Morgunblaðið - 07.11.2008, Page 20

Morgunblaðið - 07.11.2008, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2008 Á SÍÐASTA áratug hófu Norðmenn að dæla koldíoxíði niður í vatnsleið- arann Utsira, í því skyni að binda það til langframa. Með Brundtland-skýrslunni svo- kölluðu, stefnumótunarskýrslu á vegum Sameinuðu þjóðanna, sem nefnd var eftir Gro Harlem Brundt- land, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, var farið að gefa meiri gaum að loftslagshliðinni og hvernig mætti sporna gegn frekari losun gróðurhúsalofttegunda. Svona rekur Erik Lindeberg, sér- fræðingur við olíurannsóknarstofn- unina SINTEF í Þrándheimi, upp- haf þess að Norðmenn fóru að undirbúa niðurdælingu koldíoxíðs til varðveislu í þúsundir ára. Lindeberg, sem er einn helsti sér- fræðingur Norðmanna á þessu sviði, segir að í upphafi hafi rannsóknirnar verið smáar í sniðum, en að í dag sé árlega varið um 250 milljónum norskra króna, um 4,7 milljörðum króna, til þróunar á þessu sviði. Þekkingunni hafi fleygt fram og að nú sé að finna sérfræðinga á sviði kolefnisförgunar í Noregi. Öryggið mjög mikilvægt Á sama tíma og Lindeberg telur réttlætanlegt að grípa til róttækra aðgerða í loftslagsmálum leggur hann þunga áherslu á mikilvægi þess að geymsluaðferðirnar séu öruggar. Kjarnorkuiðnaðurinn hafi á sínum tíma brennt sig á slysum við meðferð kjarnorkuúrgangs og að þótt ólíku sé saman að jafna verði að vera tryggt að koldíoxíðið leki ekki. Neytendur muni ekki sætta sig við hærra orkuverð vegna auka- kostnaðar við förgun sem ekki virki. Með samsetningu jarðlaganna í Norðursjó í huga telur Lindeberg aðferðina sem notast sé við á Sleipn- issvæðinu örugga, nokkuð sem sé lykilatriði í ljósi þess að horfa þurfi til þúsunda ára við kolefnisförgun. „Við verðum að geyma koldíoxíðið í þúsundir ára til að vera viss um að við séum ekki að ýta vandamálinu inn í framtíðina. Lágmarkið við hönnunina ætti að vera frá 4.000 og upp í 10.000 ár,“ segir Lindeberg, sem bendir þó á að við slíka geymslu verði aldrei hægt að koma í veg fyrir leka með 100 prósent fullvissu. „Það er útilokað að spá fyrir um það með fullkominni vissu að Utsira-svæðið muni reynast svo þétt í svo langan tíma. Það þarf því að fylgjast vel með niðurdælingunni og geta gripið til varaáætlunar, með aðferðum sem þegar eru til staðar. Eftirlit með förgunarsvæðunum er því afar mikilvægt. Við þurfum að geta greint minnstu breytingar á förgunarsvæðunum, en eins og stendur eru í undirbúningi tilraunir á tveimur svæðum í Noregi þar sem grannt verður fylgst með koldíox- íðsleka úr gleypnu bergi. Fyrirtækið Gasnova hefur stutt við þessi verk- efni. Kolefnisförgunin er mikilvæg- ari en ferlið við að aðskilja koldíox- íðið.“ Eins og aftur að ísöldinni Tíu þúsund ár eru langur tími, mjög langur tími, eða um það bil sá tími sem liðinn er frá síðustu ísöld. Inntur eftir því hvers vegna hann horfi til svo langs tíma í líkönum sín- um segist Lindeberg ráðgera að mannkynið muni halda áfram að brenna jarðefnaeldsneyti í minnst 500 ár til viðbótar. Olían sem orkugjafi muni renna sitt skeið á enda á þessari öld, líkt og eigi við um jarðgasið, en hinar gríð- armiklu kolabirgðir duga í aldir. Verði öllum þessum kolum brennt segir Lindeberg að ráðgera megi að hlutfall koldíoxíðs í andrúmsloftinu muni fara úr hátt í 400 milljónustu hlutum nú, í um 1.550 milljónustu hluta, sem aftur muni hafa þær af- Stóriðnaður í pípunum Kolefnisförgunin verður að duga í þúsundir ára til að hafa tilætluð áhrif Hugsjónamaður Erik Lindeberg. Í HNOTSKURN »Lindeberg telur hefð-bundnar gasleiðslur munu nýtast afar vel við niðurdæl- ingu koldíoxíðs í jarðlögin. »Statoil sér um reksturSleipnissvæðisins, en með- eigendur að vinnslunni eru Exxon, BP (British Petroleum) og franska orkufyrirtækið Total. Ljósmynd/Dag Myrestrand Yfir öldunum Frá Utsira-svæðinu. Ljósmynd/Baldur Arnarson Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is Þ egar hilla fer undir lok olíuvinnslunnar í Noregi gæti nýr og jafnvel verð- mætari iðnaður tekið við, iðnaðurinn í kring- um niðurdælingu og varðveislu kol- díoxíðs í jarðlögum undir hafsbotni. Norðmenn hafa um tólf ára skeið dælt niður yfir tíu milljónum tonna af koldíoxíði í gleypin sandsvæði á Utsira, hafsvæði um 250 km vestur af Noregi, eða sem nemur rúm- lega tvöfaldri árs- losun Íslendinga. Gangi bjartsýn- ustu spár eftir mun umfang nið- urdælingarinnar margfaldast á næstu áratugum og heildartekjur af iðnaðinum nema 120.000 millj- örðum norskra króna, að mati Erik Lindeberg, sérfræðings við SIN- TEF olíurannsóknarstofnunina í Þrándheimi. Norðmenn bera sem olíuvinnslu- þjóð ábyrgð á mikilli losun koldíoxíðs í andrúmsloftið, innan lands sem ut- an, og er það mat Lindeberg (sjá greinina að neðan), að Norðmönnum beri siðferðisleg skylda til að þróa aðferðafræðina við kolefnisförgun, í því skyni að sporna gegn neikvæðum áhrifum frekari losunar. Að hans mati er niðurdæling af þessu tagi ódýrasta og raunhæfasta leiðin til að sporna gegn loftslags- breytingum til langframa og að af þeirri einföldu ástæðu muni hún verða ofan á. Hugmyndin sé að flytja koldíoxíðið í fljótandi formi í pípum, einsog þeim sem nú flytji gas, alla leið frá landi og að förgunarstöð- unum. Skilyrðið fyrir því að þessi iðnaður geti orðið að veruleika sé að fyrir hendi sé einhverskonar fjár- hagsleg sekt eða aukagjald fyrir los- un koldíoxíðs út í andrúmsloftið. Af nauðsyn, ekki hugsjón Til að byrja með hafði niðurdæl- ingin í Utsira ekkert með loftslags- mál að gera. Umrætt svæði er vatns- leiðari á um 1.000-1.200 metra dýpi, um 1.400 metra fyrir ofan jarðgas- forðann á Sleipnissvæðinu, næst- mesta gasvinnslusvæðinu í Norð- ursjó á eftir Trollsvæðinu. Miðað við núverandi gengi nema tekjur af gasvinnslunni á Sleipn- issvæðinu hátt í 1,5 milljónum ís- lenskra króna á mínútu og því ekki að undra að í upphafi skuli allt kapp hafa verið lagt á að koma magni kol- díoxíðs í jarðgasinu niður í það horf sem gerð er krafa um, úr 9% í 2,5%. Það réð úrslitum í þessu samhengi að Statoil (síðar StatoilHydro) þurfti frá árinu 1991 að borga 78 norska aura fyrir hvern rúmmetra af kol- díoxíði sem losað var í andrúmsloftið, gjald sem þýddi að það borgaði sig að dæla koldíoxíðinu ofan í Utsira (sjá umfjöllun til hliðar). Það gjald var hátt á þeim tíma, eða um það bil jarðgasverðið í Evrópu um það leyti, og hugmyndin sú að það yrði hvati fyrir fyrirtæki til að draga úr losun sinni. Nær skatturinn nú til um 68% af heildarkoldíoxíðslosun Norð- manna. Til að vinna bug á þessu vandamáli Undir hafbreiðuna  Tekjur af förgun koldíoxíðs undan Noregsströndum gætu orðið 120.000 milljarðar norskra króna  Utsira-svæðið gæti bundið sem svarar núverandi koldíoxíðslosun Evrópusambandsins í 600 ár Ljósmynd/Statoil/Alligator film/BUG Jarðlögin Meginleiðslurnar frá Sleipni A liggja niður í gasforðabúrið. Ljósmynd/Statoil/Øyvind Hagen Yfir Utsira Hreinsibúnaðurinn er á palli, hér í vari á bak við Sleipni A. Ljósmynd/Statoil/Harald Pettersen Á opnu hafi Gasvinnslupallurinn Sleipnir A er tengdur við þrjár einingar. Jón Steinar Guðmundsson Ljósmynd/Statoil/Alligator film/BUG Til geymslu Leiðslan efst til hægri liggur í geymslusvæði fyrir koldíoxíð. Ný staða í norðri

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.