Fréttablaðið - 28.04.2009, Blaðsíða 16
VÍSINDI Á VORDÖGUM, árleg kynning á vísindastarfsemi á
Landspítala, verður 29. apríl til 7. maí. Í K-byggingu verður þessa daga
sýning þar sem um 350 vísindamenn á Landspítala og samstarfsmenn
þeirra kynna á rúmlega 100 veggspjöldum niðurstöður rannsókna
sinna. Nánar á www.lsh.is
Tímamót urðu hjá íslenska svefn-
greiningarfyrirtækinu Nox Med-
ical nýverið þegar svefngrein-
ingarbúnaður þeirra, sem er
fyrirferðaminni en áður hefur
þekkst, kom á markað. Þessi nýi
svefngreiningarbúnaður er nú seld-
ur jafnt til notkunar á fullorðnum
og börnum. Svefngreiningarbúnað-
urinn hefur verið í sölu í Evrópu,
en nýlega var gerður samningur
við bandaríska fyrirtækið Card-
inal Health um dreifingu á bún-
aðnum í Bandaríkjunum.
„Á árunum 1993-2006 varð til
mikil þekking í svefnrannsóknar-
greininni á Íslandi, en margir þeir
sem koma að Nox Medical tóku
þátt í uppbyggingu svefngrein-
ingarfyrirtækisins Flögu á sínum
tíma,“ nefnir Sveinbjörn Höskulds-
son, framkvæmdastjóri Nox Med-
ical, sem stofnað var árið 2006.
Hann bætir við að allir starfsmenn
fyrirtækisins eigi langa starfs-
reynslu að baki.
„Svefnsgreining er ný grein,“
útskýrir Sveinbjörn, og áréttar að
það hafi ekki verið fyrr en seint á
níunda áratugnum sem farið var að
meðhöndla fólk með svefntruflanir
að ráði. „Um fimm prósent fullorð-
inna eru með kæfisvefn og allt að
ellefu prósent barna eru með önd-
unartengdar svefnraskanir,“ bend-
ir hann á og bætir við til frekari
skýringar að talað sé um að allt
að 30 prósent fullorðinna upplifi
svefnleysi sem vandamál.
Sveinbjörn segir það algengt að
fólk leiti sér ekki aðstoðar fyrr en
einkenni séu farin að hafa veruleg
áhrif á líf þess. Enda geri marg-
ir sem eigi við svefnvandamál að
stríða sér ekki grein fyrir því að
þeir séu þjakaðir af kæfisvefni.
„Ómeðhöndlaðar svefntruflanir
geta leitt til alvarlegra sjúkdóma,“
bendir Sveinbjörn á og tiltek-
ur sjúkdóma eins og hjartabilun,
heilablóðfall, háþrýsting og sykur-
sýki sem dæmi.
„Kæfisvefn tengja flestir
við hrotur,“ nefnir Sveinbjörn
og útskýrir: „Í svefni slaknar á
vöðvunum í hálsinum sem veld-
ur þrengingu í öndunarveginum.“
Svefngreiningarbúnaðurinn getur
þannig greint á hvaða stigi sjúk-
dómurinn er.
Úrræðið við kæfisvefni er láta að
sjúklinginn sofa með öndunarvél,
og í vægari tilfellum á sjúklingur
kost á að nota sérstakan góm sem
heldur öndunarveginum opnum. Í
tilfellum barna eru hálskirtlarn-
ir oftast teknir. Svefntruflanir
barna geta haft alvarleg áhrif á
þau. „Svefntruflanirnar geta vald-
ið ýmsum hegðunarvandamálum.
En algengt er að börn sem hvílast
ekki eðlilega séu álitin ofvirk og
með athyglisbrest,“ nefnir Svein-
björn. Svefnleysið getur nefnilega
dregið úr námsgetu og almenn
veikindi geta farið að aukast.
Búnaðurinn er hannaður með
það fyrir augum að sem minnst
sé af leiðslum og skynjurum, með
því verða óþægindi barnsins mun
minni á meðan á mælingu stendur.
vala@frettabladid.is
Auðveldar svefn-
greiningu barna
Nýtt svefngreiningartæki íslenska fyrirtækisins Nox Medical er kom-
ið á markað. Tækið er fyrirferðarminna en áður hefur þekkst.
Sveinbjörn með svefngreingartækið sem er komið á markað. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Auglýsingasími
– Mest lesið
Tækið sem enginn verður var við.
be by ReSound™ er nýjasta tæknibyltingin í
heyrnartækjum, hönnun þeirra byggir á algerlega
nýrri hugsun. Þau eru hulin í eyrunum og eru svo létt
og þægileg að notandinn gleymir því að hann er með þau
og aðrir taka heldur ekki eftir þeim.
be by ReSound™ er algerlega nýtt úrræði
fyrir þá sem þurfa að nota heyrnartæki
Algerlega
ný hönnun
heyrnar-
tækja.
be by ReSound
eru vart greinanleg
í eyrunum
Hlíðasmári 11, 201 Kópavogur - heyrn.isHeyrnarþjónustan
Tímapantanir 534 9600
Ertu með eitthvað
gott á prjónunum?
Sjálfboðaliðar í Kópavogsdeild Rauða krossins prjóna
og sauma ungbarnaföt fyrir börn í neyð. Hópurinn,
sem kallast Föt sem framlag , mun hittast næst og
prjóna í sjálfboðamiðstöðinni Hamraborg 11, 2. hæð,
miðvikudaginn 29. apríl. kl. 15-17.
Á staðnum verða prjónar, garn og gott fólk sem hittist
reglulega og lætur gott af sér leiða. Velkomið er að
taka með sér eigið prjónadót. Þeir sem vilja gefa garn
í verkefnið vinsamlega hafið samband. Kaffi á könn-
unni og með því.
Allar nánari upplýsingar í síma 554 6626 .
Sjálfboðamiðstöð Hamraborg 11 opið virka daga kl.10-16 sími 554 6626
kopavogur@redcross.is redcross.is/kopavogur
Næstu fyrirlestrar og námskeið
28. apríl Erum við andleg og líkamleg eiturefna-
úrgangs-ruslaskrímsli?
Edda Björgvins leikkona
02. maí Hláturfundur Hláturkætiklúbbsins
Ásta VAldimarsdóttir hláturjógakennari
05. maí Heilun - Hvað er það?
Kristján Haraldsson heilsuráðgjafi
07. maí Hvað er málið með aukakílóin?
Matti Ósvald heilsuráðgjafi
12. maí Góð heilsa er auðveldari en þú heldur
Matti Ósvald heilsuráðgjafi
www.madurlifandi.is
MISTY
Gó jónusta - fagleg rá gjöf
Laugavegi 178, 105 R
sími 551-3366 - www.misty.is
opi mán-fös 10-18, lau 10-14