dansa fyrir framan 17. aldar virki sem er bæði aðsetur yfirvalda og klaustur.
Krýningarhátíð haldin
í Himalaja-fjöllunum
Bútan er síðasta búddíska konungríkið með sjálfs-
stjórn. Ríkið er eitt einangraðasta ríki heims en hef-
ur í auknum mæli opnast umheiminum og voru
fyrstu lýðræðislegu kosningarnar haldnar í mars
síðastliðnum. Nútímavæðing Bútan hefur verið tek-
in í hægum skrefum og var sjónvarp og net leyft ár-
ið 1999. Það er yfirvöldum mikilvægt að vernda
menningararfleifð, sjálfsmynd og náttúru landsins
og er spornað við byltingarkenndum breytingum.
Síðasta sjálfstæða konungsríkið
LILIAN Osano heldur á nýfædd-
um syni sínum, Barack Jeremy
Obama, á sjúkrahúsinu í Kisuma í
Kenía. Daginn eftir að Barack
Obama var kjörinn næsti forseti
Bandaríkjanna var helmingur allra
nýfæddra barna á Kisumu-
sjúkrahúsinu annaðhvort nefndur
Barack eða Michelle Obama. Kis-
umu er nálægt heimaþorpi föður
Obamas þar sem Obama-hjónin
eru í heiðri höfð eins og víðar í
Kenía. Mæðurnar vonast til að
nafngiftirnar verði börnunum
hvatning til metnaðar í lífinu.
jmv@mbl.is
Nafnið Barack Obama
hvetji til metnaðar í lífinu
AP
BREYTINGAR á loftslagi í sunnan-
verðum Noregi valda því að vetur
eru að verða rakari en áður og eru
það slæm tíðindi fyrir læmingja, að
sögn vefsíðu BBC. Venjulega hjara
læmingjar af veturna með því að
halda sig undir sterkri snjóþekju en
nú vantar skjólið.
Vísindamenn segja að nú séu
reglulegar, þriggja til fimm ára
sveiflur á stofnstærðinni hættar að
mælast, nú séu þær óreglulegar.
Þegar lítið rignir um veturinn get-
ur þurft að nota snjóplóga til að ýta á
brott fjölmörgum hræjum dauðra
læmingja sem bílar hafa ekið yfir á
þjóðvegum.
Þá áttu dýrin til að stökkva fram
af háum bökkum út í ár og vötn í ör-
væntingarfullri fæðuleit, hegðun
sem kom af stað þjóðsögum um að
læmingjahjarðir fremdu hópsjálfs-
víg. Þannig varð til hugtakið læm-
ingjaárátta.
Læmingjar eru mikilvæg fæða
fyrir rándýr eins og refi og uglur
þegar hjarðirnar eru stórar. Er talið
að breytingarnar séu farnar að hafa
áhrif á viðkomu umræddra tegunda.
kjon@mbl.is
Læmingjar í vanda vegna rigninga