Skinfaxi - 01.03.1912, Side 8
24
SKINFAXI
tninna vœri í húfi ]>ó heil hverfi brynnu
fyrir getuleysi að verjast voðanum.
Neitun þessi kvað hafa verið studd með
])ví, að ýms blöð, þar á meðal Skinfaxi,
hefðu gefið i skyn, að Sigurjón færi utan
til að framast í íþróttum. Það er að visu
satt, að ritstjóri Skinfaxa hélt eins og aðr-
ir menn, óvitlausir, sem þekkja Sigurjón,
að hann mundi nota þetta tækifæri eins
og önnur til að æfa sig og tullkomna, að
honum mundi meira að segja með öllu
ómögulegt að láta slíkan möguleika ónot-
aðan. En liggur í því nokkur aðdróttun
um, að maðurinn muni svíkjast um að
inna af hendi þau verk, sem hann snýst
að og fær styrk til ? Víst ekki. Sú gáfu-
lega og góðgjarna tilgáta á ekkert skylt
við Skinfaxa og fæddisl fyrst í heila háttv.
bæjarsljórnarmanna. J. J.
Baðáhöld.
Þeim, sem að því starfa, að vekja at-
hygli fólks á nytsemi og nauðsyn baða —
og þurfa þar af leiðandi, að vita hvar fá
má hentug baðáhöld, — vildi eg mega
benda á, að óvíða munu fást ódýrari né
endingarbetri og um leið fjölbreyttari bað-
áhöld, en hjá hinu nafnkunna „heilsu-
bótarverki“ Moosdorf & Hochhháusler
in Berlin S. 0, 33. Verðskrá þeirra:
„Das Bad“, má fá ókeypis senda, ogeru
í henni einnig góðar leiðbeiningar um böð.
Ættu sem ílest Ungmennafélög, er láta sér
ant um að eíla líkamsmenning þjóðarinn-
ar, að útvega sér bók þessa, og sjá svo
um pantanir og útbreiðslu baðáhalda, hvert
i sinni sveit, ekki siður en skíða eða ann-
ara íþróttatækja. — J. G.
Allmargíir ritg-erðir
hafa verið sendar Skinfaxa, sem verða
að bíða enn sökum rúmleysis. Eru höf-
undarnir beðnir velvirðingar á þeim óhjá-
kvæmilega drætti.
Útbreiðið Skinfaxa.
Kaupendum Skinfaxa hefir fjölgað um
þriðjung síðustu mánuðina. En þeim þarf
að fjölga enn meir, ekki vegna blaðsins
sjálfs, heldur vegna æskunnar í Iandinu.
Ungmennafélögin og blöð þeirra keppa um
mannssálir við sundrungarseggina í land-
inu. Okkur sýnist, að besta ráðið til
sannra framfara sé að vinna sjálfir að
því að bœta lífið í landinu. Þessvegna
útbreiðum við góðar bækur, græðum tré
kring um hýbýli okkar, æfum íþróttir, reis-
um samkomuhús, stofnum heyforðabúr,
ryðjum vegi o. s. frv. Keppinautar okk-
ar fara aðra Ieið. Þeir tala. Þeir tala
um samninga og samningsrof, um ráðherra-
brall, um lög og lagabreytingar, um stöðu
Islands i heiminum. Og um það að fá
völd fyrir sinn flokk og ráða á þingi, í
bæjarstjórnum, skattanefndum, sýslunefnd-
um og öllum þeim öðrum nefndum, sem
til eru með þjóðinni.
Við Ungmennafélagar trúum statt og
stöðugt, að okkar aðferð sé betri og göf-
ugri. Þessvegna viljum við fá sem flesta
í baráttuna með okkur. Og þeir sem lesa
Skinfaxa, fá að heyra um okkarstefnu og
okkar athafnir. Eitt hið sjálfsagðasta verk
allra starfandi félagsmanna er því að út-
breiða blaðið sem rnest þeir mega.
Ang-lýsing1.
Ritstjóri Skinfaxa kaupir háu verði
Dýravininn, árg. I., II., III., IV., VI., VII.
Félagsprentsmiðjan.