Morgunblaðið - 07.11.2008, Side 31

Morgunblaðið - 07.11.2008, Side 31
Minningar 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2008 ✝ Halldór Lár-usson bifvéla- virki fæddist á Æsu- stöðum í Mosfells- sveit 19. apríl 1927. Hann lést á heimili sínu 31. október síð- astliðinn. Foreldrar Hall- dórs voru skóla- stjórahjónin á Brú- arlandi, Kristín Magnúsdóttir og Lárus B. Hall- dórsson. Börn þeirra eru: Margrét f. 1924, Magnús f. 1925 d. 1999, Valborg f. 1928, Tómas f. 1929, Fríða f. 1931, Gerður f. 1934 og Ragnar f. 1935, d. 2007. Sigurður B. Egilsson, f. 1921, d. 1923, var sonur Kristínar. Eftirlifandi eiginkona Halldórs er Úlfhildur Hermannsdóttir, f. 1929. Foreldrar hennar voru Her- mann Guðmundsson, f. 1897, d. dóttir f. 1986. 2. Magnús f. 1985. Halldór Lárusson var mikill íþróttamaður. Hann lagði stund á sund, frjálsar íþróttir, knatt- spyrnu og handknattleik. Hann var m.a. í handknattleiksliði Aft- ureldingar sem gerði garðinn frægan á 5. og 6. áratugnum. Hall- dór fylgdist alla tíð mikið með öll- um íþróttagreinum og sérstaklega fylgdist hann stoltur með afkom- endum sínum við íþróttaiðkun. Hann var mikið fyrir að ferðast, útivist og veiði. Halldór var alla tíð búsettur í Mosfellssveit / Mos- fellsbæ. Bjuggu þau, Halldór og Úlfhildur lengstum í Ösp. Halldór lærði bifvélavirkjun hjá Sigurði Snæland Grímssyni. Starfsferill hans var hjá Rækt- unarsambandi Kjalarnessþings, Vegagerð ríkisins, hjá Sveinbirni Runólfssyni, m.a. við gerð Blöndu- virkjunar. Halldór rak síðar eigin verkstæði í Mosfellssveit. Síðustu tíu starfsárin vann hann hjá Mos- fellsbæ sem umsjónarmaður íþróttamannvirkja bæjarins. Útför Halldórs fer fram í Fos- vogskirkju í dag kl. 13. 1957, og Þóranna Jónsdóttir, f. 1898, d. 1944. Börn Halldórs og Úlfhildar eru: 1. Þóranna f. 1953, gift Magnúsi H. Sól- mundssyni f. 1953, og eru þau búsett á Akranesi. Börn þeirra eru: 1. Halldór f. 1976, sambýliskona Gunnhildur Erla Kristjánsdóttir f. 1981. 2. Arna f. 1980, sambýlismaður Sturla Guðlaugsson f. 1977. 3. Hildur f. 1985, sambýlismaður Ró- bert Gerald Jónsson f. 1984. Barnabörn Þórönnu og Magnúsar eru þrjú. 2. Lárus f. 1956, kvæntur Önnu Þóru Stefánsdóttur f. 1958 og eru þau búsett í Mosfellsbæ. Synir þeirra eru: 1. Halldór f. 1983, unn- usta hans er Sigurbjörg Ólafs- Það er komið að kveðjustund! Að þurfa að kveðja Halldór Lárusson, Didda eins og hann var alltaf kall- aður, er í senn bæði erfitt og auðvelt en að hafa mátt vera undir hans verndarvæng hefur verið gæfa. Diddi fékk að kveðja á fallegan og hæglátan hátt, heima hjá sér, þar sem hann undi sér ætíð best. Þegar ég kom inn í fjölskylduna fyrir rúm- um 35 árum var mér tekið með opn- um örmum af Didda og Úllu. Það var líf og fjör í Ösp og í mörg horn að líta. Eftir langan vinnudag utan heimilis tóku við alls kyns verkefni við stóra lóð, hesta, sumarbústað, veiðiskap og fleira. Það þekktist ekki að liggja í leti, það var eins og sólarhringurinn hjá honum væri töluvert lengri en 24 tímar. Hann var ekki að mikla hlut- ina fyrir sér heldur gekk bara í verk- in og leysti þau fljótt og vel. Hann byggði sjálfur húsið í Ösp og síðar klæddu þeir feðgar það að utan. Er gamli bílskúrinn var rifinn var það gert þannig að hægt væri að endur- reisa hann sem bátaskýli við sumar- bústaðinn, það var ekki siður Didda að fara illa með. Við Þóranna nutum hjálpar hans í hvívetna er við byggð- um okkar hús. Þar er listaverk eftir Didda sem verður meðan húsið stendur, vitnisburður um vandvirkni og smekkvísi. Diddi var stoltur af uppruna sínum í Mosó og af stórfjölskyldunni allri. Uppvaxtarárin að Brúarlandi hafa verið frábrugðin því sem þekkist í dag enda átta systkina hópur. Þegar Diddi eignaðist sína eigin fjölskyldu hélt hann vel utan um hana. Hann var einstaklega barngóður og þegar barnabörnin komu í heiminn naut hann þess að vera með þau í kringum sig. Hann tók þátt í leikjum þeirra, aðlagaði það sem hann var að gera þannig að þau gætu verið með afa sínum. Er við Þóranna vorum að eignast okkar fyrstu íbúð, nafni hans nýfæddur og við að basla, vildi Diddi ekki til þess vita að við seldum ágæt- an bíl sem við áttum til að fara á druslu. Hann vildi að nafni hans kæmist eins oft og hægt var og á sem öruggastan hátt fyrir Hvalfjörðinn í heimsókn til þeirra Úllu í Ösp. Þegar barnabörnin uxu úr grasi og fóru að stunda ýmsar íþróttir þá var afi þeirra mjög áhugasamur og stolt- ur enda hafði hann ungur stundað keppnisíþróttir. Það er ljóst að barnabörnin og barnabarnabörnin hafa misst mikið. Missir Úllu er líka mikill. Þau eyddu öllum sínum frí- tíma saman, ferðuðust mikið, spil- uðu, fóru í leikhús, á tónleika og aðra listviðburði. Þegar Diddi hætti að vinna, 70 ára að aldri, hélt ég að hann myndi halda áfram að vera á fullu en það varð ekki raunin. Hann hægði bara á og naut þess að eyða tímanum með Úllu og fjölskyldunni. Mikill tími fór í að fylgjast með íþróttaviðburðum í sjón- varpinu. Það fór ekki mikið framhjá honum þar. Það var veisla í sumar þegar sýnt var frá Ólympíuleikunum í Peking. Þau Úlla fóru á leikana í Moskvu 1980 og var allur tíminn notaður til að fylgjast með sjálfri keppninni.Að eiga einungis góðar minningar um mann sem naut þess að lifa lífinu ger- ir það auðveldara að kveðja þig, Diddi. Það er okkar hlutverk sem eft- ir lifum að halda utan um Úllu. Magnús. Elsku afi. Þó að maður viti að allt taki enda þá er mjög erfitt að sætta sig við að þú sért farinn frá okkur, það er þó huggun harmi gegn að þú fékkst að fara án þess að þjást. Á stundum sem þessari fyllist hug- urinn af minningum sem fá mann til að brosa í sorginni. Það var alltaf svo gaman að koma til ykkar ömmu. Við eigum ótal margar minningar um allt það sem þú gerðir með okkur og okk- ur leiddist aldrei hjá ykkur. Við fengum að vera svo frjáls á stóru jörðinni ykkar, klifrandi í trjánum, fá að vera með þér á snjó- sleðanum, læra að hjóla og þegar við urðum eldri þá þótti þér ekki mikið mál að gera golfholu þar svo að við gætum æft okkur þegar við vorum hjá ykkur. Í Kjósinni fórstu svo með okkur að veiða og kenndir okkur að meta það að vera út í náttúrunni. Við höfum öll verið það heppin að erfa eitthvað af þínum mikla áhuga á íþróttum og það hefur hjálpað okkur í gegnum tíðina að hafa haft svona góða fyrirmynd á því sviði. Þú fylgd- ist alltaf svo vel með því sem við vor- um að gera og ekki vantaði hvatn- inguna frá þér. Við getum stolt sagt frá því þegar þú varst ungur og slóst Íslandsmet í sundi en fékkst það ekki gilt þar sem þú syntir í sundskýlu en ekki í sundbol eins og þá var gert. Keppnisskap þitt var mikið, hvort sem það var í íþróttum eða spilum og vitum við að það er einn af þeim mörgu kostum þínum sem við höfum frá þér. Elsku afi, þær minningar sem við eigum um þig munu alltaf varðveitast í hjörtum okkar og við trúum því ein- lægt að þú haldir áfram að vaka yfir okkur og vera stoltur af okkur. Við elskum þig, söknum þín og vonum svo innilega að þú sért eins og blóm í eggi á þeim stað þar sem þú ert núna. Þín afabörn, Halldór, Arna og Hildur. Mætur samferðamaður, Halldór Lárusson frá Brúarlandi, er fallinn frá. Undirritaður minnist hans hér í nokkrum orðum. Það eru hlýjar minningar og söknuður sem þjóta um hugann þegar vinur og nágranni í yfir 50 ár fellur frá fyrirvaralaust. Hugurinn reikar fyrst til stórfjöl- skyldu hans og kynna og samskipta ömmu minnar við forfeður Halldórs. Afi minn féll frá árið 1914, þá 41 árs, frá sjö ungum börnum, þá var engin félagsmálaþjónusta en nágrannar Varmadalsfjölskyldunnar úr Mos- fellsdalnum stóðu þá fyrir því að að- stoða ekkjuna við að halda heimilinu saman. Heyjað var með hjálp þeirra og voru þar prestshjónin á Mosfelli, Magnús Þorsteinsson og Valgerður kona hans í fararbroddi. Kristín móð- ir Halldórs var ein dætra þeirra hjóna, man ég í bernsku hlýhug föður míns í garð þessa fólks. Þegar maður eldist finnur maður til þess láns að kynnast og alast upp í návist svo vandaðs fólk sem Halldór var kominn af og hefur átt nú til loka æviferilsins. Þegar ég man þetta fólk fyrst bjuggu foreldrar Halldórs í Brúarlandi sem var þá miðdepill sveitarinnar, þar ólu þau upp stóran hóp barna sem ég þekkti þó þau væru nokkru eldri en ég. Hernám Breta setti Brúarlandsheimilið í erf- iða stöðu, herinn tók húsið hernámi og bjó fjölskyldan við það nábýli þann tíma sem stríðið varði. Ekki virðast þessir erfiðleikar hafa skaðað fjölskylduna á Brúarlandi við uppeldi barna sinna og í minni fjölskyldu eru til margar fallegar myndir af börn- unum í góðri sátt við hermennina ungu. Halldór ólst upp hér í sveit í anda ungmennafélagshreyfingarinnar ásamt systkinum sínum. Íþrótta- áhugann hafði hann ekki langt að sækja, Lárus Halldórsson, skóla- stjóri á Brúarlandi, faðir hans var sannur íþróttamaður og kenndi mér t.d. leikfimi. Halldór var frábær frjálsíþróttamaður á landsvísu, einn- ig spilaði hann handbolta með Aftur- eldingu ásamt kunnum Mosfellingum með góðum árangri. Það var því mikil ánægja hans að sjá son og sonarsyni sína sem báru nöfn afa sinna feta í fót- spor sín og verða íþróttamenn á landsmælikvarða. Leiðir okkar Halldórs lágu víða saman og vörðu alla tíð, m.a. í gegn- um íþróttirnar og við félagarnir í Hengli s/f keyptum af þeim hjónum verkstæði og verslunarhús þeirra í Þverholti á sínum tíma. Þá var Hall- dór verkstjóri hjá Vegagerð ríkisins, var Vegagerðin þá aðalatvinnuveit- andi okkar vörubílstjóra og var gott að vinna undir hans stjórn. Halldór var til fyrirmyndar á öllum sviðum, hann var ákaflega samviskusamur og duglegur sem verkstjóri en einnig var stutt í leik hvort sem voru íþróttir, skotveiðar, snjósleðaferðir, kórsöng- ur eða flugáhugamennska. Margar eru þær minningarnar sem koma upp í hugann. En á síðustu árum þykir mér einna vænst um áhuga þeirra hjóna, Úlfhildar og Halldórs á söng- starfi okkar félaga í Karlakór Kjal- nesinga, þau voru ávallt áheyrendur okkar á vortónleikum kórsins. Við munum heiðra Úlfhildi Her- mannsdóttur með söng í minningu Halldórs við útför hans. Aðstandend- um öllum votta ég samúð nú við frá- fall einstaklega góðs og vandaðs drengs. Jón Sverrir Jónsson, Varmadal. Það er oft talað um mikilvægi góðra fyrirmynda fyrir börn og ung- linga, einhverja sem hægt er að líta upp til. Diddi frændi var þess háttar fyrirmynd. Hann var stór og sterkur, mikill íþróttamaður, kunni að gera við bíla og gat líka keyrt hratt á Elding- unni, svarta Lincolninum sem var með hnúð á stýrinu svo það var auð- velt að snúa því með annarri hendi. Ég fékk oft að dunda á bílaverkstæð- inu hans, gramsa í ónýtum gírkössum og dóti og skreppa með honum í bæ- inn að sækja varahluti. Þá ætlaði ég að verða bifvélavirki. Upp úr þessu fékk ég svo vinnu hjá honum þegar hann var að ljúka við að reisa Ösp – það var fyrsta launavinn- an mín. Ég var á Tröllagili hjá afa og ömmu og gat mætt þegar ég vildi til að naglhreinsa timbur. Það voru nátt- úrlega lögboðnir kaffitímar í þessari vinnu — kökur og djús hjá Úllu. Ég var nú býsna lengi að dunda við þetta verk, enda ekki hár í loftinu, og ég held ég hafi fengið grænan fimm- krónuseðil fyrir. Mér fannst það stórfé. Mörgum árum síðar komum við Sigga í bæinn og þurftum að láta enda ná saman á okkar fyrstu búskapar- og námsárum. Þá bauð Diddi okkur helgarvinnu í sjoppunni sem tengdist smurstöðinni hans í Þverholti. Þar lærðum við handtökin við að afgreiða þjóðarrétti eins og „pulsumeðöllu“ og vera fljót að því. Okkur munaði tals- vert um það. Seinna bjuggum við Sigga svo á Tröllagili hjá afa og Diddi og Úlla í næsta nágrenni í Ösp. Þá var gott að leita til þeirra um ráðleggingar og að- stoð, hvort sem það snerti bílavið- gerðir, barnapössun eða annað. Nú er búið að rífa Ösp og líklega lít- ið eftir af naglhreinsaða timbrinu. En það var gott að eiga góða að og okkur langar að þakka fyrir það að leiðar- lokum. Höskuldur Þráinsson. Sigríður Magnúsdóttir. Þegar afi minn dó skrifaði bróðir hans, sem við kveðjum í dag, fallega minningargrein sem endaði á þessum orðum: „Nú ert þú, kæri bróðir, flog- inn úr þínu hreiðri, en ég veit að þín bíður stórt og gott hreiður. Ég veit líka að þú verður búinn að smíða mitt þegar ég kem, hafðu stóra glugga á því í allar áttir.“ Þótt það hryggi mig að horfa á eftir þriðja bróðurnum úr stórum og líf- legum systkinahópi, þá gleðst ég um leið yfir því að þeir bræður séu sam- einaðir að nýju. Ég veit að afi stóð sína plikt. Og nú horfir Diddi til allra átta. Halla Gunnarsdóttir. Halldór Lárusson Við viljum bara kveðja, við viljum kveðja afa okkar og okkur langar að segja góða ferð afi og hafðu það gott þar sem þú ákveður að stoppa næst. Þú fékkst að fara fljótt og erum við alveg vissir um að þú kvaddir þennan heim með góðar og farsælar minn- ingar um þinn tíma. En nú taka við nýir tímar og þú ert eflaust kominn á góðan stað þar sem sólin skín og þú önnum kafinn á litlum traktor að slá fagurgrænan grasflöt með bros á vör og al- veg eins og blóm í eggi. Takk fyrir okkur afi. Halldór og Magnús. HINSTA KVEÐJA ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, vinur og afi, MARTEINN GUÐLAUGSSON húsgagnasmíðameistari, Asparfelli 6, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudaginn 4. nóvember. Júlíus Guðjón Marteinsson, Thelma Hólm Másdóttir, Arnar Rúnar Marteinsson, Soffía Dröfn Marteinsdóttir, Haukur Magnússon, Kristín Oddbjörg Júlíusdóttir, Karl Ásgrímsson og barnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, MARGRÉT KARLSDÓTTIR, Kjarrmóa 18, Reykjanesbæ, andaðist mánudaginn 3. nóvember. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 11. nóvember kl. 14.00. Ágústa Þorleifsdóttir, Kristófer Þorgrímsson, Júlíana Pietruszewski, Paul Pietruszewski, Guðmundur K. Þorleifsson, Sigurlaug Björnsdóttir, Karólína M. Þorleifsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. MOSAIK Hamarshöfða 4 - 110 Reykjavík sími 587 1960 - www.mosaik.is Legsteinar og fylgihlutir Vönduð vinna og frágangur Yfir 40 ára reynsla Sendum myndalista ✝ UNNUR ÞÓRISDÓTTIR, Skálatúni, Mosfellsbæ, andaðist laugardaginn 1. nóvember á Landspítala háskólasjúkrahúsi í Fossvogi. Útförin fer fram frá Lágafellskirkju fimmtudaginn 13. nóvember kl. 13.00. Fyrir hönd aðstandenda, Erla Þórisdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.