Fréttablaðið - 28.04.2009, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 28.04.2009, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 28. apríl 2009 13 Upplýsingatæknifyrirtækið Teris hefur sagt upp 34 starfsmönnum, eða um fjórðungi starfsmanna sinna. Uppsagnirnar koma niður á öllum þáttum starfseminnar og hafa sumir starfsmannanna unnið lengi hjá fyrirtækinu. Allir starfsmenn- irnir hafa þegar hætt störfum. Teris sinnir upplýsingatækni- þjónustu og sérhæfir sig í þjónustu við fjármálafyrirtæki. Sæmundur Sæmundsson, framkvæmdastjóri Teris, segir að Teris hafi með upp- sögnunum nú verið að bregðast við hremmingum á markaðnum. Allir viðskiptavinir fyrirtækisins séu að draga saman seglin og skera niður kostnað, „Við höfum reyndar verið í aðhaldsaðgerðum frá því í mars í fyrra. Við sögðum upp fimmtán starfsmönnum í október þegar banka- hrunið varð og fimm starfsmönnum í sept- ember í hugbúnaðarfyr- irtæki sem við áttum,“ segir Sæmundur. Allir sparisjóðir í landinu eru viðskiptavin- ir Teris og sér fyrirtæk- ið um alla upplýsinga- tækniþjónustu fyrir þá. SPRON og Sparisjóða- bankinn féllu í mars og tveimur vikum síðar yfirtók nýja Kaupþing Sparisjóð Mýrasýslu. Við misstum þrjá stóra viðskiptavini á tveimur vikum. Óhjákvæmilegt var að bregðast við því og því miður urðum við að segja upp svona stórum hópi,“ segir hann. Starfsmennirnir eru flestir með þriggja mánaða uppsagnar- frest en nokkrir eru með sex mánaða upp- sagnarfrest. Þeir hafa allir hætt störfum. „Við urðum að ganga svo langt að segja upp fólki sem er með mjög mikla starfsreynslu,“ segir hann. Um 140 starfsmenn voru hjá Teris áður en uppsagnir komu til framkvæmda. - ghs Fjórðungi sagt upp hjá Teris MISSTI ÞRJÁ VIÐSKIPTA- VINI Upplýsingatæknifyrir- tækið Teris hefur sagt upp fjórðungi starfsmanna. Teris missti þrjá stóra viðskiptavini. PARKET TILBOÐ Kærar þakkir! Samfylkingin þakkar kjósendum sínum innilega fyrir stuðninginn. Þessi sögulegi sigur verður okkur hvatning til að leggja okkur öll fram í baráttunni fyrir hugsjónum jafnaðarmanna. Einnig viljum við sérstaklega þakka öflugum hópi sjálfboðaliða sem vann ötult og óeigingjarnt starf á undanförnum vikum. Árangurinn er augljós: Með samhentu átaki er Samfylkingin orðin stærsti stjórnmálaflokkur landsins! www.xs.is www.xs.is Bandaríski bílaframleiðandinn General Motors (GM) hefur ákveð- ið að hætta framleiðslu á bifreiðum af gerðinni Pontiac. Fyrirtækinu er nauðugur einn kostur að grípa til aðgerðanna en kraftaverk er talið þurfa eigi að forða því frá þroti. Fyrirtækið mun eftirleiðis ein- beita sér að framleiðslu á fjórum bílategundum: Chevrolet, Cadillac, Buick og GMC. Óvíst er með fram- leiðslu á Saab og Hummer-jeppun- um. Bloomberg-fréttastofan segir stjórn bílaframleiðandans eiga fáa vini í hópi lánardrottna enda hafi hún reynt að fá þá til að breyta skuldahala fyrirtækisins í tíu pró- senta eignarhlut. Skuldirnar nema 27 milljörðum dala, jafnvirði 3.500 milljarða íslenskra króna. Ólík- legt er að þeir séu viljugir til að taka svo lítinn hlut í fyrirtækinu. Skuldabreytingin þarf að ganga í gegn áður en júnímánuður gengur í garð, að sögn Bloomberg. - jab FRAMLEIÐANDI Í VANDRÆÐUM General Motors hefur þurft að endurskipuleggja fyrirtækið til að forða því frá gjaldþroti, svo sem með viðamiklum uppsögnum. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP GM kastar Pontiac Sparisjóður Mýrasýslu (SPM) fékk í gær heimild til greiðslu- stöðvunar hjá Héraðsdómi Vestur- lands til næstu þriggja vikna. Í tilkynningu frá sparisjóðn- um segir að stjórn sparisjóðsins hyggist sækja um greiðslustöðv- un fyrir sparisjóðinn og ganga til nauðasamninga á grundvelli sam- komulags við helstu lánardrottna sjóðsins. Umsjónarmaður í greiðslu- stöðvun er Sigurður Arnalds hæstaréttarlögmaður. Lánardrottnum verða kynnt drög að nauðasamningi fyrir SPM á næstu dögum. Náist þeir er stefnt að sameiningu spari- sjóðsins og Nýja Kaupþings, að því er segir í tilkynningu. - jab SPM leitar nauðasamninga SPARISJÓÐUR MÝRASÝSLU Stjórn sparisjóðsins hyggst sækja um greiðslu- stöðvun fyrir sparisjóðinn og ganga til nauðasamninga

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.