Fréttablaðið - 28.04.2009, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 28.04.2009, Blaðsíða 6
6 28. apríl 2009 ÞRIÐJUDAGUR Ert þú á leiðinni til útlanda í sumar? Já 29,8% Nei 70,2% SPURNING DAGSINS Í DAG: Er þú sátt(ur) við úrslit alþingis- kosninganna? Segðu þína skoðun á visir.is ATH TILBOÐIÐ GILDIR AÐEINS Í DAG ÞRIÐJUDAG. ALLIR FISKRÉTTIR 990 KR/KG SMÁLÚÐUFLÖK SPÁNN, AP Að minnsta kosti 73 manns höfðu smitast af svína- flensu í gær, svo staðfest væri. Vitað er um 40 smit í Bandaríkjun- um, sex í Kanada og eitt á Spáni. Grunur leikur þó á að smitið hafi borist í mun fleiri. Verst er ástandið í Mexíkó, þar sem flensan virðist hafa átt upp- tök sín. Þar er talið að rúmlega 1.600 manns hafi smitast og þar af nærri 150 látist af völdum veir- unnar. Norska dagblaðið Verdens Gang skýrði auk þess frá því á vefsíð- um sínum í gær að tveir menn, nýkomnir frá Mexíkó, hafi verið lagðir inn á sjúkrahús í norðan- verðum Noregi vegna gruns um svínaflensusmit. Þeir hafi fengið einkenni flensunnar stuttu eftir heimkomuna. Fjöldi manns hætti við ferðalög til Mexíkó og flugfélög hafa mörg hver ákveðið að innheimta ekki annars hefðbundin gjöld fyrir að afturkalla flugmiða þangað. Víða um heim var settur upp viðbúnaður á flugvöllum til þess að kanna hvort ferðafólk frá Mex- íkó og Norður-Ameríku hafi hugs- anlega orðið fyrir smiti. Í Rúss- landi, Hong Kong og Taívan gengu stjórnvöld svo langt að segja að ferðafólk frá þessum slóðum yrði sett í sóttkví. Alþjóðaheilbrigðisstofnun- in, WHO, hafði í gær ekki tekið afstöðu til þess hvort hækka ætti viðbúnaðarstig vegna svína- flensunnar úr 3 í 4 eða jafnvel 5. Það fer eftir því hve auðveldlega veiran smitast á milli manna. Androulla Vassiliou, sem fer með heilbrigðismál í fram- kvæmdastjórn Evrópusambands- ins, varaði fólk í gær við að ferð- ast til Vesturheims, en dró síðar aðeins úr orðum sínum: „Ég átti við ráðleggingar til ferðamanna, ekki ferðabann,“ sagði hún. Eftirlit var einnig hert á landa- mærum Bandaríkjanna. Barack Obama Bandaríkjaforseti sagði ástæðu til þess að sýna aðgát, en þó væri engin ástæða til að fyllast ofsahræðslu. gudsteinn@frettabladid.is Varað við ferð- um til Vestur- heimslanda Talið er að 150 manns í Mexíkó hafi látist af völd- um svínaflensunnar sem farin er að breiðast út um heim. Viðbúnaður hefur verið aukinn á flugvöllum. SVÍNIN HREINSUÐ Á Taívan gripu menn til þess ráðs að sprauta sótthreinsandi efni yfir svín til að draga úr smitlíkum. NORDICPHOTOS/AFP Fjölmargir hafa sett sig í samband við land- læknisembættið til að kanna hvort óhætt og heimilt sé að fara til Mexíkó og hvort og þá hvernig eigi að bregðast við svínainflúens- unni sem geisar þar. Ekki hefur verið gripið til ferðatakmarkana en heilbrigðisyfirvöld fylgjast náið með þróuninni. Íslendingar eiga flensulyfin Tamiflu og Relenza fyrir þriðjung þjóðarinnar. Steinar Orri Hafsteinsson hefur verið skipti- nemi í Mexíkó í vetur. Hann var á ferðalagi um síðustu helgi og segir að allir skiptinemarnir og helmingur Mexíkóabúanna hafi verið með öndunargrímur. Skiptinemunum var sagt frá svínainflúensunni fyrir fjórum dögum og þá fylgdi sögunni að inflúensubakterían gæti ekki lifað í miklum hita. „En svo sá ég að grunur léki á að tuttugu væru með svínainflúensuna hér í Veracruz þannig að það er ekkert að marka þetta með hitann,“ segir hann. Steinar Orri fór ekki í skólann í gær, bæði vegna inflúensunnar og vegna þess að hann kom svo seint heim úr ferðalaginu á sunnudagskvöldið. Hann segir þó að skólinn sinn hafi verið opinn. Foreldrar hafi beðið börnin að vera með grímur en margir vilji það ekki. „Fólk er hrætt en sumir taka ekkert mark á þessu og telja að það gangi hratt yfir.“ Honum finnst skrítið að ganga með öndunargrímu. Haraldur Briem sóttvarnalæknir segir að fylgst sé náið með þróun inflúensunnar í samstarfi við Alþjóða heilbrigðisstofnunina og Sóttvarnastofnun Evrópusambandsins. Ekki sé fyllilega ljóst hvort heimsfaraldur muni verða eða ekki. - ghs HRÆÐSLA „Fólk er hrætt,“ segir Steinar Orri Hafsteinsson, skiptinemi í Mexíkó. Skrítið að vera með grímu © GRAPHIC NEWS SVÍNAFLENSUVARNIR Einkenni eru meðal annars hiti, beinverkir, nefrennsli, eymsli í hálsi, flökurleiki, uppköst og/eða niðurgangur Þeir sem veikjast eiga að halda sig heima við, fara hvorki til vinnu né skóla og takmarka samskipti við aðra til að vernda þá gegn smiti Hyljið nef og munn þegar hnerrað er eða hóstað. Notið hreina pappírsklúta og hendið að notkun lokinni. Þvoið hendur oft með vatni og sápu, sérstaklega eftir hnerra eða hósta. Forðist að snerta augu, nef og munn því veiran getur dreifst þannig Forðist snertingu við aðra, þar á meðal hand- tök. Forðist einnig fjölmenna staði, þar á meðal sjúkrahús og heilsugæslustöðvar nema í neyð Heimild: CDC STJÓRNMÁL Sé litið til sögunnar þarf ekki endilega að búast við því að niðurstaða komist í stjórnarmynd- unarviðræður á næstunni. Reynd- ar eru aðstæður sérkennilegar þar sem minnihlutastjórn fékk meiri- hluta í kosningum í fyrsta skipti. Síðan Viðreisnarstjórnin féll hafa stjórnarmyndunarviðræður skemmst tekið 10 daga. Það var Viðeyjarstjórn Jóns Baldvins og Davíðs sem mynduð var árið 1991. Í því tilliti er ekki horft til þess þegar stjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hélt velli í kosn- ingum 1999 og 2003, enda sátu þær áfram. Þingvallastjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks tók til starfa 11 dögum eftir kosningar, en áður höfðu fyrrum stjórnarflokkar, Framsókn og Sjálfstæðisflokkur, átt í viðræðum. Þeir flokkar mynd- uðu hins vegar stjórn 15 dögum eftir alþingiskosningar 1995. Lengstan tíma tók að mynda stjórnirnar 1978 og 1979, 67 daga í bæði skiptin. Þá var farið að ræða um stjórnarkreppu, sem og árið 1987, en þá tóku viðræður 43 daga. Hins vegar tók 33 daga að mynda stjórnirnar 1983 og 1971. Líkt og áður segir eru aðstæð- ur mjög óvenjulegar nú; minni- hlutastjórn fær meirihluta. Þó að stjórnin hafi haldið velli ber að geta þess að ekki var gerður eigin- legur stjórnarsáttmáli þegar hún var mynduð. - kóp Tíu dagar lágmarkstími í stjórnarmyndun síðan Viðreisnarstjórnin féll: Stjórnarviðræður tímafrekar RÍKISSTJÓRN GUNNARS Gunnar Thor- oddsen hjó á hnútinn eftir ríflega þriggja mánaða stjórnarkreppu árið 1980. Ólíklegt er að slíkan tíma þurfi nú. EFNAHAGSMÁL Alls urðu 259 fyrir- tæki gjaldþrota á fyrstu þremur mánuðum ársins. Það eru 48 pró- sentum fleiri gjaldþrot en á sama tímabili í fyrra, þegar þau voru alls 175 talsins, að því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands. Alls urðu 73 fyrirtæki gjald- þrota í janúar síðastliðnum, 88 í febrúar og 98 í mars. Gjaldþrot- um fjölgar því talsvert milli mán- aða það sem af er árinu. Í mars 2008 voru gjaldþrotin 78 talsins, og aukningin 26 pró- sent milli ára. Í nýliðnum mars voru flest gjaldþrotin í bygging- arstarfsemi, en næstflest í heild- og smásöluverslun. - bj Gjaldþrotum fyrirtækja fjölgar: Alls 259 í gjald- þrot á árinu KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.