Skinfaxi - 01.10.1911, Blaðsíða 8
80
SKINFAXI
Aftur á móti sé eg ekkert, sem mælir
á móti því, að Vestfirðingafjóröungur nái
aðeins yfir Vestfirði, nema ákvæðið í sam-
bandslögunum. En það er engum vafa
bundið að því fæst breytt (með fundar-
samþyktum), ef þau félög, sem hlut eiga
að máli æskja þess.
Að endingu vil eg biðja öll ungmenni á
Vestfjörðum að munaeftir þeirri helguskyldu
sem hvílir á þeim gagnvart átthögum þeirra,
og bindast nú böndum sterkum, til að
sporna við því, að Vestfirðir verði í nokkru
eftirbátur aniiara sveita þessa lands.
Staddur í Reykjavík 10. okt. 1911.
Jón Á. Guðmundsson.
Ný sambandsfélög.
í haust hafa þrjú Ungmennafélög á
Suðurlandi gengið í sambandið.
1. U. M. F. „BláfjalU í Skaftártungu,
stofnað 1. janúar 1909, hefir nú 36 félaga.
2. U. M. F. „Haukur“ í Leirársveit í
Borgarfirði, stofnað i ágúst 1911, félags-
menn 22.
3. U. M. F. „Dagrenning" í Lundareykja-
dal í Borgarfirði; það hefir nú 27 félaga.
011 eiga félög þessi góða menn að, og
öll risin upp af innansveitaráhuga, en það
er að öllum jafnaði öflugasti framtíðar-
styrkurinn.
S k í ð i.
Eitt at því, er Helgi Valtýsson vann að,
var að auka skíðaferðir i landinu, og eru
í Skinfaxa ýmsar hvetjandi greinar þess
efnis.
Vildi ég halda þar áfram er Helgi hætti
og hefi því tekið að mér sölu á 50 skíða-
pörum af beztu tegund.
Ollu sjálfsagðara samgöngufæri á Is-
landi en góð skíði, veit eg ekki hvað er,
einkum þegar þess er gætt, hve hugðnæm
íþrótt skíðaferðir eru.
SKINFAXI
mÍTiF^mfS|T
r
— mánaðarrit D. M F. í. — ltemur út f Reykjavlk
og kostar 1 kr. árgangurinn, erlendis 1,50 ltr.
RITSTJÓRI:
Jónas Jómson frá Hriflu.
Skólavörðuetig 35.
Afgreiðslumaður:
Björn Þórhallsson Lauf&si.
Ritnelnd:
Agúst Jósefsson, Guðbrandur Magnússon,
Tr. Þórhallsson.
Skiði þessi, sem eg annast sölu á, eru
úr viði sem nefnist Hickory og að sögn
H. V. er hann hálli og harðari en askur,
en dálitið þyngri.
Söluverðið, 14 kr., er verksmiðjuverð
að viðbættu farmgjaldi, ekkert á þau lagt.
Fótbönd er hægt að láta gera hér i
Reykjavík handa þeim sem vilja, og yrði
þar farið eftir tilsögn Helga Valtýssonar.
Bezt að fá pantanir sem fyrst.
Guðbrandur Magnússon.
Oíuðm njaltaon
er á fyrirlestraferð austur um sýslur,
fer alla Ieíð austur í Mýrdal. Síðar fer
hann til Ungmennafélaga í Borgarfjarðar
og Mýrasýslu.
Gtuðm. Sigurjónsson
fór með styrk af fjórðungssjóði til Ung-
mennafélaga í austursýslunum, til að leið-
beina í islenzkri glímu og öðrum íþrótt-
um. Hann fer alla leið austur á Síðu og
þaðan til Vestmannaeyja.
Til hægðarauka
er sú breyting gerð, að ekki sé and-
virði Skinfaxa tvískift, heldur goldið í einu
lagi fyrir 1. júlí ár hvert.
Afgreiðslu Skinfaxa
heíir Björn Þórhallsson tekið að sér, og
er þvi til hans að hverfa um alt er að
henni lýtur, svo sem vanskil, greiðslu and-
virðis, bústaðarskifti, og pantanir. Hann
er að hitta hvern tíma dags sem er.
Fólagsprentsmið j aú.