Morgunblaðið - 07.11.2008, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 07.11.2008, Qupperneq 33
Minningar 33 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2008 Kveðja frá Dvöl Til moldar oss vígði hið mikla vald, hvert mannslíf, sem jörðin elur. Sem hafsjór, er rís með fald við fald, þau falla, en guð þau telur, því heiðloftið sjálft er huliðstjald, sem hæðanna dýrð oss felur. Af eilífðarljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en auga sér mót öllum oss faðminn breiðir. Með þessu ljóðlínum Einars Benediktssonar viljum við kveðja vinkonu okkar Björgu Fríðu Jó- hannnesdóttur með þakklæti fyrir góðar samverustundir á liðnum ár- um. F.h. vina þinna í Dvöl, Þórður Ingþórsson. Jarðvist Bjargar Fríðu systur minnar hófst sex árum áður en ég fæddist. Minningarnar eru ótal- margar um gleðistundir úr æsku okkar. Það var alltaf fjör og gaman. Hún sá um mig, passaði mig, tók í taumana ef þörf var á og ég leit mjög upp til hennar. Á tímabili var ég smámæltur. Björgu ofbauð þessi talsmáti minn og hún tók til sinna ráða einn daginn. Hún tók mig traustataki fyrir framan spegil, sagði mér að horfa í spegilinn, bíta saman tönnum og segja „ess“. Ég hlýddi og meðferðin virkaði, ég tal- aði eðlilega eftir þetta. Ég tók eftir því hvernig hún skrifaði og breytti minni skrift til að gera eins og hún. Hún hafði hæfileika í tónlist og lærði að spila á píanó hjá Katrínu Dalhoff og Karli Billich. Ég lærði einnig á píanó en náði samt aldrei ✝ Björg Fríða Jó-hannesdóttir fæddist í Reykjavík 14. júlí 1955. Hún andaðist á heimili sínu í Reykja- vík 29. október síðast- liðinn. Foreldrar henn- ar voru hjónin Jóhannes Sveinsson, f. 18.7. 1925 í Felli í Sléttuhlíð, Skagafirði, d. 22.5. 1999, og Þóra Aðalheiður Jónsdóttir, f. 16.10. 1923 í Reykja- vík. Bróðir hennar er Birgir, f. 16.8. 1961 í Reykjavík. Björg varð stúd- ent frá Verzlunarskóla Íslands 1975. Útför Bjargar verður gerð frá Fossvogskapellu, föstudaginn 7. nóvember kl. 13. þessu áreynslulausa flæði sem Björgu var svo eðlilegt. Björg var alltaf léttlynd og glöð og sá spaugilegu hliðarnar á tilver- unni. Hún var hlát- urmild með afbrigð- um og gleðin smitaði út frá sér til allra sem umgengust hana. Þegar Björg var nítján ára breyttist hegðun hennar og hún dró sig inn í skel. Greiningin kom síðar, geðklofi. Ég skildi ekk- ert í því sem var að gerast og talaði ekki um þetta við neinn. Mamma tók hins vegar þá afgerandi afstöðu að fara ekki í felur með neitt og segja ættingjum og vinum opinskátt frá því sem var að gerast. Hún sagði strax við Björgu, og hamraði á því alla tíð, að þetta er sjúkdómur sem við þurfum að takast á við og hún þyrfti ekki að skammast sín fyrir neitt. Sjálfsmynd Bjargar var því alltaf heil, hún brotnaði aldrei. Björg var í mörg ár gestur í Dvöl, sem er athvarf fyrir geðsjúka í Kópavogi. Hún kom þar flesta virka daga. Þar var hún innan um gott fólk, vini sína, sem sýndu henni um- hyggju, hlýju og skilning og þar leið henni vel. Fyrir það erum við æv- inlega þakklát. Saga Bjargar er að vissu leyti saga um brostna drauma og vonir sem að engu urðu. En þetta er líka saga um trú, von og kærleika, en þeirra er kærleikurinn mestur. Framkoma Bjargar í öllum þessum veikindum hefur sýnt okkur hvernig við getum, þrátt fyrir allt, unnið sig- ur, með því að horfast í augu við líf- ið, eins og hún gerði, og takast möglunarlaust á við þau verkefni sem lögð eru í hendurnar á okkur, sama hver spilin eru sem við fáum úthlutað. Allir eiga skilið að þeim sé sýnd virðing, óháð því hvaða spil þeir hafa á hendi. Síðustu tvo dag- ana var hún með verk í kviðnum og minntumst við þá garnaflækjunnar sem hún fékk níu ára, en engan grunaði hvað var í aðsigi. Krufning mun vonandi leiða dánarorsök í ljós. Jarðvist Bjargar Fríðu er nú lok- ið. Ég kveð með sárum söknuði og trega mína elskulegu systur sem mér þótti svo vænt um. Hún reynd- ist mér alltaf vel, líka í veikindum sínum. Ég vona að ég hafi verið maður til að endurgjalda henni það. Við sem þekktum hana getum glaðst yfir og þakkað almættinu fyrir að hafa fengið að vera þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast henni svona vel. Við getum einnig verið þakklát fyrir að þjáningum hennar er lokið. Þar sem hún dvelur nú, þar ríkir fegurðin ein. Birgir Jóhannesson. Björg Fríða Jóhannesdóttir Nú týnir tölunni hvert af öðru það fólk, sem ég átti náin samskipti við þau 30 ár sem ég stóð í stjórnmálastappi á Ak- ureyri og í Norðurlandskjördæmi eystra eins og það hét þá. Í hvert skipti sem ég heyri andlátsfregn gamalla samherja frá þessum ár- um sækir á mig söknuður, en jafn- framt góð endurminning um bar- áttuvilja og fórnfúst starf hinna mörgu og áhugasömu sjálfboða- liða, sem Framsóknarflokkurinn átti á að skipa og dugðu aldrei bet- ur en í kosningaslagnum sem end- urtók sig sífellt eins og lög gerðu ráð fyrir og stjórnmálaástandið bauð til, því að ekki liðu ávallt fjögur ár milli kosninga til Alþing- is. Þá var barist af okkar hálfu, framsóknarmanna, um vísa von góðs árangurs. Þá þurfti Fram- sóknarflokkurinn ekki brauðs að biðja og enginn leit á hann sem hornreku í skoðanakönnunum, því að þar fór næststærsti flokkur landsins með gott fylgi í öllum kjördæmum, í bæ og byggð, ekki síst á Norður- og Austurlandi. Nú hefur hnigið í valinn einn af vöskustu liðsmönnum Framsókn- arflokksins á þeim árum sem tengjast mér persónulega. Harald- ur M. Sigurðsson íþróttakennari var oftar en nokkur annar maður kosningastjóri okkar í alþingis- kosningum og ekki síður bæjar- stjórnarkosningum á Akureyri. Sem íþróttakennari var hann þjálf- aður til forystuhlutverks, – hann kunni listina að fylkja liði, sem nauðsynlegt er í hernaði og keppn- isíþróttum, en má sín líka mikils í friðsamlegu félagsstarfi, þ. á m. pólitískum átökum í lýðræðisþjóð- félagi. Þar að auki var Haraldur þaulkunnugur flestu fólki og mannglöggur, þekkti næstum að segja hvern mann, a.m.k. á Ak- ureyri og í Eyjafjarðarsýslu og til viðbótar býsna klár á ættir Þing- eyinga. Ég hef að vísu ekki fylgst ræki- lega með löggjafarstarfi Alþingis hin síðari ár, en mér kæmi ekki á óvart að búið væri að banna með lögum að vera „mannfróður“ og „mannglöggur“, ef einhver veit hvað þessi orð merktu hjá okkur gömlu mönnunum. Mér er fortalið, að það flokkist nú undir refsiverða „hnýsni“ að grúska í ættfræði og vita almennilega deili á náungan- um. En þetta var ekki svona, þegar við Haraldur vorum ungir. Þá þótti það kostur að menn þekktu ná- grenni sitt og kynnu skil á ná- grönnum sínum. Heimaslóðin var okkar vettvangur, menn og mál- efni. Ekki var það okkar brýnasta hugsjónamál að lýðveldið unga ætti sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, hvað þá að afsala full- veldi og landsréttindum með inn- göngu í pólitíska ríkjasamsteypu á meginlandi Evrópu. Við áttum fullt í fangi með að forsvara hersetu Bandaríkjamanna á Íslandi, en lifðum í voninni um að þeir pökk- uðu saman einn góðan veðurdag og færu af sjálfsdáðum – sem og varð. Með þessum orðum minnist ég starfa Haralds M. Sigurðssonar fyrir Framsóknarflokkinn eins og málum háttaði fyrr á tíð. Ég tel mér skylt að þakka liðsinni hans og allra annarra fórnfúsra sjálf- boðaliða sem með mér störfuðu meðan var og hét. Haraldur M. Sigurðsson ✝ Haraldur AxelMöller Sigurðs- son, íþróttakennari á Akureyri, fæddist á Hjalteyri við Eyja- fjörð 19. maí 1923. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Seli á Akureyri 14. októ- ber síðastliðinn og var útför hans gerð frá Akureyr- arkirkju 24. októ- ber. Ég sendi sonum hans og ættfólki öllu innilega samúðar- kveðju. Ingvar Gíslason. Þriðjudaginn 14. okt. sl. andaðist þessi kunni íþróttakennari á hjúkrunarheimilinu Seli hér á Akureyri. Við andlát hans hvarf okkur sjónum einn helsti burðarás í sögu Knattspyrnu- félags Akureyrar. Eftir íþróttakennarapróf frá Laugarvatni 1944 og kennslu um hríð hjá UMSE flutti hann til Ak- ureyrar og gekk til liðs við KA ár- ið 1946. Það varð félaginu mikill happafengur, slíkur var áhugi hans og dugnaður. Hann réðst ár- ið 1947 til Gagnfræðaskóla Ak- ureyrar sem íþróttakennari og kenndi þar óslitið í 40 ár, auk kennslu í sundi og frjálsíþróttum á Akureyri og víða í Eyjafirði var það þó handboltinn sem átti hug hans allan og lagðist hann þar þyngra á árar en nokkur annar, bæði sem keppandi og þjálfari og áratuginn 1947-1957 var þetta KA- lið afar sigursælt. Tvisvar var Haraldur kjörinn til formennsku í KA, fyrst 1953-55 og síðar 1974- 75. Auk þess var hann mörg ár í stjórn handknattleiksráðs, knatt- spyrnuráðs og í Íþróttaráði Ak- ureyrar. Hann lét ekki sitt eftir liggja við alla sjálfboðavinnu og mætti rifja upp dugnað hans við innréttingu á KA-skrifstofunni í gamla íþróttahúsinu og ótal vinnu- stundir er KA-húsið nýja var reist á undrahraða sumarið 1991 og vígt 1. okt. það ár. Hann gat þess oft að fjáröflunin hefði bæði verið erfiðasta verkefni stjórnarmanna, en þó hið minnis- stæðasta. Hann rifjaði upp böllin og bingó á Hrafnagili, kabarett í Nýja-Bíó, söngskemmtun Hall- bjargar Bjarna, leiksýningar Línu langsokks, jólasveinaskemmtanir með Jóni Norðfjörð og Jóhanni Konráðssyni, auglýsingar og blaðaútgáfu o.fl. o.fl. Sigríður kona hans var honum stoð og stytta í öllu þessu umstangi og sá hún oft um miðasölu og uppgjör. Ótal fundir voru haldnir á heimili þeirra yfir rjúkandi kaffi og tert- um frá húsfreyjunni. Haraldur átti sér mörg áhuga- mál og munaði hvarvetna um lið- sinni hans. Hann var einn af stofn- endum Lionsklúbbsins Hugins 1. okt. 1959 og fyrsti formaður hans. Stangveiði stundaði hann af tals- verðum áhuga og keypti ásamt nokkrum gömlum vinum eyðibýlið Keldur í Skagafirði og þar var oft glatt á hjalla. Haraldur var all- pólitískur í eðli sínu og vildi hann veg Akureyrar og Eyjafjarðar sem mestan. Hann vann Fram- sóknarflokknum allt það gagn er hann frekast mátti um áratuga skeið. Kyrrðarstundirnar voru fá- ar en þá greip hann stundum til pensilsins og var hann í hópi frí- stundamálara sem nutu tilsagnar Hauks Stefánssonar á árunum 1947–50. Haraldur hlaut að verðleikum heiðursviðurkenningar og þakkir fyrir margvísleg störf. Ég er þetta rita minnist margra ánægjustunda í samstarfi við hann í meira en 40 ár, bæði innan KA, Lions og í Keldnafélaginu og við Elsa áttum nokkrar indælar stundir á rausn- arheimili þeirra. KA-félagar eldri sem yngri votta fjölskyldu hans innilega samúð og Harald kveðjum við með söknuði og virðingu og þökkum hans ómetanlegu störf. Blessuð sé hans minning. F.h. stjórnar KA, Haraldur Sigurðsson. Meira: mbl.is/minningar Elsku Hrafnhildur, fallega systir mín. Þú varst svo lífsglöð og yndisleg systir. Ég get engan veginn skilið tilgang þess að þú varst tekin frá okkur í blóma lífsins. Þetta virðist allt svo óraunverulegt og ég beið þess á hverjum morgni að vakna upp frá hræðilegum draumi og geri enn. Þú varst mér svo góð fyrirmynd og hef ég alla tíð litið upp til þín og ég vissi hversu mikils virði það var þér. ✝ HrafnhildurLilja Georgsdóttir fædd- ist í Reykjavík 28. mars 1979, en ólst upp á Ólafsfirði. Hún lést í Dóm- iníska lýðveldinu 21. september síð- astliðinn og var jarðsungin frá Ólafsfjarðarkirkju 4. október. Þegar þú fluttir til Akureyrar til þess að fara í framhaldsskóla þá tókstu mér opnum örmum um nánast hverja helgi og mér fannst alveg frábært að koma til þín. Eins var það þegar þú og ÓIi voruð með búskap, ég kom hverja helgi og hjálpaði til við að mjólka og mér fannst ekkert skemmtilegra en að vera hjá ykkur og dýrunum. Við vor- um alla tíð nánar og áttum okkar einkahúmor sem enginn annar gat hlegið að, þú kenndir mér svo margt sem ég mun búa að alla ævi og ég er þér svo þakklát fyrir það. Ég er svo þakklát fyrir helgina sem þú komst norður til þess að kveðja okkur, við áttum svo góðan dag saman, þú varst að segja mér frá öllum ævintýrunum sem þú vonaðist eftir að lenda í úti í útlöndum og við lágum örugglega í góða 3 tíma í sundi að spjalla um allt og ekkert. Ég man hversu erfitt mér fannst að kveðja þig og ég er svo ánægð að hafa sagt þér hversu mikið ég elskaði þig og ætti eftir að sakna þín mikið. Hjarta mitt er fullt af sorg og reiði, maður skilur engan veginn hvernig grimmdin í þessum heimi getur verið svona mikil og hræðileg. En einhvers staðar fær maður styrk til þess að halda áfram og ég veit að þú ert núna hjá afa Krumma, Ödda frænda, ömmu Stellu og öllum þeim sem fallið hafa frá og við söknum svo mikið, sem og þú gerðir líka. Ég trúi því að þið séuð öll saman á fallegum og góðum stað og að ykkur líði vel. Ég veit að þið vakið yfir okkur öllum og gefið okkur styrk í gegnum þenn- an erfiða tima. Lífið verður aldrei eins án þín og heimurinn er svo sannarlega fátækari án þín og þíns fallega bros. Ég elska þig af öllu mínu hjarta og mun alltaf gera og ég mun geyma all- ar minningarnar í hjarta mínu þar til við hittumst á ný. Ég sakna þín svo óendanlega mik- ið. Þín systir Alvilda María Georgsdóttir – eða Al eins og þú kallaðir mig oftast. Hrafnhildur Lilja Georgsdóttir Elsku amma mín, nú ertu farin til hinstu hvíldar. Ég ætlaði ekki að trúa því að þú værir farin þegar pabbi hringdi í mig á mið- vikudagsmorguninn og lét mig vita að þú hefðir dáið fyrr um nóttina. Ég vil minnast þín hér í nokkrum orðum: Ég man hvað það var alltaf svo gott að koma til ykkar á Meltröðina. Þú tókst svo vel á móti öllum, varst alltaf svo góð við alla og svo stolt af öllu sem við tókum okkur fyrir hendur. Elsku amma mín, nú kveð ég þig. Við söknum þín mikið, en ljós þitt mun skína áfram í minningu okkar. Sigríður Kristbjörnsdóttir ✝ Sigríður Krist-björnsdóttir fæddist á Birnustöð- um á Skeiðum 31. ágúst 1917. Hún lést á Landspíalanum 15. október síðast- liðinn og fór útför hennar fram frá Digraneskirkju 24. október. Blessuð sé minning þín. Nils Viggó. Sestu nafna og skoð- aðu sokkinn, sokkinn sem ég prjónaði í gær. Kíktu í dallinn, rauða og bláa dallinn, hlý gull fyrir þau sem eru mér kær. Kíktu í bollann elsku barnið, hvað sérðu heiminn færa þér? Hvað kalla draumar til þín á kvöldin? Deildu því með gömlu mér. Kátar sögur frá þínum tímum, um gamla dansa og hlaup um tún. Geym- ast ávallt í mínu hjarta, gyllta rósin, þú varst hún. Bænir bið ég til æðri mátta, þinn gullni vegur mun standa í sýn. Ég veit þú vakir hjá mér og mínum, elsku amma, ég mun sakna þín. Aldís Sigríður Sigurðardóttir (Dídí.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.