Morgunblaðið - 07.11.2008, Síða 22

Morgunblaðið - 07.11.2008, Síða 22
22 Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2008 Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is En hvað skyldi taka við hjáhonum? Jú, hann ætlar ánæstu mánuðum og árumað ljúka rannsóknum og skýrslugerð, sem tengjast ævistarf- inu. Miltisbruni, lamba- og kálfa- dauði og riðuveiki koma þar við sögu, enda ævistarfið og áhugamálin sam- ofin. Sjálfsagt fær hann líka aukinn tíma til að kveða rímur með félögum sínum í Iðunni og grúska í þjóðlegum fróðleik. Hef lítið gert af því að taka frí um dagana Sigurður hóf störf sem dýralæknir á Tilraunastöðinni á Keldum árið 1963 og var lengst hjá Sauð- fjárveikivörnum og sauðfjár- sjúkdómanefnd. Síðan sérfræðingur á Keldum samhliða rannsóknum á sauðfjár- og nautgripasjúkdómum. Fyrir tveimur árum fluttist starf Sig- urðar undir Matvælastofnun og flutti hann þá með stofnuninni til Selfoss þar sem Sigurður hefur búið síðustu ár ásamt sambýliskonu sinni, Ólöfu Erlu Halldórsdóttur frá Búrfelli í Grímsnesi. „Ég er búinn að segja upp störfum en það er erfitt að hætta því vinnan hefur gefið mér svo mikið. Þar sem ég hef lítið gert af því að taka frí um dagana, er ég í leyfi núna og verð næstu vikurnar. Ég er þó að vinna í ýmsum vanrækslusyndum þessa dagana,“ segir Sigurður. „Það er talsvert af verkefnum á borðinu mínu sem þyrfti að vinna og kannski eiga fáir aðrir en ég auðvelt með að fara inn í þetta. Þessi gögn tengjast aðallega baráttunni gegn sauðfjársjúkdómunm. Saga sauð- fjárveikivarna er í skjaladóti, kössum og myndabunkum í mínum fórum. Þetta hefur safnast saman og fylgt mér lengi. Mér tókst reyndar í tví- gang að forða því að þessir kassar lentu á öskuhaugunum. Ég er með rannsóknarverkefni í gangi um kálfa- og lambadauða og þarf að gera upp ýmislegt frá liðnum árum sem ekki hefur verið tími til að sinna. Þá er ég langt kominn með að vinna skýrslu um miltisbrunastaði sem ég hef verið að mæla upp. Við höfum upplýsingar um miltis- brand á um hundrað stöðum og erum langt komnir með að merkja þessa staði. Ég hef haft það að leiðarljósi að betra sé að merkja fleiri staði en færri, því þetta virðist lifa endalaust. Hér á landi höfum við dæmi um virkni miltisbrands eftir 130 ár og í Skotlandi er dæmi um að hann verði 500 ára. Ég hef engar áhyggjur af því að hafa ekki nóg fyrir stafni og vil helst geta gert grein fyrir ýmsu sem ég hef verið að vinna að. Svo er aftur spurning hvort nokkrir peningar verða til þess í þessu hallæri sem nú er.“ Stefnir í óefni ef farið er ógætilega Riðuveiki hefur ítrekað skotið upp kollinum á liðnum áratugum og hefur Sigurður yfirleitt verið kallaður til þegar sjúkdómurinn hefur minnt á sig. Við starfslok sér hann ýmis hættumerki og óttast að menn séu farnir að gefa eftir í baráttunni. „Árið 1978 var byrjað á aðgerðum gegn riðunni, sem þá var komin lang- leiðina með að leggja landið undir sig. Núna er staðan hins vegar þann- ig að við erum komin vel á veg með að útrýma henni. Það eru þó blikur á lofti og ég ótt- ast að farið verði að slaka á vörnum. Það má alls ekki gera of snemma þegar svona sjúkdómar eiga í hlut. Menn mega ekki fara ógætilega, þá stefnir í óefni. Ef varnargirðingar verða lagðar niður of fljótt og flutn- ingar leyfðir fram og aftur um landið þá verður fjandinn laus. Við erum komin vel á veg með að uppræta veikina og ég vil ekki upplifa það að ár- angurinn sem náðst hefur með mikilli vinnu og fórnum verði að engu.“ Sérvitur ágætlega og vitur Lengst af bjó Sigurður með eig- inkonu sinni, Halldóru Einarsdóttur, og fjórum börnum í gamla húsinu í Grafarholti. Þarna var í eina tíð höf- uðbýli og ræktarleg túnin teygðu sig í átt að Keldum. Nú hefur verið þrengt að þessu húsi, Vesturlands- vegurinn við húsgaflinn og byggðin á næsta leiti. „Ég á enn húsið í Grafarholti og hef haft þar innhlaup þegar ég er í bænum. Undanfarið hef ég velt því fyrir mér að selja því ekki fer ég með það yfirum. Húsið er utan skipulags, en það er meira en hundrað ára gam- alt svo það er ekki hlaupið að því fyr- ir yfirvöld að ryðja því í burtu og ekki má rífa það nema með sérstökum til- færingum. Þarna bjó fyrst Björn Bjarnarson, merkur maður á sinni tíð. Hann var meðal annars hreppstjóri í Mosfells- sveit og þingmaður um tíma, sérvitur ágætlega og vitur. Björn umskrifaði gjarnan ljóð góðskáldanna og hafði margt við þau að athuga. Grafarholt var höfuðból og við- komustaður manna sem voru að koma í kaupstaðinn. Þarna áðu menn og það var í nógu að snúast.“ Börn Sigurðar hafa gert garðinn frægan í ýmsum íþróttagreinum og eru margfaldir meistarar; Sigurður og Sölvi í hestamennsku, Ragnhildur í golfi og Einar Sverrir í því sem nefnist á ís- lensku þolreið á mót- orhjólum. Ekki gefur Sigurður mikið fyrir Ævistarfið og áhugamálin samofin Morgunblaðið/Árni Sæberg Kvæðamenn Sigurður Sigurðarson dýralæknir og Steindór Andersen kveða rímur af Ströndum á fundi í Iðunni í kvöld. „Ég hef alltaf haft gaman af fornum fróðleik íslenskum og skrýtnum hlutum,“ segir Sigurður. Sigurður dundar sér við kveðskap, en segist þó hafa meira gaman af góðum vísum eftir aðra. Hann rifj- aði upp gamla vísu eftir Egil Jón- asson á Húsavík og segir hana hafa komið í hugann þegar fjár- málakreppan skall á. Í morgun bað ég Guð af gæsku sinni, að greiða ykkur þetta sem mér ber. Hann sagði byrstur þú átt ekkert inni í ávísanareikningi hjá mér. Sigurður hefur oft á afmælum og öðrum tyllidögum kastað fram vís- um. Eftirfarandi er ort til afa- stráks, sem átti fjögurra ára af- mæli: Sá er varla einn einn, sem á þig litli sveinn sveinn. Fínni ekki finnst neinn, fjögra ára gimsteinn. Loks nýleg vísa úr ferð á vegum Bædaferða suður á Ítalíu, þar sem yndislegt umhverfið við Garda-vatn var meðal annars skoðað. Ástarþrá og ljúfust lög, lífga karla stóra og smáa. Hröð eru kvenna hjartaslög, hér við Garda-vatnið bláa. Þú átt ekkert inni að hann snúi sér að þessum greinumþegar hægist um og þegar hann er spurður hvort árangur sé genatengd- ur, segir hann svo ekki vera. „Þetta er spurning um áhuga og nenning. Ég fór aldrei í golfið sjálfur svo heitið geti þó svo að golfvöllurinn sé rétt hjá húsinu mínu í Grafarholti. Ég labbaði stundum með konunni minni og dró kerruna fyrir hana, hún var virk í Golfklúbbi Reykjavíkur, hún Halldóra mín blessuð.“ Gefur mér mikið Þjóðlegur fróðleikur hefur alltaf verið mikið áhugamál Sigurðar og hann hefur grúskað í ýmsu um dag- ana. „Ég hef alltaf haft gaman af fornum fróðleik íslenskum og skrýtn- um hlutum. Það hefur líka veitt mér mikla gleði hversu mörgu skrýtnu fólki ég hef kynnst í lífinu. Það er sjálfsagt vegna þess hversu skrýtinn ég er sjálfur.“ Sigurður hefur í tæp tuttugu ár verið meðlimur í Kvæðamannafélag- inu Iðunni. Kveðskapur og rímur eru mikið áhugamál Sigurðar og á fundi í félaginu í kvöld kveða hann, Steindór Andersen og fleiri íslensk kvæðalög. „Þetta gefur mér mikið. Við kom- um saman mánaðarlega, æfum og lærum kvæðalög. Þarna eru ekki bara skrýtnir, gamlir karlar. Á þess- um æfingum er fólk af báðum kynj- um og á öllum aldri, allt niður í kornabörn sem láta í sér heyra. Við hittumst einmitt í kvöld, föstu- dag, klukkan 20 í Gerðubergi. Þá ætl- um við að kveða rímur af Ströndum með kvæðalögum Strandamanna. Þú ættir að líta inn,“ segir Sig- urður að lokum við blaðamann. „Ertu ekki hálfskrýtinn eins og fleiri?“ Nafn Sigurðar Sigurðarsonar dýralæknis hefur í ára- tugi verið tengt baráttu gegn sauðfjársjúkdómum og riðuveiki í sauðfé kemur þá fyrst í hugann. Nú er komið að tímamótum hjá Sigurði og fyrr í vikunni voru honum þökkuð góð störf við starfslok. Viltu njóta efri áranna til fullnustu? Þá erum að gera að temja sér jákvætt við-horf, halda streitunni í lágmarki, reykja ekki en drekka eitt vínglas öðru hverju. Og já, hafðu góðar tekjur og forðastu króníska sjúk- dóma. Þannig er uppskrift að farsælu ævikvöldi samkvæmt könnun sem kynnt er í nýjasta hefti tímaritsins Journal of Gerontology: Medical Sciences. Þó að ráðin séu flest einföld virðast alltof fáir fylgja þeim. Rannsóknin, sem fram- kvæmd var af Portland-háskólanum auk ann- arra stofnanna, spannar heilan áratug þar sem fylgst var náið með tæplega 2.500 kanadískum eldri borgurum. „Á marga þá þætti sem spila inn í er hægt að hafa áhrif á unga aldri og fram á miðjan aldur,“ segir David Feeny, einn rann- sakendanna sem starfar við Keiser-heilsu- stofnunina. „Þó að þessar niðurstöður gefi að margra mati auga leið erum við engu að síður búin að fá vísindalegar sannanir fyrir því hvaða þættir það eru sem hafa mest áhrif á góða heilsu á efri árum.“ Um 8% þátttakenda í rannsókninni voru við hestaheilsu þegar henni lauk. Um 47% nutu ekki jafnmikilla lífsgæða. 36% létust á rannsóknartímabilinu og 9% voru komin á stofnun að henni lokinni. „Þó að rannsóknin hafi eingöngu verið framkvæmd á Kanadamönnum má yfirfæra niðurstöður hennar til allra íbúa hins iðn- vædda heims,“ segir Bentson McFarland öldr- unarlæknir. Uppskrift að farsælu ævikvöldi Morgunblaðið/ÞÖK Mikilvægt Jákvæðni skiptir öllu máli vilji eldra fólk halda líkamlegri jafnt sem andlegri heilsu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.