Fréttablaðið - 12.05.2009, Qupperneq 30
26 12. maí 2009 ÞRIÐJUDAGUR
„Við ákváðum að draga okkur út úr þessu
áður en þetta myndi ganga eitthvað lengra.
Þetta er ekki það sem okkur langar að
gera,“ segir Rakel Magnúsdóttir söngkona
sem hefur ákveðið að segja skilið við hljóm-
sveitina Elektru. Hið sama á við um systur
hennar, Hildi.
Stúlknasveitin Elektra er ekki nema
nokkurra mánaða gömul. Hún var stofnuð
fyrir forkeppni Eurovision og spáðu marg-
ir henni sigri þar. Það gekk ekki eftir og
síðan hefur farið frekar lítið fyrir Elektru.
Nýverið var þó byrjað að spila nýtt lag með
sveitinni á íslenskum útvarpsstöðvum.
Rakel og Hildur komu fyrst fram á sjón-
arsviðið í X-Factor fyrir tveimur árum
undir nafninu Hara. Þær segjast hafa notið
þess að starfa með Elektru og engin leið-
indi séu við skilnaðinn. „Þetta var besta
niðurstaðan. Akkúrat núna ætla ég bara að
fara í sumarfrí. Svo er ég með mörg plön
sem er erfitt að tala um akkúrat núna,“
segir Rakel. Hún segist þó ekki vera hætt
að syngja. „Ekki ef einhver vill hlusta á
mig. Við erum alla vega ekki að leggja ein-
hvern hljóðnema á hilluna, enda eigum við
engan hljóðnema.“
Hildur segir að mikil vinna hafi fylgt því
að vera í Elektru. Hún sé með fjölskyldu og
í skóla og allt í kringum hljómsveitina hafi
verið aukavinna. Nú breytist það. „Ég ætla
bara að fara að gera eitthvað allt annað.
Maður er svona að skoða heiminn núna.“
Valgeir Magnússon, umboðsmað-
ur Elektru, segir að nýir meðlimir verði
kynntir þegar hljómsveitin kemur fram
á lokakvöldi Ungfrú Ísland hinn 22. maí
næstkomandi. - hdm
Hörðustu aðdáendur Eurovision-
keppninnar þykja jafnan litríkir
persónuleikar sem njóta þess í
botn að auglýsa sig og áhugann á
keppninni. En á hverri reglu eru
undantekningar og Stefán Eiríks-
son, lögreglustjóri á höfuðborgar-
svæðinu, er ein af þeim.
Hann er nefnilega forfallinn
aðdáandi þessarar vinsælu söng-
lagakeppni. „Jú, þetta er alveg
rétt, ég held reyndar að ég sé
bara eins og hver annar Íslend-
ingur, hef haft áhuga á þessu frá
blautu barnsbeini,“ segir Stef-
án og reynist tregur í taumi, er
ekki alveg viss hvort hann eigi
að gangast við þessum áhuga. En
fellst síðan á að ræða stuttlega
um þetta áhugamál. „Það hefur
reyndar aðeins dregið úr þessu á
síðustu árum,“ skýtur hann inn
í.
En Eurovison-veislur Stefáns
voru víst æði veglegar og þar
var boðið upp á Eurovision-leiki
og þar fram eftir götunum.
Stefán segir að eitthvað minna
fari fyrir slíkum samkvæmis-
leikjum eftir því sem árin fær-
ast yfir. „Jú, hvað eigum við að
segja, núverandi staða gerir það
að verkum að maður getur ekki
verið með samkvæmi af þeirri
stærðargráðu sem áður var.“
Hann er, venju samkvæmt,
bjartsýnn á gott gengi íslenska
lagsins. „Ég hef alltaf haft trölla-
trú á íslensku flytjendunum og
hef það líka núna, ég er fæddur
bjartsýnismaður,“ segir Stefán
en bætir því við að hans spár hafi
aldrei gengið eftir. - fgg
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2. margskonar, 6. í röð, 8. blóðhlaup,
9. tækifæri, 11. númer, 12. bragsmið-
ur, 14. þótti, 16. í röð, 17. eyða, 18.
sóða, 20. tvíhljóði, 21. nudda.
LÓÐRÉTT
1. elds, 3. tveir eins, 4. fugl, 5. dýra-
hljóð, 7. aftursæti, 10. athygli, 13.
umrót, 15. þráður, 16. fjaðurmagn,
19. til.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. ýmsu, 6. áb, 8. mar, 9.
lag, 11. nr, 12. skáld, 14. stolt, 16. þæ,
17. sóa, 18. ata, 20. au, 21. niða.
LÓÐRÉTT: 1. báls, 3. mm, 4. sandlóa,
5. urr, 7. baksæti, 10. gát, 13. los, 15.
taug, 16. þan, 19. að.
HÆTTAR Í ELEKTRA Hara-systurnar Hildur og Rakel,
fremst á myndinni, eru hættar í stúlknasveitinni Elektru.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
BESTI BITINN Í BÆNUM
„Ítalía er alltaf klassískur staður
en sá allra besti er Hereford. Ég
er mikill steikarmaður. Maður
er ekki mjög duglegur að fara
út að borða en þessi er svona
spari.“
Böðvar Þór Eggertsson, Böddi,
hárgreiðslumaður.
„Við tökum þessu með stóískri ró
en þetta er auðvitað ágætis vís-
bending um að við höfum verið
að gera góða hluti,“ segir Jónat-
an Garðarsson, liðsstjóri íslenska
Eurovision-hópsins í Moskvu.
Samtök sem kalla sig OGAE spá
Íslandi öðru sætinu í sínum und-
anriðli í kvöld. Í samtökunum eru
allir Eurovision-klúbbarnir og þeir
blaðamenn sem eru samankomnir í
Moskvu til að fylgjast með Eurov-
ision-keppninni. Þeir gefa atkvæði
eftir hverja og eina æfingu og lag
Íslands, Is it True?, hefur verið að
fikra sig upp töfluna, jafnt og þétt.
„En við erum búin að vera í öðru
sætinu í nokkra daga,“ segir Jón-
atan.
Til gamans má geta þess að
sömu aðilar spáðu Eurobandinu
og íslenska laginu í fyrra fjórða
sæti eftir síðustu æfinguna. Jónat-
an upplýsir að Selmu Björnsdóttur
hafi verið spáð sigri af sama fólki
þegar hún söng If I had your Love
en hún komst ekki áfram.
Söngkonan Jóhanna Guðrún var
sjálf alveg pollróleg þegar blaða-
maður náði tali af henni í gær. Hún
sagðist ekki hafa neina töfralausn
á því að vera svona yfirveguð þrátt
fyrir að bera væntingar íslensku
þjóðarinnar á herðum sér. „Þetta
er bara spurning um hvernig per-
sónuleiki maður er; maður verð-
ur bara að vera fókuseraður, ég
fer snemma að sofa, drekk ekki
og er bara með hugann við efnið,“
útskýrir Jóhanna Guðrún. „Og svo
er ég ekki þessi stressaða týpa,“
bætir hún við.
Unnusti Jóhönnu, Ólafur Ólafs-
son, var í þann veginn að lenda í
Moskvu þegar samtalið fór fram
og söngkonan var að sjálfsögðu
himinlifandi yfir því að vita af
honum í salnum í kvöld. Ekki er
víst að skötuhjúin fái mikinn tíma
saman því í nógu er að snúast hjá
Jóhönnu. Í gærkvöldi kom hún
fram í sænska Eurovision-partíinu
sem er tileinkað fjórmenningun-
um í Abba en 35 ár eru liðin síðan
söngflokkurinn sigraði í þess-
ari keppni með laginu Waterloo.
Jóhanna var augljósleg full sjálfs-
trausts því hún hugðist syngja
The Winner Takes it All. „Ég var
reyndar ekkert búin að spá í titil-
inn, valdi bara lagið sem ég kunni
best.“ Þar að auki ætlaði Jóhanna
að mæta í veislu hjá Ísraelsmönn-
um þar sem hún ætlaði að syngja
lag Íslendinga ásamt bakröddun-
um Friðriki Ómari, Heru Björk
og Ernu Hrönn. Þess má geta að
Jóhanna verður tólfta í röðinni í
kvöld. freyrgigja@frettabladid.is
JÓHANNA GUÐRÚN: POLLRÓLEG ÞRÁTT FYRIR SPÁ UM GOTT GENGI
Íslandi spáð öðru sæti í kvöld
ALLT SAMKVÆMT ÁÆTLUN Allar æfingar hafa gengið vel og nú er bara að leggjast á bæn og vonast til þess að Jóhanna Guðrún
verði meðal þeirra bestu á laugardagskvöldið. Hér er söngdrottningin á opnunarhátíð Eurovision-keppninnar þar sem hún klædd-
ist svörtum síðkjól og vakti mikla athygli hjá fjölmiðlafólki. FRÉTTABLAÐIÐ/ALMA
ÓLÍKLEGUR AÐDÁANDI Stefán Eiríksson
er mikill Eurovision-aðdáandi og
hafði það fyrir hefð að bjóða upp á
Eurovision-leiki í Eurovision-samkvæm-
um sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Eurovision-óður lögreglustjóri
Hara-systur hættar í Elektra
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Katrín Júlíusdóttir.
2 Ellefu.
3 Gauragangs.
Leikkonan Edda
Björgvinsdóttir hefur
sent bréf til félags-
manna í Félagi íslenskra
leikara þar sem hún
kvartar yfir viðtali
sem birtist við
hana í helgarblaði
DV. Bréfið hefst á þessum orðum:
„Kæru kollegar. Ég veit að þið
þekkið ákaflega mörg tilfinninguna
þegar þið neyðist til að fara í viðtöl
við hina ýmsu prentmiðla og það
er komið algjörlega aftan að ykkur,
þið gerð að fíflum og niðurlægð
með samhengislausum, heimsku-
legum og villandi forsíðutexta og
ömurlegum fyrirsögnum.“ Fyrir-
sögnin á forsíðu blaðsins var „Ég
varð nýlega skotin“ sem mun vera
bein tilvitnun í Eddu úr viðtalinu.
Það er vonandi að Edda „neyðist“
ekki til að fara í fleiri viðtöl ef hún
sættir sig ekki við að eigin ummæli
séu notuð í fyrirsögn.
Eins og komið hefur fram
í Fréttablaðinu er Stefán
Karl Stefánsson nú í
hljóðveri ásamt Veigari
Margeirssyni og Gísla Rún-
ari Jónssyni að taka upp
nýja plötu. Stefán lýsti því
yfir að hann væri hættur
í Latabæ en hann hyggst
þó klæðast búningi Glanna glæps í
Pennsylvaníu í lok júní. Þetta verð-
ur þá í fyrsta skipti í meira en heilt
ár síðan að hökustóri þrjóturinn og
Stefán rugla saman reytum.
Aðdáendur Bubba Morthens eru
ekki á eitt sáttir við Eirík Hauks-
son. Eiríkur var sérstakur gestur í
Eurovision-þætti Idolsins og tók
lagið fyrir gesti Smáralindarinnar.
Ekki var um að ræða Eurovision-
slagara heldur GCD-lagið Sum-
arið er tíminn sem Eiríkur söng á
minningartónleikum um Rúnar Júl
nýverið. Bubbamenn segja augljóst
að frammistaða Eiríks
sýni það og sanni að
það sé erfitt að feta
í fótspor kóngsins,
slíkir séu hæfileikar
hans.
- hdm, fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI