Fréttablaðið - 28.04.2009, Síða 30
26 28. apríl 2009 ÞRIÐJUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT
2. grastegund, 6. guð, 8. vafi, 9. strá,
11. ryk, 12. einskær, 14. dans, 16. pot,
17. eldsneyti, 18. röð, 20. tveir eins,
21. fimur.
LÓÐRÉTT
1. fugl, 3. tveir eins, 4. betrun, 5. pili,
7. dávænn, 10. siða, 13. bókstafur, 15.
arða, 16. heyskaparamboð, 19. hljóta.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. reyr, 6. ra, 8. efi, 9. íla, 11.
im, 12. alger, 14. samba, 16. ot, 17.
mór, 18. róf, 20. tt, 21. frár.
LÓÐRÉTT: 1. kría, 3. ee, 4. yfirbót, 5.
rim, 7. allstór, 10. aga, 13. emm, 15.
arta, 16. orf, 19. fá.
Sjálfstæðisflokkurinn keyrði á nokk-
uð aggresívum útvarpsauglýsingum
skömmu fyrir kosningar og þar var
ekki betur að heyra en hinn snjalli
leikari Hjálmar Hjálmarsson væri í
lykilhlutverki. Lyftu margir brúnum
því Hjálmar var í þriðja sæti fram-
boðslista Borgarahreyfingarinnar
í Norðausturkjördæmi. Við nánari
eftirgrennslan kom í ljós að þarna
var Hjálmar ekki að svíkja lit og
mun leikarinn ósáttur við það ef
menn eru að herma eftir honum í
auglýsingum. Sjálfur heyrir Hjálmar
ekki betur en þarna séu þeir
Magnús Ragnarsson og Gói
að lesa en það er Íslenska
auglýsingastofan sem
annaðist framleiðslu
auglýsinganna fyrir
Sjálfstæðisflokkinn.
Auglýsingastofur
komu vitaskuld að kosningabar-
áttunni. Má það vera til marks um
hversu lítið Ísland er að Þormóður
Jónsson, bróðir Baldvins tengdaföð-
ur Bjarna Benediktssonar, og Fíton
voru með stærsta flokkinn,
Samfylkinguna, á sínum
snærum. Jónsson &
Le´macks störfuðu fyrir
Sjálfstæðisflokkinn,
Dínamó Reykjavík var
með Vinstri græna á sinni
könnu en Gott fólk
með Framsóknar-
flokkinn.
Manúela Ósk Steinsson, eiginkona
Grétars Rafns Steinssonar, er nú í
óða önn að undirbúa annað brúð-
kaup þeirra hér á Íslandi. Manúela
og Grétar gengu í það heilaga, öllum
að óvörum, í Hollandi, fjarri vinum
og ættingjum. Þau vildu endurtaka
leikinn þannig að sem flestir gætu
samglaðst þeim. Manúela hefur
einnig öðrum hnöppum að hneppa
því hún er að fá nýjan bíl. Sá gamli,
Porche Cayenne, vakti mikla
athygli á sínum tíma því
hann var sérstaklega
merktur fyrrverandi feg-
urðardrottningu Íslands.
-jbg, fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Ágæti Mummi (sem ég reyndar var svo
óheppinn að sjá aldrei í kosningabarátt-
unni), Heiða og þið öll. Við skulum sameigin-
lega hafa eitt á hreinu. Hvort sem ég kemst
á þing (vegna útstrikana) eða ekki mun
ég ALDREI AFSALA mér heiðurslaunum
Alþingis, alveg sama hversu mikil fáfræði
ríkir um tilkomu þeirra og eðli (þau eiga
ekkert skylt við kúlulán eða prófkjörsstyrki
og eru ekki óheiðar-lega fengin),“ skrif-
ar Þráinn Bertelsson á póstlista Borgara-
hreyfingarinnar (xO). Þegar kosningaúrslit
lágu fyrir tóku stuðningsmenn xO að rita
hamingjóskir á póstlista samtakanna, eink-
um til þeirra sem hrepptu þingsæti, þeirra
Þórs Saari, Birgittu Jónsdóttur, Margrét-
ar Tryggvadóttur og Þráins Bertelssonar.
Hins vegar tóku menn fljótlega að ræða
hversu óþægilegt væri fyrir hreyfinguna
að eiga þá umræðu yfir höfði sér að Þráinn
þægi hátt í 200 þúsund krón-
ur á mánuði fyrir það eitt að
vera á lista yfir þá sem þiggja
heiðurslaun listamanna. „Tek
undir með Heiðu „practiser-
um það sem við predikerum“
var stöðugt í umræðutorfi um
laun Þráins síðustu dagana fyrir
kostningar, hvar sem ég var að
halda merkjum okkar á lofti
og var sammála fólki um trú-
verðugleika okkar þegar
þessi laun voru rædd,“
ritar Mummi í Götu-
smiðjunni. En Þráinn
tekur öllum slíkum
hugmyndum afar
illa. Fréttablaðið
hafði áður greint
frá þessu en þá
líkti Þráinn heiðurslaununum við Ólympíu-
gull og hefur einnig sagt að þau séu nokkuð
sem hann er fyrir löngu búinn að vinna sér
inn fyrir. Þessi afgerandi ummæli Þrá-
ins eru í nokkurri mótsögn við það sem
hann sagði í kosningasjónvarpi RÚV, hjá
Agli Helgasyni, að hann ætlaði að leita
upplýsinga um fordæmi hjá starfsmönn-
um Alþingis. Eftir því sem næst verð-
ur komist eru engin fordæmi
um að heiðurslaunaþegi hafi
tekið sæti á þingi. - jbg
ÞRÁINN BERTELSSON Er mjög
afdráttarlaus á póstlista
Borgarahreyfingarinnar og
segist aldrei ætla að afsala
sér heiðurslaunum.
Sannkölluð kvikmyndamiðstöð
hefur orðið til í Héðinshúsinu úti á
Granda. Fyrir er kvikmyndafyrir-
tækið Republika og nú stefnir allt
í að þrír aðilar í sama geira flytj-
ist þarna inn. Fyrst ber að nefna
framleiðslu- og þjónustufyrirtækið
True North, eftirvinnslufyrirtæk-
ið Postmenn og svo framleiðslufyr-
irtæki Baltasars Kormáks
og Lilju Pálmadóttur,
Blue Eyes.
Sögusagnir hafa
verið á kreiki um að
True North og Blue
Eyes væru að samein-
ast en Agnes
Johansen,
framleið-
andi hjá
Blue Eyes
vísar því
á bug.
„Nei,
alls
ekki, við munum hins vegar vinna
ansi náið saman á næsta ári í
tengslum við víkingamynd Balt-
asars og þess vegna er það nátt-
úrulega mjög hentugt að við skul-
um vera í næsta nágrenni,“ segir
Agnes.
Fyrirtækið Bluee Eyes hefur
sagt upp leigusamningi sínum við
Guðjón Má Guðjónsson en fyrir-
tækið hefur leigt
skrifstofuhúns-
æði í hinni sögu-
frægu Næpu.
Agnes viður-
kennir að það
verði ákveð-
inn söknuður
að því vinalega
umhverfi.
„Hins
vegar
var
þetta húsnæði ekkert sérstaklega
hentugt, þegar við vorum ekki í
framleiðslu var það of stórt og svo
öfugt, var alltof lítið þegar allt var
á fullu hjá okkur.“ - fgg
Kvikmyndaþorp úti á Granda
SÉR EFTIR NÆPUNNI Agnes Johansen
viðurkennir að hún eigi eftir að sakna
Næpunnar, húsnæðið hafi hins vegar
verið óheppilegt.
„Þetta stóð tæpt. Spurning hvort
maður kæmist út af prófunum.
En ég næ því alveg,“ segir Ólaf-
ur Ólafsson – kærasti Eurovision-
stjörnunnar Jóhönnu Guðrún-
ar sem nú undirbýr sig sem sem
mest hún má undir Eurovision-
keppnina sem fram fer í Moskvu
12. maí.
Þjóðinni brá í brún þegar kom
í ljós að vegna sparnaðaraðgerða
kæmist helsta fylgdarlið ekki með
Eurovision-hópnum til Moskvu.
Ekki einu sinni var gert ráð
fyrir kærasta Jóhönnu Guðrún-
ar. En nú hefur ræst úr því sem
betur fer. Ólafur fer út og það í
boði föður síns, Ólafs Björnsson-
ar forstjóra. Hann býður strákn-
um sínum og fara þeir feðgar út
10. maí, dvelja eina nótt á hóteli
í Kaupmannahöfn og fara svo
til Moskvu þar sem þeir verða í
rúma viku. Jóhanna og hópurinn
leggja hins vegar af stað 3. maí.
„Við pabbi ákváðum að kíkja og
förum á eigin vegum. Já, þetta
verður skemmtilegt,“ segir Ólaf-
ur sem nú getur stutt við bakið
á sinni heittelskuðu. „Já, já, ég
mun gera það. Og spái henni tví-
mælalaust sigri í undanúrslit-
unum. Ég er viss um að hún
kemst upp úr þeim. Hún
hefur verið að fá svo góða
dóma.“
Þeir feðgar verða ekki
á sama hóteli og Jóhanna
Guðrún heldur á Metr-
ópól-hótelinu sem er í
hjarta Moskvuborgar
– fimm stjörnu hótel-
sem stendur andspæn-
is Bolsoj-óperunni
og aðeins í nokkurra
mínútna fjarlægð frá
Kreml. Sögufrægt hótel og reglu-
legur gestur í rússneskum bók-
menntum.
Eurovision-hópurinn dvelst
hins vegar í úthverfi í sparnaðar-
skyni; á hóteli sem heitir Cosmos.
Það er fjögurra stjörnu hótel sem
byggt var í tengslum við Ólympíu-
leikana árið 1980. Þetta þýðir að
Ólafur gistir á umtalsvert betra
hóteli en sjálf Eurovision-stjarn-
an, kærasta hans, Jóhanna Guð-
rún.
Ólafur er á lokasprettinum með
að ljúka stúdentsprófi
og útskrifast eftir
rúmt hálft ár
frá Flensborg
þar sem hann
leggur stund
á viðskipta-
fræði.
Hann hyggst fara í sumarskóla
og leggja stund á ensku til und-
irbúnings fyrir háskólanám þar
sem Ólafur stefnir á viðskipta-
fræðina. Ólafur spilar á gítar auk
þess sem hann stundar lyftingar
sér til heilsubótar. Hann lætur
sér fátt finnast um fjölmiðlafárið
sem nú er um Jóhönnu Guðrúnu.
Til dæmis var því var slegið upp
í Monitor að Eurovision-stjarn-
an væri hrein mey. Þetta má sjá
á síðu þar sem Jóhanna svaraði
mjög nærgöngulum spurningum
lesenda. „Já, ég held nú að það
hafi verið talsverð kaldhæðni í
því svari hennar. Alveg örugg-
lega því hún er búin að vera í
föstu sambandi í tvö ár,“ segir
Ólafur sem hefur engar áhyggj-
ur af því að kærastan klári sig
ekki af spurningum fjölmiðla-
manna úti í Moskvu.
jakob@frettabladid.is
ÓLAFUR ÓLAFSSON: VERÐUR Á FLOTTARA HÓTELI EN JÓHANNA GUÐRÚN
Kærastinn með til Moskvu
EUROVISION-
KÆRUSTUPARIÐ
Ólafur mun nú geta stað-
ið þétt við bak Jóhönnu
Guðrúnar í Moskvu og
er það fagnaðarefni.
„Í bílnum
hlusta ég
alltaf á
útvarp og þá
er það Bylgj-
an, sérstak-
lega Kolla
og Heimir á
morgnana.
Annars er ég
algjör alæta
á tónlist, en
þeir diskar
sem eru yfirleitt í tækinu hjá
mér heima eru Cafe del mar,
Budda bar og Maxwell sem er í
miklu uppáhaldi.“
Anna María Ragnarsdóttir, framkvæmda-
stjóri Signatures of nature.
NÁIÐ SAMSTARF Blue Eyes Baltasars Kormáks og Leifur
Dagfinsson og félagar hjá True North vinna náið saman
að víkingamynd þess fyrrnefnda.
Heiðurslaun Þráins vefjast fyrir Borgurum
Skipholti 50b • 105 Reykjavík
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1 Fjóra menn.
2 Leiknum lyktaði með
jafntefli, 1-1.
3 Haraldur Briem.