Rauði fáninn - 01.02.1932, Qupperneq 5

Rauði fáninn - 01.02.1932, Qupperneq 5
RAUÐJ FÁNINN 5 KALKUTTA er miðstöð iðnaðarins í lndlandi. l>ar eru saman komin mörg hundruð þúsund verkamenn. Auk þess er í nágrenni hennar afar-miklar nám- ur og afskapleg flæmi af teekrum. Par vinnur fjöldi af fólki, svo að Kalkútta hefir mjög góð skilyrði til að vera mið- stöð byltingasinnaðrar hreyfingar nær- liggjandi héra&a. — Fyrir tveimur og hálfu ári var stofnaður byltingasinn- aður æskulýðsfélagsskapur í Kalkútta. ,,Ungmennafélaga-samba7idið“ — sem upphaflega samanstóð aðallega af stú- dentum. Pessi félagsskapur liefir sett sér það takmark, að afhjúpa heimspeki Gandhisinnanna og vinna öreigaæslc- una, til sjós og lands, til fylgis við Kommúnismann. — Á myndinni sjást enskir hermenn vera að rífa niður götu- vígi í Kalkútta eftir verkfallsbardaga. mannanna, og tala við þá. Sjálfsagt eru þeir að reyna að koma á mála- mynda sættum, en verkamennirnir .svara þeim að eins með hæðnishrópum. Foringi lögreglunnar gefur henni fyrirskipanir með hárri röddu. — Þeir hefja hendurnar á loft í átt til verka- mannanna . . . Púðurreykur . . . Hvell- ur. Kúlnaþytur. Kvalaóp. Nokkrir verkamenn veltast um í blóði sínu. Hinir æða fram eins og tryllt villi- dýr, því að hungrið kallar fram hin frumstæðu öfl mannsins. Þeir ráðast á lögregluna, en þrátt fyrir liðsmuninn «r Itardaginn ójafn. Lögreglan hefir skammbyssur, sverð og kylfur, en ör- eigarnir hafa ekkert nema magra og sinabera hnefana. Eftir stutta viður- eign er lögreglan búin að sundra verkamönnunum sitt í hverja áttina. Flokkurinn er orðinn forystulaus. — Þeir eru ýmist særðir eða handteknir. Eftir nokkura stund er allt með kyrrum kjörum. Bílar og sporvagnar þjóta eftir götunni, og sjúkrabíll flyt- ur þá særðu í burtu. En einn þeirra þarf ekki lengur að kvíða hungrinu. Kúla lögreglunnar hefir farið gegnum Jieila hans. Hann er orðinn píslarvott- ur öreiganna. Þrem dögum síðar er eg staddur á sama stað og tíma. Eg heyri sama lag- ið og fyrir þrem dögum. Nú er það miklu sterkara og magnþrungnara en áður. Nú líkist það mest þrumugný. Líkfylgdin kemur. Nú er verið að bera píslarvott öreiganna til grafar. Blómskreyttri kistu er ekið á undan á rauðum vagni, og sitt við hvora hlið vagnsins ganga tvær konur í skósíðum rauðum klæðum, og bera rauða fána. Móðir og systir mannsins, sem varð villidýrunum að bráð. Á eftir kistunni gengur hljómsveit og hornaflokkur, og þar á eftir hin fjölmenna líkfylgd. Svo langt sem augað eygir eftir Wilhelms- stracze, er það troðfullt af fólki, og í skemmtigörðunum og næstu hliðar- götum er maður við mann. Öll umferð er stöðvuð. Nú sést engin lögregla til að dreifa mannfjöldanum. — Ef þeir verða á vegi skrúðgöngunnar, þá láta þeir sem minnst á sér bera, eins og þeir hafa slæma samvizku. I dag þorir auð- valdið ekki að ota fram peðum sínum. í dag hafa augu manna opnast fyrir handaverkum þess, þó að þau verði ef til vill lokuð í kvöld, og þeir skríði fyrir því eins og áður. Líkvagninn nemur staðar þar sem öreiginn var myrtur, bílar og spor- vagnar, sem koma á móti, stanza, og jafnvel afmyndaðir ístrubelgir taka of- an með hræsnisfullri lotningu. f dag skríða þeir fyrir öreigunum, til þess að geta drottnað yfir þeim áfram. Hljómsveitin spilar lag, sem hefir verið samið við þetta tækifæri. Tón- arnir óma fyrst sorgþrungnir og ang- urværir. Svo smá-hækka þeir og styrkjast, og verða loks sterkir og ógn- þrungnir eins og þrumugnýr. Það er magn hefndarinnar, sem ómar frá strengjunum. Hefnd öreiganna á morð- ingjunum og kúgurunum, — ómarnir aukast og margfaldast við bergmálið frá höllum auðkýfinganna, og það er eins og allt leiki á reiði skjálfi. Fjölmennur talkór talar. Hann er það sterkur, að orðin heyrast greini- lega langa leið. Þeir hrópa á hefnd. Þeir hrópa á nýtt og réttlátara skipu- lag. Þeir hrópa á burtu kúgarana og morðingjana, sem skjóta sér á bak við skálkaskjól laga, sem þeir hafa sjálfir samið, þegar mesta ranglætisæðið hef- ir gripið þá. Þeir hrópa á morgunroða hins nýja skipulags, öreigamenning- una, og raddir þeirra dreifast út á með- al mannfjöldans, og bera vott um mátt hans. Svo er haldið af stað með söng og l'iljóðfæraslætti. Undir linditré í litl- um kirkjugarði er honum, sem kúlur auðvaldspeðanna rændu frá óskabarni auðvaldsins, hungurvofunni, — búinn hinsti hvílustaður. En hann lifir í hug- um fólksins. Hann hefir látið bræðra- víg öreiganna gleymast einn dag, og sameinað þá í eina órjúfandi heild. Mannfjöldinn er orðinn dreifður . . . Kapelluklukkunum er hringt í sama kirkjugarði. Nokkrir menn bera litla og létta kistu út að opinni gröf. Eng- ir eru viðstaddir noma grafmennirnir og horuð og illa klædd öreigakona, sem grætur yfir barninu sínu, sem varð hungrinu og skortinum að bráð, vegna þess að auðvaldið rændi arðin- um af vinnu hennar. — Svartklæddur lygamörður auðvaldsins kastar mold- arrekum á kistuna, og þylur um leið 8000 ára gamlan frasa austan úr Mon- gólíu, og tekur fyrir það síðustu pen- inga fátæku ekkjunnar. Enginn veit um þennan píslarvott öreiganna. Blöðin flytja enga mynd af honum. Hann er einn af hinum mörgu þöglu píslarvottum. Einn af miljónun- um, sem morðkvörn skipulagsleysisins hefir malað í hel. En blóð þeirra mun fyr eða síðar mola í sundur ormétnar stoðir auð- valdsskipulagsins. Ásgeir Jónsson.

x

Rauði fáninn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rauði fáninn
https://timarit.is/publication/333

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.