Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.1912, Blaðsíða 3

Skinfaxi - 01.03.1912, Blaðsíða 3
SKINFAXI 19 ■og blöðum af dugnaði ykkar og viljaverk- •nm, frá |>ví ég fór að heiman. Áfram svo. Áfram yfir örðugleika og torfærur, •þá mun sigri náð. Það er ekki ætlan mín að skrifa ykkur neitt fréttabréf héðan. Fréttir héðan eng- ®r, sem þið mynduð hafa gaman af. Nei, hugsanabrot á bréfið að verða, iiugsana- Sbrot um starf okkar og stefnu, og svo um -sitthvað, sem því er tengt og skylt. Þó vil ég geta þess, sem okkur öllum ætti að vera fremur gleðiefni, að íslendingar eru víðar en á Islandi. Hér lifir brot úr ís- ílenskri þjóð, íslensk gestrisni, islenskur •dugnaður, ef til vill íslenskari en heima, íslensk tunga, þótt blandin sé, og islensk •œttjarðarást, Ijós og óljós þrá eftir íslensk- •um heimahögum, svo að manni skilst, ef til vill, betur hér en annarstaðar, bið forn- /kveðna, að „röm er sú taug, er rekka dreg- >ur föðurtúna til“. Víst gæti margt hér <meðal landa okkar verið íslenskara en er, jþví er ei að neita. En hins ber okkur þó heldur ekki að dyljast, að hér er verið að -skapa „canadiska11 en eigi íslenska þjóð. Sú sköpun er einn liður i framfarakerfi heimsins, og hleypidómalaust ættum við • að geta litið á þá nýju sköpun eins og hverjar aðrar framfarir, sem gerast á jörð- inni. Hver veit líka, nema héðan eigi eft- ir að berast frækorn yfir hafið heim úr gróðrinum mikla, sem hér er ó ýmsum rsvæðum, frækorn, er vaxið gætu vel og ■dafnað í íslenskum jarðvegi. Margt hefir mér borið fyrir augu, síðan •ég fór að heiman. Eg hefi séð stór og fögur söfn segja dýrðlegar sögur, séð eim- 'lestir bruna um löndin og farið með þeim óravegu á örskömmum tíma. Eg hefi séð foifreiðir og margskonar vélar vinna þau -verk, sem engin mannshönd eða dýrskraft- ‘Ur myndi geta unnið, ég hefi séð iðgræna ■ræktaða og óræktaða skóga og þroskaða hornakra. 1 stuttu móli, ég hefi séð feg- urstu tilfinningar og göfgustu hugsanir ruannanna, vitsmunaafl þeirra, hinn sterk- •asta vilja þeirra og hið mesta þrek þeirra í sýnilegri og áþreifanlegri myndum en ég hefi áður átt kost á að sjá. — En ég hefi eigi fyrir þessu gleymt heimahögunum. Góðvættur íslensk hefir jafnan hvíslað þessu í eyra mér: „Fjarst i eilífðar út- sæ vakir eylendan þín, og alt þetta mikla, sem þú nú sér, það á aö verða í framtíð hennar eign“. Og ég kannast við þessa góðu vættur, ég veit hver hún er, það er heilladísin mín, það er ungmennafélags- andinn, sem’fylgir mér landi úr landi, hvert sem ég fer. Og kallið þið það, hvað sem þið viljið, félagar góðir, þetta, að mér hef- ir stundum heyrst hún bæta þessu við: „Og það er skylda þín að stuðla eftir megni að þvi, að þetta geti orðið sem fyrst“. Nei ég hefi ekki gleymt heimahögunum. Upp úr hugardjúpinu rísa þeir, eins og þeir voru, þegar ég skildi við þá, og eins og þeir líklega verða, þegar ég kem aftur: mýrarnar blautar og fúnar, móarnir órækt- arlegir, melarnir og holtin ber, túnin græn og nýgræðingurinn leitandi ljóssins á stöku stað. Upp úr hugardjúpinu rísa þeir einnig í framtíðarskrúða í hugsjónadýrð þeirra, sem ókomni tíminn, er svo misk- unnsamur að bregða yfir það, sem vér elskum og þráum, en eigum eftir að öðl- ast. Stóru trén hér kasta engum rýrðar- skugga á smáfururnar, reyninn og birk- ið heima. Þau sýna mér miklu fremur háar islenskar framtíðarfurur, ljóssæknari reynivið, fagurlaufgaðra birki. Akrarnir hér sýna mér framtíðarakrana heima. Slétt- urnar hér, sem veita auganu enga hvíld, og eiga enga örðu hærri en nokkur fet; þær sýna mér hvað undurfalleg fjöllin heima eru og hvað þau eiga að verða enn fegurri, þegar lokið er við bið stóra og örðuga framtíðarverk, að klæða þau. Ég befi aldrei skilið það betur en hér, hvaða erindi eimlestirnar eiga upp um hlíðarnar okkar og sveitirnar, hvað vélarnar eiga eftir að umskapa margt heima, steypa því gamla og úrelta úr hásætinu, en reisa aft- ur liærra sæti, þvi nýrra, sem bendir fram. Eg finn það aldrei betur en hér, hve mik-

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.