Morgunblaðið - 07.11.2008, Page 45

Morgunblaðið - 07.11.2008, Page 45
Morgunblaðið/Ómar Alvörumál Það er mikill hugur í Halldóri Gunnari Pálssyni, versl- unarstjóra nýrrar verslunnar Skífunnar við Laugaveg.  Búðin verði „alvöru“ plötubúð, segir verslunarstjóri  Senulistamönnum ekki hyglað umfram aðra Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is SENA og Skífan eru nú samein- aðar á ný. Dagurinn í dag ber með sér nýtt upphaf í verslunum Skíf- unnar en undanfarna daga hefur allt efni búðanna verið selt á 50% afslætti til að rýma fyrir nýju efni sem troðfyllir nú búðirnar. Vinsæl- ustu listamenn landsins árita og spila um helgina til að fagna þessu. Kreppunnar vegna var útlit fyrir að lítið sem ekkert yrði til af er- lendum plötum fyrir jól en því hef- ur nú verið kippt í liðinn. Rýma fyrir nýju efni En af hverju að tæma búðir til þess eins að fylla þær aftur? „Við erum að losa vörur sem við viljum ekki eiga og rýma þar með fyrir öðru efni. Það er líka gaman að geta gert fólki góð tilboð svona í upphafi,“ segir Halldór Gunnar Pálsson, verslunarstjóri í Lauga- vegsbúð Skífunnar. En meginástæðan var vænt- anlega að losa um pening til að hafa efni á nýjum vörum. Eða hvað? „Er ekki alltaf verið að reyna að búa til peninga í þessum bransa,“ svarar Halldór. „Það er auðvitað allt búið að vera í lás og það segir sig sjálft að það gengur ekki til lengdar. Eitthvað varð að gera.“ Hann segir að áhersla verði lögð á að rækta íslenska markaðinn, hvort sem um er að ræða Bubba eða Shogun. Þá verður farið eins djúpt og mögulegt er hvað eldra efni varðar, eða „back catalogue“ eins og það er nefnt. Gramsarabúð „Minn draumur er að það sé hægt að búa til gramsarabúð,“ seg- ir Halldór. „Að þetta verði alvöru plötubúð þar sem forfallnir áhuga- menn um tónlist geti fundið eitt- hvað við sitt hæfi.“ Skífan hefur fengið á sig þá gagnrýni að hygla sínum lista- mönnum á kostnað annarra. „Það verður ekkert slíkt í gangi,“ segir Halldór og kveður fast að. „Mitt hlutverk er að passa upp á að þær plötur sem eru merkilegastar hverju sinni fái sitt pláss. Það er platan sjálf sem stýrir þessu, um- töluðustu plöturnar hverju sinni eru aðalplöturnar hjá mér, burtséð frá útgefanda. Engum verður ýtt til hliðar.“ Áhersla lögð á íslenska markaðinn MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2008 / AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI ZACH EFFRON OG VANESSA HUDGENS GERA ALLT VITLAUST Í HIGH SCHOOL MUSICAL 3! ÞÚ HLÝÐIR, EF ÞÚ VILT LIFA! HÖRKUSPENNANDI MYND FRÁ STEVEN SPIELBERG MEÐ SHIA LABEOUF Í AÐALHLUTVERKI. AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI FRÁ MANNÖPUNUM SEM FÆRÐU OKKUR SHREK SÝND Í ÁLFABAKKA ÍSLENSKT TAL EIN FLOTTASTA ÆVITÝRAMYND ÁRSINS MEÐ ÍSLENSKU LEIKKONUNNI ANÍTU BRIEM Í EINU AFAÐALHLUTVERKUNUM. SÝND Í KRINGLUNNI MAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR! SÝND Í KEFLAVÍKSÝND Á AKUREYRI SÝND Á AKUREYRISÝND Á SELOSSI Brjálæðislega fyndin mynd í anda American Pie! SÝND Í KEFLAVÍK HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 6 - 8 LEYFÐ BANGKOK DANGEROUS kl. 10 B.i. 16 ára NIGHTS IN RODANTHE kl. 6 LEYFÐ HAPPY GO LUCKY kl. 8 LEYFÐ EAGLE EYE kl. 10 B.i. 16 ára JAMES BOND: QUANTUM OF... kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 5:40 LEYFÐ THE HOUSE BUNNY kl. 8 LEYFÐ MAX PAYNE kl. 10:10 B.i. 16 ára JAMES BOND: QUANTUM... kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 5:40 LEYFÐ MY BEST FRIEND´S GIRL kl. 8 B.i. 12 ára EAGLE EYE kl. 10:20 B.i. 12 ára SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA, VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA FYRSTATEIKNIMYNDIN SEM ER FRAMLEIDD MEÐ ÞRÍVÍDD Í HUGA! ATH. SÝND MEÐ ÍSLEN SKUT ALI ÓTRÚLEG UPPLIFUN, SJÓN ER SÖGU RÍKARI! á allar sýningar merktar með appelsínuguluSPARBÍÓ 550 krr Fyrsta platan „Led Zeppelin I á geisladisk. Svo fann ég Mirrorball-plötu Neil Yo- ung og Pearl Jam úti á götu þeg- ar ég var nýkominn með tónlist- arbakteríuna. Hann var ekki í neinu hulstri og fyrst um sinn vissi ég ekkert hvað þetta var.“ Plata augnabliksins „Ég er mikið að hlusta Mamm- útplötu um þessar mundir. Hana og Abbey Road (hlær).“ Söluhæsta platan í ár „Hmmm … ég spái Villa Vill og Bubba góðu gengi og svo hef ég tröllatrú á Lay Low, Motion Boys, Retro Stefson og FM Belfast.“ Val verslunarstjórans

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.