Morgunblaðið - 07.11.2008, Síða 40
40 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2008
Tísku- og lífstílsverslunin Libor-
ius við Laugaveg mun hætta rekstri
tímabundið og verður síðast opn-
unardagur verslunarinnar nú á
laugardaginn. Allar vörur frá Libo-
rius, föt og fylgihlutir, verða seldar
á áður óþekktum kjörum að því til-
skildu að borgað sé með seðlum.
Liborius hættir
rekstri tímabundið
Fólk
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞETTA er búið að ganga rosalega vel þessi þrjú
ár,“ segir Ása Ottesen, innkaupastjóri og stílisti
hjá tískuvöruversluninni Gyllta kettinum sem
fagnar þriggja ára afmæli sínu á morgun. Versl-
unin hefur náð miklum vinsældum á þessum
stutta tíma og að sögn Ásu skiptir netið miklu í
því sambandi. „Við erum nefnilega rosalega virk
á MySpace. Við tökum reglulega myndir af því
sem við erum með í boði og setjum verðið með
inn á síðuna. En við höfum líka verið rosalega
heppin með það hversu vel menntaskólarnir
hafa tekið okkur – síminn stoppaði ekki fyrsta
árið þar sem krakkar voru að fá lánuð föt í tísku-
þætti og sýningar. Það skiptir rosalega miklu
máli upp á kynningu. En svo erum við sem
vinnum hérna líka svo „næs“ og skemmtileg,“
segir Ása og hlær.
Gyllti kötturinn er staðsettur í Austurstræti,
sem verður að teljast nokkuð óvenjulegur staður
fyrir tískuvöruverslun. Verslunin hefur þó lifað
á meðan ýmis stórfyrirtæki í kring hafa fallið.
„Það eru aðallega bankar og kaffihús hérna í
kringum okkur, þannig að það er mjög gott að
við skulum vera hérna ennþá. En fólk leggur leið
sína hingað til okkar, þótt það sé kannski ekki
margt annað spennandi á svæðinu,“ segir Ása.
Afmæli Gyllta kattarins verður fagnað með
partýi í versluninni á morgun, og hefst það kl.
15. Hljómsveitin Jeff Who? heldur uppi fjörinu.
Bankarnir falla á meðan Gyllti kötturinn lifir
Morgunblaðið/Kristinn
Samstarfsfólk „En svo erum við sem vinnum
hérna líka svo „næs“ og skemmtileg.“
Fréttablaðið greindi frá því í
gær að umboðsmaður Íslands, Ein-
ar Bárðarson, hefði verið ráðinn
aðstoðarmaður 4. þingmanns Suð-
urkjördæmis, Kjartans Ólafssonar.
Björn Ingi Hrafnsson gerir því
skóna á bloggi sínu að Kjartan hafi
ráðið Einar með það í huga að
styrkja stöðu sína út á við fyrir „yf-
irvofandi“ kosningar og ljóst má
vera að þegar kemur að plöggi í
fjölmiðlum er Einar Bárðar svo
sannarlega betri en enginn. Hins
vegar má velta því fyrir sér hvort
þetta nýja skref Einars sé ekki það
fyrsta á leið hans í landspólitíkina.
Fáir Íslendingar þekkja íslenska
þjóðarsál betur en hann og ímyndið
ykkur bara hvað sá maður getur
náð langt á þingi sem tókst að selja
okkur Skímó, Nylon og Luxor.
Kjartan Ólafsson
má vara sig …
Rokksveitin Noise kveður
áhangendur sína í kvöld með tón-
leikum á Dillon. Sveitin heldur af
stað á morgun til Bretlands þar sem
hún kemur fram á fimm tónleikum.
Sveitin hefur verið iðin við tón-
leikahald erlendis en túrinn hefst í
rokkbænum Doncaster.
Noise undirbýr
Bretlandstúr
Eftir Birgi Örn Steinarsson
biggi@mbl.is
HUGLEIKUR Dagsson leggur nú lokahönd á
þriðju bókina um eineygða köttin Kisa sem kemur
út fyrir jólin. Það verður þá fjórða útgáfa hans á
árinu að meðtalinni myndasögu hans í síma-
skránni.
Fyrir skemmstu gaf Hugleikur út Jarðið Okkur,
síðustu bókina í Okkur seríunni, og í desember
kemur út bókin Eineygði kötturinn Kisi og ástand-
ið þar sem höfundurinn leyfir sér að snerta örlítið á
hruni íslensks efnahags.
„Já, þetta er smá speglun um þjóðfélagsástandið
en er samt eiginlega alveg 80% vitleysa,“ segir
Hugleikur.
Form bókanna er ólíkt á því sviði að ævintýrin
um Kisa eru línulegar frásagnir en „Okkur“ bæk-
urnar eru einnar síðu brandarar, er innihalda oft á
tíðum kúk og piss. Svo virðist vera að Hugleikur sé
að kveðja það form, a.m.k. í bili, þó svo að hann sé
enn opinn fyrir klósettkímninni. „Ég fæ alveg
reglulega leiða á kúk- og pissbröndurum en það er
alltaf bara tímabil. Ég tek svo við þeim aftur þegar
mér dettur einhver svoleiðis brandari í hug sem
mér finnst fyndinn. Ástæðan fyrir því að ég lokaði
þessum „Okkur“ flokki var bara sú að ég var búinn
að vera að þessu lengi og vildi helst slökkva á þessu
áður en þetta byrjaði að verða einhver færa-
bandavinna hjá mér. Ég mun ekkert hætta að gera
bækur sem eru með þess kyns húmor. Hann mun
alltaf koma fram áfram í öðrum bókum sem ég
geri. Ef mér dettur í hug einhver þess kyns brand-
ari sem hefði átt heima í „Okkur“ bók, þá verð ég
bara að koma honum fyrir í næstu Ok Bæ bók. Ég
er þannig ekki að loka á þetta form. Ég er meira að
loka á ákveðna hefð sem ég hafði tekið upp, að gera
eina svona bók á ári. Ég vil að héðan í frá fæðist
brandarar af þessu tagi á náttúrlegri hátt.“
Ofurhetjumyndasögur frá Hugleik?
Eins og komið hefur fram er Hugleikur mikill
aðdáandi myndasagna um ofurhetjur og hefur
sjálfur mikinn áhuga á því að gera einhvern tímann
sínar eigin ofurhetjusögur. „En það er hægara
sagt en gert. Fyrst þyrfti ég að finna teiknara sem
gæti gert því góð skil að teikna ofurhetju. Ég held
að ég sé ekki þannig teiknari. Svo er bara spurning
hvort það væri einhver markaður fyrir það hér á
Íslandi.“
80% vitleysa
Hugleikur Dagsson sendir frá sér tvær bækur fyrir þessi jól Segist sjálfur
fá reglulega leiða á „kúk- og piss“-bröndurum Fjórða útgáfan á árinu
Morgunblaðið/Valdís Thor
Hugleikur Dagsson Vinsælasti teiknimyndasöguhöfundur landsins hefur átt mjög skapandi ár og
gefur út tvær bækur í vetur, Jarðið Okkur og þriðju bókina um Eineygða köttinn Kisa.
Lýstu eigin útliti.
Ég er rauðhærður.
Hvaðan ertu?
Ég bjó í Kópavoginum þangað til
ég varð 5 ára, svo flutti ég í
Garðabæinn, bý nú í Kópa-
voginum en kalla mig
Garðbæing.
Hefur efnahagsástandið
mikil áhrif á þig?
(spyr síðasti að-
alsmaður, Hjalti
Þór Ísleifsson,
bloggari).
Fyrir nokkrum
vikum var ég
reiður en nú er
ég búinn að ganga í gegnum öll 5
stigin. Ég nýt líka þeirra forrétt-
inda að vinna fyrir fyrirtæki sem
er að mestu ónæmt fyrir ástand-
inu.
Hvað uppgötvaðir þú síðast um
sjálfan þig?
Eftir ítrekaðar tilraunir síðustu 6
árin mun ég líklega aldrei læra
kínversku þannig að gagn sé að,
nema með því að flytja til Kína.
Styðurðu ríkisstjórnina?
Þó að það sé að vissu leyti virðing-
arvert að menn hafi metnað til
þess að taka til eftir gleðskapinn
sem þeir boðuðu til held ég að það
sé kominn tími fyrir óþreyttan
mannskap. Ég er ekki viss um að
það að sitja sem fastast sé það
sama og axla ábyrgð.
Hver ber ábyrgð á kreppunni?
Frá því að Bandaríkjamenn tóku
dollarann af gullfæti árið 1971 þá
má segja að peningakerfi heimsins
standi á samskonar fótum og pen-
ingakerfi fjölspilunartölvuleikja
eins og EVE Online. Við hjá CCP
þekkjum vel það vígbúnaðarkapp-
laup sem það er að smíða og end-
urbæta regluverkið sem nauðsyn-
legt er til þess að viðhalda slíku
efnahagskerfi. Það má segja að hjá
okkur á Íslandi hafi reglusmiðirnir
tapað fyrir spilurunum.
Af hverju heitir fyrirtækið CCP?
CCP stóð upphaflega fyrir Crowd
Control Productions þótt við köll-
um okkur bara CCP í dag. Fyrst
þegar við opnuðum vefsíðu fyr-
irtækisins bárust okkur nokkrar
fyrirspurnir um kylfur og táragas.
Hvenær varstu hamingjusamastur?
Ég hugsa lítið um það sem liðið er,
framtíðin er núna. Árið 2003 var þó
stórt ár í mínu lífi, EVE Online fór
í loftið í maí það ár og í september
fæddist Eva Sólveig dóttir mín og
Guðrúnar Elísabetar.
Hvers viltu spyrja næsta viðmæl-
anda?
Hefurðu spilað EVE Online?
AÐALSMAÐUR ÞESSARAR VIKU ER FORSTJÓRI FYRIRTÆKISINS CCP SEM FRAMLEIÐIR TÖLVULEIKINN EVE ONLINE. FYRIRTÆKIÐ
STENDUR FYRIR ÁRLEGRI RÁÐSTEFNU OG UPPSKERUHÁTÍÐ EVE-SPILARA Í LAUGARDALSHÖLLINNI UM HELGINA.
Morgunblaðið/Valdís Thor
HILMAR VEIGAR PÉTURSSON