Morgunblaðið - 07.11.2008, Side 26

Morgunblaðið - 07.11.2008, Side 26
26 UmræðanBRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2008 Ég er bjartsýn ÞEGAR ég flutti heim frá Danmörku fyrir ellefu árum voru Danirnir að hvetja mig til að búa þar áfram og spurðu mig af hverju í ósköpunum ég væri að flytja aftur til Íslands. Ég svaraði þeim til að mér líkaði mjög vel í Danaveldi en landið mitt kallaði svo sterkt á mig heim, að ég yrði að fara. Fósturjörðin mín væri svo tengd mér, bæði andlega og lík- amlega, fólkið mitt, fallegu börnin þar og íslenska þjóðarsálin, hreina loftið, fjöllin, fossarnir, vötnin og heiðarnar, grasið græna, blái tæri himinninn, rokið og hressandi rign- ingin, saklausa villta náttúran og bara allt sem væri íslenskt togaði í mig heim. Þeir skildu þetta ekki og sögðust ekki vera svona nátengdir landinu sínu og hálfpartinn öfund- uðu mig fyrir svona mikla ættjarð- arást. Fyrir ellefu árum hafði Ísland saklausara yfirbragð en nú, eitur- lyfjaneysla var mun minni, skemmt- analífið var meinlausara, næturlífið var öruggara, manngildið réð meira ríkjum, álverin voru færri og hús- eignir voru á eðlilegu verði. Í dag er Ísland, sem sumir segja að heiti í raun ekki land ísa heldur land Ísaks eða land Guðs, dálítið mikið breytt frá því sem var, það verður að segj- ast eins og er. Vorum við svona? Undanfarin ár átti alls staðar að græða, notfæra sér fólk og ástandið, sumir hefðu selt ömmu sína hefðu þeir komið henni í verð. Sömu fyr- irtækin voru stofnuð aftur með nýju nafni, fólki sagt upp, starfsmenn einskis metnir, bara hagnaðurinn skipti máli. Afdalabóndi með rollurnar sínar rólegur úti í haga fékk allt í einu kauptilboð upp á hundruð milljóna fyrir landið sitt. Maður sem aldrei hafði haft áhuga á peningum var nú tek- inn upp í græðgislest- ina sem rúllaði hratt áfram, tunguliprir menn tóku allt sem á vegi þeirra varð, augun skutu gneistum af græðgi. Afdalabóndinn eignaðist fullt af pen- ingum en tapaði land- inu sínu, andleg verð- mæti bóndans voru þurrkuð út, farin. Það átti að græða feitt og verða rík, álver var reist. Útlendir verka- menn fluttir inn, íslenskir karlar eins og útspýtt hundsskinn, allir á kafi í yfirvinnu, stressaðir, fúlir og dauðþreyttir. Prestur einn talaði um aukningu á hjónaskilnuðum vegna vinnuálagsins í landinu undanfarin ár. Karlarnir væru svo þreyttir í lok vinnudags að þeir hefðu ekkert að gefa þegar heim væri komið, hrytu bara fram á imbakassann. Vorum við virkilega ánægð svona? Nýir tímar kalla á breytta hugsun. Ég veit um iðnaðarmenn sem vilja fá aftur eðlilegt vinnuálag eins og var fyrir nokkrum árum. Hvernig væri nú að hægja á vinnuæðinu, eignast minna af dauðum hlutum og fá fleiri gleðistundir? Hvað með mun styttri vinnudag fyrir iðnaðarmenn hér eins og í Danmörku og Noregi eða frá kl. 7 til 15? Hvað með styttri vinnudag fyrir alla?Við þurfum ekki að vera hrædd við ástandið núna, þetta fer allt vel. Það er vakað yfir okkur núna eins og svo oft áður. Við þurfum bara að breyta um stefnu. Nú þegar vinnan minnkar fá menn tækifæri til að gera eitthvað nýtt, hafa meiri orku til að skapa og loks meiri tíma fyrir fjölskylduna. Sumir þurfa núna t.d. að læra að slaka á. Við lærum að vera nægjusöm aftur og að eyða peningum í það sem byggir okkur upp andlega og gefur fleiri gleðistundir. Núna eigum við nefnilega að vera dugleg að byggja upp andlegan auð. Vökva gleðina okkar. Veraldlegur auður er eins og fiskur sem rennur manni úr greipum hvenær sem er. Lítil dæmisaga um lífsánægjuna: Maður nokkur var staddur við höfn í litlu sjávarþorpi. Hann sá lít- inn bát fullan af fiski koma að landi og spurði fiskimanninn hversu lengi hann hefði verið að veiða þetta magn. „Smástund,“ svaraði fiski- maðurinn. „Hva, af hverju veiddirðu þá ekki meira?“ spurði maðurinn. „Ég þarf ekki meira, þetta nægir fjölskyldunni vel.“ „Hvað gerirðu þá við tímann þinn?“ spurði maðurinn. „Ég lifi góðu lífi, ég sef fram eftir, fiska dálítið, leik mér við börnin mín, hvíli mig og kela við konuna mína, rölti út á kvöldin, hitti fólk og spjalla, gríp í gítarinn og syng með þeim.“ Aðkomumaðurinn vildi gefa þessum einfalda manni góð ráð og hvatti hann til að vera lengur úti á sjó, veiða meira, kaupa fleiri báta, setja upp verksmiðjur, flytja til borg- arinnar og græða miklu meira. „Þetta tekur þig svona 20-25 ár. „En hvað svo?“ spurði fiskimaðurinn. „Þá breytirðu fyrirtækinu í hlutafélag og ferð á verðbréfamarkað, selur og stendur uppi moldríkur!“ „Já, en hvað svo?“ spurði fiskimaðurinn. „Nú þá geturðu flutt aftur í litla bæ- inn þinn, sofið fram eftir á morgn- ana, fiskað dálítið, leikið við barna- börnin, hvílt þig með konunni og kelað við hana, rölt niður í bæ á kvöldin, hitt fólk og spjallað, leikið á gítarinn og sungið með fólkinu.“ Marta Eiríksdóttir skrifar um hina raunverulegu lífs- fyllingu Marta Eiríksdóttir » Það er vakað yfir okkur núna eins og svo oft áður. Við þurfum bara að breyta um stefnu. Höfundur er kennari www.pulsinn.is SEM foreldrar könnumst við vel við þá tilfinningu að við vitum ekki alveg hvað er að gerast í heimi barnanna okkar og sama hvað við reynum þá heltumst við fljót- lega úr lestinni. Þegar við náum loks- ins að skilja styttingar á msn- og sms- flóðinu þá koma nýjar styttingar, þeg- ar við höfum loksins lært einn texta hjá einum rappara þá er hann kominn úr tísku og við höfum ekki einu sinni vogað okkur inn á hinar órannsökuðu brautir netsins! Hvað getum við gert? Tölvuveröldin er heimur unga fólks- ins og besta leiðin til að kynnast þeirra heimi er að uppfæra sig, með því að hella sér út í þennan óend- anlega heim þekkingar, fróðleiks og félagsnetssíðna og því fyrr því betra. Meðalaldur íslenskra barna þegar þau fara á netið í fyrsta skipti er 7,7 ár og því er mikilvægt að við séum bú- in að kynna okkur og kenna þeim hvað er að gerast á netinu. Móðir kom til mín um daginn og sagði mér frá fimm ára dóttur sinni sem er á góðri leið með að verða „tölvunörd“. Hún kann reyndar hvorki að skrifa né lesa en er greini- lega búin að læra upp á sitt eindæmi orð sem fleyta henni áfram á netinu. Eitt sinn var amman í heimsókn og sú stutta átti sinn tölvutíma. Þær sátu inni í eldhúsi þegar sú fimm ára fer að biðja ömmu sína um að stafa nafnið sitt sem amma gerði náttúrlega sam- viskusamlega. Sú litla pikkaði inn stafina en allt í einu fóru að renna á móðurina tvær grímur. Hvað var hún eiginlega að gera? Hún lagði frá sér kaffibollann og fór til hennar og viti menn, hún var að sækja um Garfield greiðslukort í gegnum MasterCard í Kanada í nafni ömmu sinnar! Einn vinsælasti vettvangur unga fólksins eru hinar ýmsu félagsnetsíð- ur og eru Myspace og Facebook vin- sælastar hér á landi. Þegar unglingar eru spurðir hvers vegna þeir nota þessar síður þá er al- gengasta svarið að vera í sambandi við vini. Þessu svari eiga for- eldrar stundum erfitt með að kyngja og spyrja hvers vegna þau fari þá ekki út að hitta vinina, en við skulum líka muna eftir því þegar við lágum tímunum saman í sím- anum að tala við vini sem við vorum nýbúin að kveðja. Staðreyndin er sú að hver kynslóð hefur sína tækni. Góð leið til að auka samskipti foreldra og barna á netinu er að hafa þau sem vini á t.d. Facebo- ok. Þar geta foreldrar séð hverjir vin- irnir eru, hvernig samskiptin eru og hvað þau eru að bralla dagsdaglega. Sem dæmi má nefna foreldra sem tóku eftir því hjá unglingsdóttur sinni að staða hennar á facebook hafði breyst úr „single“ í „in a relations- hip“, foreldrarnir hafa eflaust getað notað tækifærið og spurt hverra manna strákurinn væri! Ef við tökum þátt í þessum heimi barnanna okkar þá erum við betur í stakk búin til að takast á við vanda- mál sem upp koma og kannski ekki síður að taka þátt í gleði og upplif- unum eins og það að kynnast strák eða stelpu sem gæti orðið síðar hluti af fjölskyldunni. Eftir stendur að mikilvægi sam- skipta fjölskyldumeðlima er óbreytt en samskiptaleiðirnar eru fjölbreytt- ari og oft og tíðum, fyrir okkur full- orðna, flóknari. SAFT og Síminn munu halda ráð- stefnu um netnotkun barna og ung- linga og ábyrgð foreldra laugardag- inn 8. nóvember kl. 10.30-14.00 á Háskólatorgi HT102 í Háskóla Ís- lands og hvetjum við alla sem hafa áhuga á þessu málefni að fjölmenna. Hlíf Böðvarsdóttir fjallar um mikil- vægi þess að for- eldrar kynni sér netnotkun barna sinna Hlíf Böðvarsdóttir » Tölvuveröldin er heimur unga fólks- ins og besta leiðin til að kynnast þeirra heimi er að uppfæra sig … Höfundur er verkefnastjóri SAFT. Hvernig heimur er heimur barnsins þíns? ÉG UNDIRRITAÐUR er einn af þeim sem stóðu að opnum borgarafundi í Iðnó mánudaginn 27. okt. síðastliðinn. Ég vil þakka þeim alþingismönnum sem þangað lögðu leið sína og reyndu að svara þeim spurningum sem upp voru bornar, jafnvel þó þeir í raun hefðu ekki nein svör frekar en aðr- ir. Þeir gerðu þó heiðarlega tilraun til að verja sína flokka og þeirra gerðir í þeim hildarleik sem nú á sér stað í íslensku samfélagi. Sum- ir alþingismenn gerðu að vísu þau leiðu mistök að reyna að nýta sér fundinn til atkvæðaveiða sem mér finnst frekar lélegt og lýsa í raun hve orðatiltækið hver er sjálfum sér næstur virðist eiga vel við. Við sem að þessum fundi stóðum erum ekki að biðja um byltingu, nýja flokka eða annað fólk til að kjósa á þessari stundu. Það verður að bíða betri tíma. Að sjálfsögðu er innan okkar raða fólk með þær skoðanir enda er þessi vettvangur ætlaður öllu fólki og gerir sem slíkur ekki upp á milli sjónarmiða. Við viljum að þeir sem eru á þingi eða í stjórn axli ábyrgð og setji fólk í forgang þegar verið er að ræða leiðir til úrbóta. Að sjálf- sögðu gerum við þá kröfu til ráða- manna, hvort sem er í ríkisstjórn, Seðlabanka eða stjórnarandstöðu, að taka ábyrgð á sinni vinnu. Ef þeir geta ekki unnið sitt starf með það að leiðarljósi að hafa velferð fólks í fyrirrúmi en ekki eigin flokka, þá vinsamlegast stígið til hliðar og fáið inn fólk sem getur unnið þessi störf og hefur bæði þekkingu og heilindi til þess. Það er sjálfsögð krafa fólks að fá að fylgjast með þegar verið er að semja um framtíð þess svo ekki sé nú talað um þegar er verið að skuldsetja fjölskyldur landsins. Ágætu ráðamenn, það er ekkert sem heitir trúnaðarmál þegar þjóðin á í hlut. Þið verið að sýna fólki traust og virðingu á þessum tímum og vera ærleg í framkomu og tali. Hættið að tala til okkar og talið við okkur. Ykkur hefur verið sent fundarboð á opinn borgarafund laugardaginn 8. nóvember kl. 13 í Iðnó. Sýnið nú dug, mætið og ræð- ið við fólk. Við erum ekki bara mótmælendur. Við erum viðmæl- endur og það er alveg hægt að tala við okkur. Hvet alla til að mæta á fundinn, sýnum samstöðu, höfum áhrif. GUNNAR SIGURÐSSON, leikstjóri. Við erum viðmælendur Frá Gunnari Sigurðssyni SEINT í september var boðað til Jafnrétt- isþings sem haldið skal annað hvert ár í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Að óbreyttu hefði þingið átt að vera í dag. Í millitíðinni dundu þau ósköp yfir þjóðina sem ekki þarf að fjöl- yrða um hér en leiddu til þess að ég ákvað að fresta jafnrétt- isþinginu um tvo mánuði. Jafnrétt- isþingið verður haldið 16. janúar 2009. Samkvæmt áður boðaðri dag- skrá jafnréttisþings verður þar fjallað um fjölmargar hliðar jafn- réttisbaráttunnar, svo sem launa- jafnrétti kynja, kynbundið ofbeldi, jafnrétti í atvinnulífi og jafnrétt- isstarf í skólum. Auk þess verða drög að framkvæmdaáætlun rík- isstjórnarinnar í jafnréttismálum kynnt á þinginu. Tilgangur þess er að gefa almenningi og fulltrúum stofnana, fyrirtækja og fé- lagasamtaka kost á að skila inn hugmyndum og ábendingum vegna framkvæmdaáætlunarinnar. Vandaður undirbúningur mikilvægur Jafnréttisþing verður ekki hald- ið svo vel sé án vandaðs undirbún- ings. Vegna gjörbreyttra aðstæðna í samfélaginu, þar sem fjöldi fyr- irtækja berst fyrir tilveru sinni og fjöldi fólks missir atvinnu sína dag hvern, þar sem stjórnvöld, stjórn- endur sveitarfélaga, ráðuneyti og stofnanir stjórnsýslunnar vinna nótt sem nýtan dag að því að móta og hrinda í framkvæmd aðgerð- um til að bregðast við og draga úr áhrifum efnahagsþrenging- anna tók ég ákvörðun um að fresta jafnrétt- isþinginu. Ég veit að við þess- ar aðstæður getur jafnréttisþing ekki orðið sá vettvangur samræðu sem því er ætlað með nýsettum lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Þá á ég ekki við innbyrðis samræður þeirra sem hvað virkastir eru í jafnréttisbar- áttunni heldur samræðu með þátt- töku sem allra flestra forsvars- manna samtaka á vinnumarkaði, fyrirtækja og stofnana sem og stjórnmálamanna og ekki síst al- mennings. Konur til aukinnar ábyrgðar Ég tel óhjákvæmilegt að þau umfjöllunarefni jafnréttisþings sem áður höfðu verið boðuð verði endurskoðuð í ljósi ástandsins. Ég tel líka algjörlega nauðsynlegt að við gerð framkvæmdaáætlunar rík- isstjórnarinnar verði tekið sér- stakt mið af breyttum aðstæðum í samfélaginu þannig að kynja- og jafnréttissjónarmið verði fléttuð inn í þá enduruppbyggingu sam- félagsins sem framundan er og tekið á því sérstaklega hvernig rík- isvaldið getur beitt stjórntækjum sínum til þess að tryggja jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna til framtíðar. Tryggja þarf fullan þátt kvenna í uppbygging- arstarfinu og að þær taki meðal annars sæti í ábyrgðarstöðum til jafns við karla þannig að sam- félagið fái notið krafta þeirra til fulls. Endurskoðuð dagskrá jafn- réttisþingsins þarf að taka mið af þessu. Jafnrétti í brennidepli Þótt jafnréttisþingi hafi verið frestað um tvo mánuði hefur starfi að jafnréttismálum ekki verið skotið á frest. Félags- og trygg- ingamálaráðuneytið og Jafnrétt- isstofa halda vöku sinni og unnið er af krafti í nefndum sem skip- aðar hafa verið til að gera tillögur um leiðir til úrbóta í ýmsum mál- um sem lúta að jafnrétti kynja. Á næstu vikum eru væntanlegar stöðuskýrslur þessara nefnda. Ég hef miklar væntingar til jafn- réttisþingsins og ætlast til að það skili árangri. Ég tel jafnframt að ný jafnréttislög hafi fært okkur öflugri stjórntæki til að beita í bar- áttunni fyrir jafnri stöðu og jöfn- um rétti kvenna og karla. Hvernig við eigum að beita þessum tækjum með sem mestum árangri verður eitt af umfjöllunarefnum jafnrétt- isþingsins. Ég treysti því að sem flestir mæti til þingsins í janúar, reiðubúnir að leggja sitt af mörk- um til þess að byggja upp réttlátt og gott samfélag fyrir alla. Jafnréttisþing 16. janúar Jóhanna Sigurð- ardóttir segir frá því að jafnrétt- isþingi hafi verið frestað »Ég hef miklar vænt- ingar til jafnrétt- isþingsins og ætlast til að það skili árangri. Jóhanna Sigurðardóttir Höfundur er félags- og trygginga- málaráðherra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.