Skinfaxi - 01.10.1911, Blaðsíða 7
SKINFAXI
79
VestfirðingasambandiS er enn ])á eftir
að stofna. Þó eru nú þegar komin mörg-
ungmennafélög á Vestfjörðum, og gæti því
orðið allödugt fjórðungssamband, ef öll
félögin milli Gilsfjarðar og Bitru gengju i
það.
Það er leitt að við Vestfirðingar skulum
vera á eftir öðrun) samlöndum okkar, bæði
i þessu og fleiru, sem snertir framtakssemi
og samvinnu. Og það ætti að vekja löng-
un hjá ^vestfirskum ungmennafélögum til
þess að gera nú skyldu sina og keppa að
því, Vestfirðir komi til að standa í ílestu
fyllilega jalnfætis öðrum sveitum þessa
lands. Þá er best að byrja á þvi að stofna
fjórðungssamband fyrir Vestfirði í því trausti
að það Ieiði fleiri framfarir á eftir sér.
Mér vilanlega er að eins eitt U. M. F.
á Vestfjörðum komið í samband U. M. F. I.
það er U. M. F. Mýrahrepps í Dýrafirði.
En það félag ætti einmitt að kosta kapps
um, að fá nágrannafólögin til að ganga í
sambandið líka. Þvi auðséð er, að eitt
félag svo langt frá öðrum sambandslélög-
um. hefir svo miklu minni not af samband-
inu, en ef þau væru fleiri saman. Það er
því einmitt þetta félag, sem eins og stend-
ur ætti að hafa mestan hag af því, að fá
fleiri félög á Vestfjörðum með sér í sam-
bandið.
En aftur á móti mun það standa í veg-
inum fyrir sumum félögunum, að þau sjá
sér svo lítinn hag í að ganga í samband-
ið, meðan ekkert fjórðungssamband er mynd-
að, og aðeins eittt af Vestfjarðafélögunum
i sambandinu.
Heppilegasta ráðið fyrir félögin mun því
vera, að reyna að kynnast sem best með
brétaskriftum og koma sér nokkur saman
um að mynda íjórðungssamband. Þegar
svo fjói'ðungssambandið er myndað, hygg
eg engau efa á, að fljótt mundi fjölga fé-
lögunum í því. Eg veit um nokkur félög,
sem eru að hugsa sig um aðgangaísam-
bandið, því þau búast ekki við svo mikl-
um hagnaði, meðan ekki eru fleiri komin.
En þau félög myndu alls ekki hika við
að ganga í íjórðungssamband á Vestfjörð-
um, ef það væri stofnað, jafnvel þó fáment
væri.
Til þess að hægt yrði að stofna fjórð-
ungssamband, þyrfti ekki nema svo sem
þrjú félög með 120—150 meðlimum til
samans.
Ef U. M. F. Mýrahrepps vill gangast
fyrir stofnun þessa fyrirhugaða sambands,
sem mér sýnist það sjálfkjörið til, og vildi
mælast til að það gerði, þá hygg eg að
verði einna hentast fyrir það, að snúa sér
til U. M. F. Önfirðinga og U. M. F. Vor-
blóm. Þau félög hafa bæði góðan hug á
þessu máli, og hafa einnig hugsað sér, að
ganga bráðlega í samband U. M. F. í.
Þessi þrjú félög til samans hafa að minsta
kosti 130 meðlimi. Einnig eru þau svo
nærri hvert öðru, að fjarlægin þyrfti ekki
á neinn hátt að standa samvinnunni fyrir
þrifum.
Eg hefi hér aðeins talað um Vestfirði
viðvíkjandi þessu sambandi, því það er
skoðun mín að heppilegast verði, að Vest-
firðingafjórgungur nái að eins yfir sjálfa
Vestíirði — milli Gilsfjarðar og Bitru-
fjarðar.
Vestfirðir eru frá náttúrunnar hendi
greindir frá, og landsbæltir þar nokkuð
öðruvísi en annarsstaðar. Atvinna og fleira
gera það að verkum að bentast mun vera,
að Vestfirðingar séu ekki algerlega undir
sömu lögum og þau félög sein eru annar-
staðar á Vesturlandi. Fjórðungsþing Vest-
fjarða yrði t. d. að vera í febrúar eða
marsmánuði, en það virðist ekki eins hent-
ugt fyrir aðra þá, sem eftir sambandslög-
unum eiga að teljst til Vestfirðingafjórðungs.
Eg hygg líka, að samvinna verði betri með
því, að Vestfirðingar verði út af fyrir sig,
heldur en að fjórðungurinn nái að Hvitá
i Borgarfirði.
Einnig yrði mjög erfitt fyrir félaga úr
Snæfellsnes- og Mýrasýslu að sækja fjórð-
ungs])ing til Vestfjarða seinni part vetrar.
Vafalaust langt um erfiðara heldur en að
sækja fjórðungsþing i Arnessýslu eða til
Reykjavíkur í júnímánuði.