Fréttablaðið - 28.04.2009, Blaðsíða 12
12 28. apríl 2009 ÞRIÐJUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 21 Velta: 81 milljónir
OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6
219 -0,82% 641 -0,98%
MESTA HÆKKUN
CENTURY ALUM.M +2,08%
BAKKAVÖR +0,88%
MESTA LÆKKUN
MAREL -3,43%
ÖSSUR -1,32%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 3,30 +0,00% ... Atlantic
Airways 173,50 +0,00% ... Atlantic Petroleum 251,00 +0,00% ...
Bakkavör 1,15 +0,88% ... Eik Banki 91,50 +0,00 ... Eimskipafélagið
1,00 +0,00% ... Føroya Banki 120,00 +0,00% ... Icelandair Group
5,00 +0,00% ... Marel Food Systems 46,40 -3,43% ... Össur 89,60
-1,32%
Nóbell við skál … pissuskál
Paul Krugman, prófessor við Princeton-háskóla
í Bandaríkjunum og handhafi Nóbelsverðlaun-
anna í hagfræði í fyrra, hefur endrum og eins
tjáð sig um stöðu íslensks efnahagslífs í
dálkum sínum og á bloggi sem hann
heldur úti hjá bandaríska stórblaðinu
New York Times. Nýjasta færsla hans er
frá sjónarhóli hins eineygða, sem rak
augað í myndir af útrásarvíkingunum,
sem finna má í hlandskálum
á karlasalerni skemmti- og
tónleikastaðarins Sódóma
Reykjavík í miðbænum.
„Skoðið þessa mynd af
markaðshetjunum,“ segir
Krugman og bendir á að
víkingarnir hafi fengið nýtt
hlutverk …
Rætt um skuldastöðuna
Og meira um hagfræði og markaðshetjur en
staða þjóðarbúsins eftir efnahagshrunið hér er til
umfjöllunar á hádegisfundi Félags viðskipta- og
hagfræðinga í dag undir yfirskriftinni „Er Ísland
gjaldþrota?“ Þar verður því velt upp hver raun-
veruleg staða þjóðarbúsins er, hvort við þurfum
að greiða alla þær skuldir sem tíndar hafa verið
til og hvort greiðslugeta sé fyrir hendi. Miðað
við hvernig umræðan hefur þróast upp á síð-
kastið má reyndar ætla að spurningin heyri
frekar til heimspeki eða álíka fræða.
Framsögumenn eru ekki af verri end-
anum en þeir tengjast hruninu með
óbeinum hætti. Það eru þeir Tryggvi
Þór Herbertsson, fyrrverandi efnahags-
ráðgjafi Geirs H. Haarde, fyrrverandi
forsætisráðherra, og Haraldur L.
Haraldsson, framkvæmdastjóri Nýsis,
en félagið stóð að byggingu tónlistar-
hússins í Reykjavík.
Peningaskápur ...
PAUL KRUGMAN
„Við erum nokkuð bjartsýn á árið,“
segir Þorvaldur Lúðvík Sigurjóns-
son, forstjóri Saga Capital. Fjár-
festingarbankinn tapaði tæpum
3,7 milljörðum króna í fyrra. Það
kemur til viðbótar 824,7 milljóna
tapi frá fyrra ári.
Bjartsýnina byggir Þorvald-
ur á vísbendingum um bata efna-
hagslífsins, auk góðrar verk-
efnastöðu í fyrirtækjaráðgjöf og
yfirburðastöðu bankans í frum-
útboðum skuldabréfa það sem af
er ári. „Auk þess er bankinn með
trygga fjármögnun til 2015 og við
höfum skrif-
að eignasafn
okkar verulega
niður og frekari
áfalla því vart
að vænta.“
Þ á mu n a r
um samning
bankans vegna
endurhverfra
viðskipta við
Seðlabankann
upp á nítján
milljarða króna. Þrjátíu prósent
fjárhæðarinnar, mismunur á milli
núvirðis og lánakjara á almennum
markaði, er færður til tekna í efna-
hagsreikningi. Einn milljarður
gjaldfærist vegna þessa á ári í sjö
ár. Þorvaldur segir það ekki þung-
an bagga þótt upphæðin sé há.
Eigið fé bankans nam 9,8 millj-
örðum króna í lok síðasta árs og
eignir námu þrjátíu milljörðum.
Til marks um áhrif hrunsins stóð
eiginfjárhlutfallið í 54 prósentum
á fyrstu níu mánuðum síðasta árs
en var komið í fimmtán prósent
við árslok.
- jab
Tapaði 3,7 milljörðum króna
Forstjóri Saga Capital sér glitta í vísbendingar um batamerki í efnahagslífinu.
ÞORVALDUR LÚÐ-
VÍK SIGURJÓNSSON
Bandaríski hagfræðing-
urinn dr. Nouriel Rou-
bini segir efnahagshvata
bandarískra stjórnvalda
hafa jákvæð áhrif á þar-
lent hagkerfi og muni það
skila sér í hægfara hag-
vexti snemma á næsta
ári. Hann telur ólíklegt
að til sólar sjái í Evrópu
og Japan fyrr en undir
lok næsta árs.
Roubini sagði, í samtali
við bandaríska dagblað-
ið Washington Post um
helgina, batamerkin þau að dreg-
ið hafi úr samdráttarhraðanum
vestra og muni hagvöxtur verða
jákvæður um hálft prósentustig
á næsta ári. Atvinnulíf muni hins
vegar taka síðar við sér og því
verði botninum ekki náð
fyrr en í síðasta lagi um
mitt næsta ár.
Roubini, sem er próf-
essor í hagfræði við New
York University í Banda-
ríkjunum, fékk viður-
nefnið Herra Dómsdag-
ur fyrir tæpum þremur
árum þegar hann lýsti því
yfir á fundi Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins að kreppa
væri í aðsigi. Hann
skaust upp á stjörnuhim-
ininn þegar spádómar
hans gengu að mörgu leyti eftir
í hittiðfyrra en til marks um það
var hann einn af eftirsóttustu
ræðumönnum á ársfundi Alþjóða-
efnahagsráðsins í Davos í Sviss í
janúarlok. - jab
Efnahagshvatar skila
sér í batamerkjum
NOURIEL ROUBINI
Herra Dómsdagur
er bjartsýnni nú en
oft áður um horfur
í efnahagslífinu.
Netvæddir viðskiptavinir Nýja
Kaupþings sem eru með aðgang
að netbanka fá nú öll yfirlit frá
bankanum send rafrænt til sín.
Þeir geta enn fremur óskað eftir
því að fá yfirlit um kreditkorta-
reikninga Visa og MasterCard, um
lífeyri og greiðsluseðla með sama
hætti og afþakkað að fá þau heim
með gamla laginu. Öll yfirlit verða
geymd í netbankanum í sjö ár.
Talsverður sparnaður fæst með
netvæðingu sem þessari en áætl-
að er að hann geti numið hátt í tíu
þúsund krónum á ári. Kaupþing
segir í tilkynningu framtakið vera
lið í þeirri stefnu bankans að verða
umhverfisvænn.
- jab
Öll yfirlitin í
netbankann
Nýherji hagnaðist um 2,6 millj-
ónir króna á fyrsta fjórðungi árs-
ins samanborið við 208,8 milljóna
króna tap fyrir ári. Hagnaður sást
reyndar ekki í bókum Nýherja á
öllu síðasta ári.
Seld vara og þjónusta á tíma-
bilinu nam tæpum 3,6 milljörðum
króna, sem er sambærilegt og á
fyrri fjórðungum í fyrra. Þá dró
verulega úr fjármagnsgjöldum og
rekstrarkostnaði miðað við síðasta
fjórðung.
Haft er eftir Þórði Sverrissyni
forstjóra að betri afkomu megi
þakka hagræðingaraðgerðum sem
gripið hafi verið til í því markmiði
að lækka rekstrarkostnað á sama
tíma og eftirspurn eftir þjónustu
fyrir viðskiptahugbúnað, lausnir
og ráðgjöf dregists saman. Starfs-
fólki hafi verið fækkað um um rúm
þrettán prósent og laun lækkuð um
tíu prósent. - jab
Hagnaður
hjá Nýherja
Alþjóðlegir fjármálamark-
aðir smituðust hastarlega af
svínaflensunni frá Mexíkó
í gær. Ferðaiðnaður fór
verst út úr veikinni á meðan
lyfjageirinn fagnaði.
Svínaflensan frá Mexíkó hafði
talsverð áhrif á alþjóðlega mark-
aði í gær. Fjárfestar telja líkur á að
flensan, sem talin er hafa dregið
rúmlega hundrað manns til dauða í
Mexíkó og sýkt um fjögur hundruð
þar og í Bandaríkjunum, geti vald-
ið samdrætti í ferðamannaiðnaði.
Þetta kom harkalega niður á
gengi hlutabréfa í flugfélögum og
fyrirtækjum í ferðaþjónustu víða
um heim. Þar á meðal féll gengi
bréfa í bandarísku flugrekstr-
arsamstæðunni AMR, sem FL
Group (nú Stoðir) átti stóran hlut í
árið 2007, um rúm ellefu prósent í
fyrstu viðskiptum dagsins og var
svipaða sögu að segja um önnur
félög í ferðaþjónustu. Fyrirtæk-
in hafa ekki átt verri dag síðan
hryðjuverkin voru framin í Banda-
ríkjunum 11. september 2001.
Matvælageirinn fór ekki var-
hluta af þróun mála en gengi hluta-
bréfa nokkurra umsvifamikilla
fyrirtækja í kjötiðnaði, svo sem
Smithfield Foods og Tyson Foods,
féll um allt að tíu prósent í Banda-
ríkjunum í gær. Verð á korni, sem
svín eru alin á, lækkaði sömuleið-
is nokkuð en fjárfestar telja líkur á
að eftirspurn eftir svínakjöti muni
dragast mikið saman, að sögn
Bloomberg-fréttaveitunnar.
Fyrirtæki í heilbrigðis- og lyfja-
geiranum voru nær þau einu sem
högnuðust á flensukastinu, ekki
síst þau sem framleiða andlits-
grímur og gúmmíhanska. Þá áttu
svissneski lyfjarisinn Roche og
GlaxoSmithKlein sömuleiðis góðan
dag en bæði fyrirtækin framleiða
flensulyf. jonab@markadurinn.is
Markaðir smitast af flensunni
STAÐIÐ Í VEGI FYRIR FLENSU Læknar standa við inngang ríkisolíufélagsins Petroleos
Mexicanos í gær. Heilbrigðisyfirvöld víða um heim hafa gert allt sem í þeirra valdi
stendur til að koma í veg fyrir að hún verði að faraldri. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Verðtryggð skuldabréf
Lánasjóðs sveitarfélaga ohf.
LSS150224
Lánasjóður sveitarfélaga ohf. (LSS), kt. 580407-1100, hefur birt viðauka við
grunnlýsingu dagsett 28. október sl., vegna töku skuldabréfa til viðskipta í
NASDAQ OMX Iceland hf. Viðaukann og gögn sem vitnað er til í honum er
hægt að nálgast hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf., Borgartúni 30, 105
Reykjavík og á heimasíðu Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. www.lanasjodur.is
fram til lokagjalddaga skuldabréfanna.
Nafnverð útgáfu: Heildarnafnverð skuldabréfanna sem óskað
hefur verið að tekin verði til viðskipta 29. apríl
2009 er 1.840.000.000 kr., heildarnafnverð
flokksins eftir þá stækkun er þá 13.040.000.000
kr. Nafnverð hverrar einingar er 1 kr.
Skilmálar bréfanna: Skuldabréfin eru verðtryggð jafngreiðslubréf.
Bréfin bera fasta 3,75% ársvexti sem greiddir
eru hálfsárslega, 15. febrúar og 15. ágúst ár
hvert, í fyrsta sinn 15. febrúar 2009 og í síðasta
sinn 15. febrúar 2024. Auðkenni flokksins á
NASDAQ OMX Iceland hf. er LSS150224 og
ISIN númer IS0000018869.
Reykjavík, 28. apríl 2009.
Lánasjóður sveitarfélaga ohf.
Íslenski
lífeyrissjóðurinn
AÐALFUNDUR
ÍSLENSKA LÍFEYRISSJÓÐSINS
Aðalfundur Íslenska lífeyrissjóðsins verður
haldinn miðvikudaginn 20. maí kl. 17.00
á Hilton Reykjavík Nordica, sal H&I.
Allir sjóðfélagar og rétthafar eiga rétt á setu
á aðalfundi Íslenska lífeyrissjóðsins.
Dagskrá fundarins er skv. grein 5.3. í samþykktum
Íslenska lífeyrissjóðsins.
Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins
þurfa að berast tveimur vikum fyrir aðalfund.
Tillögur til ályktunar sem taka á fyrir á aðalfundi
þurfa að berast viku fyrir aðalfund.
Tillögur berist til umsjónaraðila sjóðsins
Láru V. Júlíusdóttur hrl, Borgarlögmenn,
Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík.