Fréttablaðið - 12.05.2009, Side 26
22 12. maí 2009 ÞRIÐJUDAGUR
Keflavíkurvöllur, áhorf.: 1272
Keflavík FH
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 8–13 (5–4)
Varin skot Lasse 4 – Daði 4
Horn 6–5
Aukaspyrnur fengnar 19–16
Rangstöður 8–3
FH 4–3–3
*Daði Lárusson 8
Guðmundur Sævars. 6
Pétur Viðarsson 7
Ásgeir Gunnar Ásg. 6
Hjörtur Logi Valgarðs. 5
Davíð Þór Viðarsson 4
Matthías Vilhjálmss. 6
Tryggvi Guðmundss. 6
(78., Björn Sverrisson -)
Matthías Guðmunds. 4
(57., Alex. Söderlund 4)
Atli Guðnason 7
Atli Viðar Björnsson 4
(78., Hákon Hallfreðs. -)
*Maður leiksins
KEFLAVÍK 4–4–2
Lasse Jörgensen 7
Guðjón Antoníuss 6
Bjarni Hólm Aðalst. 6
Alen Sutej 7
Brynjar Guðmunds. 6
Símun Samuelsen 5
Hólmar Örn Rúnars. 7
Jón Gunnar Eysteins. 5
Jóhann B. Guðm. 5
Magnús Þorsteinss. 6
(90. Einar Einarsson -)
Haukur Ingi Guðnas. 6
(67. Hörður Sveinss. 5)
1-0 Hólmar Örn Rúnarsson (54.)
1-1
Kristinn Jakobsson (7)
sport@frettabla-
Markaðurinn fylgir Fréttablaðinu á morgun
Bandaríski forstjórinn og íslenska vatnið.
Hvert stefnir verðbólgan?
Rýnt í netauglýsingar.
Í Markaðnum á morgun
> Ekkert gengur hjá stelpunum hennar
Elísabetar
Það gengur ekkert hjá Elísabet Gunnarsdóttur og liði
hennar, Kristianstad, í sænsku úrvalsdeildinni. Kristi-
anstad tapaði sjötta leiknum í röð í gær, nú 2-0 fyrir
Margréti Láru Viðarsdóttur og félögum í
Linköping. Margrét Lára lék síðustu 9
mínútur leiksins. Guðný Björk Óðins-
dóttir, Erla Steina Arnardóttir og
Hólmfríður Magnúsdóttir léku allan
leikinn fyrir Kristianstad. Kristian-
stad hefur tapað sex fyrstu leikjum
sínum á tímabilinu og er eitt í
neðsta sæti deildarinnar. Linköp-
ing komst með þessum sigri upp í
annað sæti deildarinnar.
KÖRFUBOLTI Ágúst Björgvinsson
skrifaði í gær undir samning við
Hamar um að þjálfa bæði meist-
araflokksliðs félagsins í Iceland
Express-deildinni næsta vetur.
Ágúst mun auk þess vera yfir-
þjálfari yngri flokka félagsins.
„Þetta er búið að vera frek-
ar löng biðstaða hjá mér enda
kláraðist tímabilið 13. mars. Ég
er búinn að vera í viðræðum og
það er ánægjulegt að vera búinn
að klára þetta. Það var ekki búið
að loka því algjörlega að ég yrði
áfram með Hamar en ég var við-
ræðum við önnur lið. Það varð
síðan ofan á að ég myndi halda
áfram með Hamarsliðið,” sagði
Ágúst.
„Ég er rosalega spenntur fyrir
því verkefni að fara að þjálfa tvö
úrvalsdeildarlið. Ég hef sinnt því
einu sinni áður þegar ég þjálfaði
bæði karla- og kvennaliðið hjá
Haukum 2006,“ sagði Ágúst.
Ágúst Björgvinsson stýrði
Hamarsliðinu til sigurs í 1.
deild karla og undir hans
stjórn unnu Haukakonur níu
titla á árunum 2005 til 2007
þar af alla fimm titlana
í boði tímabilið 2006-
2007.
Karlalið Hamars
er komið aftur upp í
úrvalsdeild eftir eins
árs fjarveru. „Það er
mjög mikilvægt fyrir
okkur að vera raun-
sæir. Það er mjög mikið
af efnilegum strákum
í liðinu og ég vil reyna
að byggja þá upp,“ segir
Ágúst og bætir við. „Við
ætlum að halda áfram
að byggja upp gott lið í
Hveragerði og aðalmarkmiðið
er að reyna að festa liðið aftur í
sessi í úrvalsdeild ásamt því að
byggja upp þessa ungu og efni-
legu stráka,” segir Ágúst.
Kvennalið Hamars náði
sínum besta árangri í sögunni
á síðasta tímabili. „Það var
frábært hjá stelpunum að
komast í úrslitakeppni í
fyrsta skiptið. Þær spil-
uðu á móti verðandi
Íslandsmeisturum og
veittu þeim mikla sam-
keppni. Það eru mjög
spennandi tímar hjá
kvennaliðinu og það
er hægt að gera mjög
margt með þetta lið,”
segir Ágúst en hann
verður einnig þjálfari
drengjaflokks sem og yfir-
þjálfari félagsins. -óój
Ágúst Björgvinsson þjálfar bæði karla- og kvennalið Hamars næsta vetur:
Mikið af efnilegum leikmönnum
Körfuknattleikslið Grindavíkur hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir
átökin næsta vetur. Grindvíkingar hafa gert þriggja ára samning
við miðherjann Ómar Sævarsson sem leikið hefur með ÍR und-
anfarin ár. „Þetta er mjög spennandi verkefni og vonandi næ
ég að verða púsluspilið sem upp á vantar til að liðið geti unnið
alla titla sem eru í boði,“ sagði Ómar í samtali við Frétta-
blaðið, en Grindvíkingar voru nokkrum sekúndum frá
því að verða Íslandsmeistarar í vor.
Honum verður m.a. ætlað að fylla það skarð sem
Páll Kristinsson skilur eftir sig. „Það er stórt skarð
að fylla. Páll er gríðarlega vanmetinn leikmaður,“
sagði Ómar. Hann ætlar að flytja til Grindavíkur en
segir sárt að fara úr Breiðholtinu þar sem hann
hefur spilað lengst af. „Það er erfitt að fara úr
Breiðholtinu þar sem vel hefur verið hugsað um
mann síðan maður var níu ára gamall. Ég er
hins vegar ekkert að verða yngri og ég hugsa
að allir hafi gott af smá breytingu. Maður má
ekki festast í sömu hjólförunum,“ sagði Ómar.
Hann hlakkar til að takast á við áskorunina í Grindavík.
„Ég er að fara í lið sem er að leika til úrslita ár eftir ár á meðan
ég hef ekki komist lengra en í aðra umferð og það er stór
þáttur í ákvörðun minni,“ sagði Ómar. En hvernig á hann von
á að falla inn í hraðan leikstíl Grindvíkinga? „Ég er léttur á fæti
og tek ekki mörg skot frá þessum byssum í liðinu. Það er nóg
af mönnum til að skora þarna og mitt hlutverk verður vænt-
anlega að hirða fráköst, verja skot og hlaupa með þeim.
Ég þarf auðvitað að aðlagast þessu og það verður bara
að koma í ljós hvernig ég passa inn í þetta. Ég hef samt
fulla trú á að það takist og nú er þetta bara spurning
hvernig guli liturinn fer mér,“ sagði Ómar í léttum dúr.
Óli Björn Björgvinsson, formaður körfuknattleiksdeildar
Grindavíkur, segir Grindvíkinga ætla sér stóra hluti næsta
vetur og er hæstánægður með liðsstyrkinn.
„Virkilega ánægður með að fá þennan strák. Þetta er
hörkuduglegur og öflugur strákur. Hann var næstbesti
kosturinn á eftir Hlyni Bæringssyni,“ sagði Óli Björn.
ICELAND EXPRESS-DEILD KARLA: ÍR-INGURINN ÓMAR SÆVARSSON ER GENGINN Í RAÐIR GRINDAVÍKUR
Það er erfitt að yfirgefa Breiðholtið
FÓTBOLTI Varamennirnir Obaf-
emi Martins og Peter Loven-
krands tryggðu Newcastle 3-1
sigur á Middlesbrough í falls-
lagnum í ensku úrvalsdeildinni
í gær. Þetta var fyrsti sigurinn
hjá Newcastle undir stjórn Alan
Shearer og með honum komst
liðið upp úr fallsæti og sendi Hull
í hóp þriggja neðstu liðanna.
Middlesbrough komst yfir á
sjálfsmarki á 3. mínútu en Steven
Taylor jafnaði skömmu síðar. - óój
Skiptingar Shearer réðu öllu:
Newcastle vann
BEINT TIL STJÓRANS Obafemi Martins
fagnar með Alan Shearer. NORDICPHOTOS/AFP FÓTBOLTI Keflvíkingar fögnuðu
vel og innilega sigri á FH í gær.
Sigri sem augljóslega skipti þá
meira máli en þrjú stig. Þeir byrja
því mótið vel en voru aldrei með
öruggan sigur í höndunum gegn tíu
FH-ingum.
Aðstæður á Sparisjóðsvellinum
í gær voru ekkert til þess að hrópa
húrra fyrir. Rok og rigning. Völl-
urinn afar þungur þess utan eftir
rigningu dagsins. Liðunum gekk
þrátt fyrir það merkilega vel að
spila þokkalegan fótbolta á köfl-
um.
FH-ingar stýrðu ferðinni úti á
velli en Keflvíkingar freistuðu
þess að nýta hraða framherja sinna
með stungusendingum á Hauk
Inga og Magnús Sverri. Hauk-
ur Ingi var sérstaklega sprækur
framan af.
Vendipunktur leiksins varð á 20.
mínútu þegar Davíð Þór, fyrirliði
FH, togaði Hauk Inga niður sem
var að sleppa í gegn eftir magn-
aða stungusendingu Jóhanns B.
Guðmundssonar. Davíð var aft-
asti maður og Kristinn Jakobsson
dómari gat lítið annað gert en sent
Davíð Þór í snemmbúna sturtu.
Nokkuð lá á FH eftir rauða
spjaldið en Keflavík tókst þó ekki
að skapa sér afgerandi færi. Atli
Guðnason fékk aftur á móti fínt
færi hinum megin, náði góðu skoti
en Lasse Jörgensen varði vel í
horn. Lítið gerðist eftir það og
markalaust þegar liðin fóru að fá
sér te í kuldanum.
Síðari hálfleikur fór ákaflega
rólega af stað. FH-ingar sterkari
ef eitthvað var. Það voru nákvæm-
lega engin teikn á lofti að eitt-
hvað væri að fara að gerast þegar
Hólmar Örn kom Keflvíkingum
yfir með laglegu skoti eftir að
hafa tekið frákast við vítateiginn.
Smekklega gert hjá Hólmari.
Tíu FH-ingar börðust grimmi-
lega í slagveðrinu en sóknir þeirru
voru ómarkvissar og bitlausar. Það
var einna helst Atli Guðnason sem
lét eitthvað að sér kveða. Keflvík-
ingar fengu tvö dauðafæri í hálf-
leiknum en Daði varði laglega í
bæði skiptin.
Aðeins eins marks forysta var
alltaf hættuleg en FH-ingar nýttu
föstu leikatriðin sín illa og sköp-
uðu lítið. Keflvíkingar fögnuðu
ógurlega í leikslok og ljóst að sig-
urinn skipti þá miklu máli enda fór
allt til fjandans síðast þegar þeir
spiluðu á heimavelli sínum.
„Þetta skipti okkur svo sannar-
lega gríðarlegu máli og það er afar
sætt að vinna Íslandsmeistarana í
fyrsta leik. Þetta var það síðasta
sem við þurftum til þess að loka á
tímabilið í fyrra,“ sagði brosmild-
ur þjálfari Keflavíkur, Kristján
Guðmundsson.
„Mér fannst FH-ingarnir samt
standa sig frábærlega þó svo þeir
hafi verið einum leikmanni færri.
Eins gott og það var að vinna þá
hefði verið mjög vont að klára
ekki leik þar sem við erum manni
fleiri í 70 mínútur. Við fengum
ekki alveg eins mörg færi og skot
á markið og við vildum enda gerðu
strákarnir ekki alveg það sem
fyrir þá var lagt í teignum. Við
munum fara yfir það.“
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH,
var merkilega léttur eftir tapið og
augljóslega langt frá því að vera
að fara á taugum þrátt fyrir tap í
fyrsta leik.
„Það er auðvitað alltaf svekkj-
andi að tapa og sérstaklega þar
sem við náðum að halda þessu
markalausu fram að leikhléi og svo
var lítið að gerast þegar við gefum
þeim þetta mark. Við reyndum
samt og við hefðum kannski getað
jafnað með smá meiri einbeit-
ingu,“ sagði Heimir en hvað fannst
honum um rauða spjaldið?
„Þetta var klárlega brot hjá
Davíð en ég sá ekki þar sem ég
stóð hvort það var einhver fyrir
innan sem hefði getað stoppað
þetta. Kristinn er samt okkar besti
dómari og hann virtist viss í sinni
sök í þessari stóru ákvörðun. Ég
hef ekki séð þetta aftur og ætla því
ekki að gagnrýna dóminn,“ sagði
Heimir. henry@frettabladid.is
Þungu fargi létt af Keflvíkingum
Keflvíkingar telja sig hafa endanlega mokað yfir vonbrigði síðasta sumars með því að leggja Íslandsmeist-
ara FH, 1-0, í Keflavík. FH lék manni færri í 70 mínútur eftir að Davíð Þór Viðarsson fékk rautt spjald.
1-0 FYRIR KEFLAVÍK Leikmenn Keflavíkur fagna hér sigurmarki sínu, á móti Íslands-
meisturum FH, ásamt stuðningsmönnum sínum. MYND/VÍKURFRÉTTIR
SIGURMARKIÐ Hólmar Örn Rúnarsson
skorar hér sigurmarkið. MYND/VÍKURFRÉTTIR