Fréttablaðið - 28.04.2009, Blaðsíða 20
16 28. apríl 2009 ÞRIÐJUDAGUR
„Ég hef svo sem ekkert sérstakt planað á afmælisdaginn
sjálfan en ætla að bjóða öllum vinum mínum í opið hús á
fimmtudagskvöldið,“ segir Gunnar Karlsson myndlistarmað-
ur sem er fimmtugur í dag. Gunnar er vel kunnur lesend-
um Fréttablaðsins enda teiknar hann vikulega skopmyndir
í laugardagsútgáfu blaðsins. Þar gerir hann grín að því sem
hæst ber í þjóðfélagsumræðunni og oft hefur hann hitt nagl-
ann á höfuðið í bráðskemmtilegum teikningum sínum.
Blaðamanni leikur forvitni á að vita hvaðan hugmyndirnar
að skopinu spretta. „Þetta er tilfinning sem ég gríp úr þjóð-
félaginu og endurspeglar ekki endilega stjórnmálaskoðan-
ir mínar,“ útskýrir Gunnar sem fylgist vel með fréttum og
þjóðfélagsumræðunni. „Það er miserfitt að finna viðfangs-
efni og svo er raunveruleikinn líka oft fyndnari en það sem
maður getur látið sér detta í hug,“ segir Gunnar og bætir við
að hann geti þó ekki kvartað enda hafi hann viku til að spá
í sínu skopi meðan aðrir þurfi að skila af sér gríni á hverj-
um degi.
Gunnar
segir miserfitt
að teikna þjóð-
þekktar per-
sónur. Sumar
þekki hann
betur en aðrar
auk þess sem
auðveldara
sé að teikna
fólk með sér-
staka andlits-
drætti. Flest-
ar persónurn-
ar segir hann
þó þróast með
tímanum. „Ég
er til dæmis
enn að glíma
við brosið hennar Jóhönnu, því þegar hún brosir snúa munn-
vikin niður,“ segir Gunnar glettinn.
Inntur eftir eftirminnilegustu skopmyndinni er Gunnar
fljótur til svars.
„Ég var að horfa á veðurfréttir þegar Davíð Oddsson var
mikið í umræðunni. Allt í einu breyttist Ísland í skopmynd
af Davíð,” segir hann en Davíð og Geir H. Haarde voru oft-
ast viðfangsefni Gunnars á árinu 2008. „Ætli það verði ekki
Jóhanna og Steingrímur í ár.“
Mikil vinna er fram undan hjá Gunnari sem starfar hjá
þrívíddarhönnunarfyrirtækinu Caoz. „Við erum að hefja
framleiðslu á kvikmynd í fullri lengd um þrumuguðinn Þór,“
segir Gunnar sem hefur áður unnið að og leikstýrt myndun-
um Litlu lirfunni ljótu og Önnu og skapsveiflunum. Óskar
Jónasson mun ásamt Gunnari og þýskum samstarfsmanni
leikstýra myndinni um Þór en ætlunin er að myndin komi í
kvikmyndahúsin í desember árið 2010.
solveig@frettabladid.is
GUNNAR KARLSSON: FIMMTUGUR
Glímir enn við
bros Jóhönnu
MYNDLISTARMAÐUR Gunnar Karlsson er fimmtugur í dag en hann
er lesendum Fréttablaðsins að góðu kunnur fyrir skemmtilegar skop-
myndir í laugardagsútgáfunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
JAY LENO ER 59 ÁRA Í DAG
„Maður getur ekki verið
reiður lengi við einhvern
sem fær mann til að hlæja.“
Spjallþáttastjórnandinn
Jay Leno hefur stjórnað The
Tonight Show í 17 ár. Hann
hættir í lok maí þegar Conan
O’Brian tekur við. Í haust fer
hann af stað með nýjan þátt,
The Jay Leno Show.
timamot@frettabladid.is
Ástkær móðir, amma, langamma
og langalangamma,
Ólöf Ólafsdóttir
frá Hammersminni á Djúpavogi
(síðar búsett að Kvíabólstíg 1
Neskaupstað),
lést á hjúkrunarheimilinu í Neskaupstað miðvikudag-
inn 22. apríl og verður jarðsett frá Norðfjarðarkirkju
fimmtudaginn 30. apríl kl 14.00.
Sjöfn Magnúsdóttir Magnús Herjólfsson
Björgvin Sveinson Rósa Benediktsdóttir
Þórður Sveinsson Karen Kjartansdóttir
Heiðar Sveinsson
Auður Sveinsdóttir Þorgils Arason
Sigurður Sveinsson Brynhildur Sigurðardóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Hannes Þorsteinsson,
fyrrverandi aðalféhirðir Landsbanka
Íslands, áður til heimilis að
Melhaga 6, Reykjavík,
lést á Dvalar og hjúkrunarheimilinu Grund laugardags-
kvöldið 25. apríl sl.
Hjörtur Hannesson Sigrún Axelsdóttir
Guðrún Hannesdóttir Vilhjálmur Þór Kjartansson
Una Hannesdóttir Geir Ingimarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Margrét Herdís Thoroddsen
Sólheimum 25, Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut aðfaranótt
sumardagsins fyrsta, 23. apríl.
María Louisa Einarsdóttir Hannes Sveinbjörnsson
Egill Þórir Einarsson Hlaðgerður
Bjartmarsdóttir
Þórunn Sigríður Einarsdóttir Halldór Árnason
Sigurður Thoroddsen Einarsson Jórunn Erla
Sigurjónsdóttir
Margrét Herdís Einarsdóttir
barnabörn, makar þeirra og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Björg Hallvarðsdóttir,
Höfðagrund 10, Akranesi,
áður Bræðraparti, við Breiðargötu,
lést á Sjúkrahúsi Akraness fimmtudaginn 23. apríl.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 30.
apríl kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Sjúkrahús Akraness.
Anna K. Skúladóttir Jón I. Haraldsson
Lárus Skúlason
Málfríður G. Skúladóttir Gísli H. Hallbjörnsson
Skúli Skúlason Margrét G. Rögnvaldsdóttir
Guðmundur Skúlason Guðrún Ísleifsdóttir
Hallveig Skúladóttir Stefán Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Fríður Á. Guðmundsdóttir
Hjallaseli 55, áður Gautlandi 7,
verður jarðsungin frá Fossvogkapellu miðvikudaginn
29. apríl kl. 13.00.
Hilmar Herbertsson Bára Björgvinsdóttir
Hans Herbertsson Aldís Daníelsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Bryndís Guðmundsdóttir
Bólstaðahlíð 41, Reykjavík,
lést á líknardeild Landakots, sunnudaginn 26. apríl.
Hildur Pálsdóttir Hafsteinn Garðarsson
Gísli Pálsson
Katrín Pálsdóttir
Ingibjörg Pálsdóttir Steinar Berg Ísleifsson
Birna Pálsdóttir Helgi Pétursson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim er
sýndu okkur samúð og hlýhug vegna and-
láts og útfarar ástkærs eiginmanns míns,
föður, tengdaföður, afa, langafa
og langalangafa,
Einars Kristmundssonar
Rauðbarðaholti, Dalabyggð.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Dvalarheimilisins
Silfurtúns í Búðardal og starfsfólks Dvalar- og
hjúkrunarheimilisins Barmahlíðar á Reykhólum
fyrir kærleiksríka umönnun.
Guðrún Jóhannesdóttir
Monika B. Einarsdóttir Halldór Gunnarsson
Kristbjörg M. Einarsdóttir Ágúst Árnason
Jóhanna B. Einarsdóttir Sæmundur Jóhannsson
Anna B. Einarsdóttir Samúel Ágústsson
Georg B. Einarsson
Ásta B. Einarsdóttir Bjarni Jónsson
og fjölskyldur þeirra.
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir
og amma,
Lilja Guðvör
Guðmundsdóttir
til heimilis að Furugrund 12, Kópavogi,
lést föstudaginn 24. apríl á líknardeild
Landakotsspítala. Hún verður jarðsungin frá
Digraneskirkju miðvikudaginn 6. maí kl. 15.00.
Hallvarður S. Guðlaugsson
Guðmundur J. Hallvarðsson Anna Margrét Jónsdóttir
Lilja Dögg Guðmundsdóttir Elvar Már Ólafsson
Hallvarður Jón Guðmundsson
Elfa Rún Guðmundsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Helga Jónsdóttir
Kleppsvegi 62,
lést á Landspítalanum við Hringbraut 21. apríl sl.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn
29. apríl kl. 15.00.
Aðalbjörg Sigríður Gunnarsdóttir
Björg Gunnarsdóttir Finnbogi Sigurðsson
Ágústa Gunnarsdóttir
Þorvarður Gunnarsson Þórlaug Ragnarsdóttir
Jón Gunnarsson Sigríður Guðný Sverrisdóttir
Helga Gunnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til þeirra fjölmörgu sem
sýndu okkur samúð og hlýhug í veikindum
og við andlát okkar ástkæra,
Ævars Rögnvaldssonar
frá Blönduósi.
Sérstakar þakkir til Hlyns Grímssonar læknis fyrir
umhyggju hans og vináttu, hjartans þakkir til starfs-
fólks Landspítalans við Hringbraut, starfsfólks
Landspítalans í Kópavogi og starfsfólks heima-hlynn-
ingar Landspítalans fyrir góða umönnun.
Guð veri með ykkur öllum.
Elín Sólveig Grímsdóttir
Svavar Geir Ævarsson Sigríður Inga Elíasdóttir
Jóhann Þór Ævarsson Guðrún Dagbjört Guðmundsdóttir
Helga Sigríður Ævarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.