Skinfaxi - 01.04.1912, Qupperneq 2
26
SKINFAXI
Þetta gerðist helst á þinginu:
1. Lagðir fram reikningar fjórðungsins.
í sjóði voru kr. 586,47.
2. Lögð fram skýrsla um hag og starf-
semi fjórðungsins. (Utdráttur úr henni
birtist í næsta blaði).
3. íjmjttamót 1914. Svohljóðandi til-
laga var samþykt: „Fjórðungsþing Sunn-
Iendingafjórðungs skorar á sambandsstjóra,
að hlutast til um að U. M. F. í. gangist
fyrir allsherjar íþróttamóti sumarið 1914,
og að það fari fram í K,eykjavik.“
4. Lagt var fram og rætt talsvert er-
indi frá fjórðungsstjórn Norðlendingafjórð-
ungs um að ráða bót á óreglu íslenskrar
stafsetningar. En með því að þingið leit
svo á, að litlu væri hægt að koma til leið-
ar í þessu máli, var engin ákvörðun tekin.
5. Fánamálið. Þessi tillaga var samþ.
í einu hljóði: „Þingið Iýsir yfir fylsta fylgi
sínu við íslenska fánann, og skorar á öll
Ungmennafélög að vinna af alefli að út-
breiðslu hans og notkun.11
6. Skifting Sunnlendinga- og Vestfirð-
ingafjórðffngs. Svohljóðandi tillaga samþ.:
„Fjórðungsþingið skorar á fjórðungsstjórn-
ina að skrifa félögum á Vestfjörðum um
fjórðungsskiftinguna, og vinna á annan
hátt að skjótum framgangi þess, svo að það
verði útkljáð fyrir næsta fjórðungsþing.11
Viðauka tillaga: „Þingið telur heppilegast,
að fjárhagur sé sameiginlegur næsta ár,
en að félagssjóði verði skift, hlutfallslega
eftir tölu féiagsmanna, á næsta fjórðungs-
þingi Sunnlendingafjórðungs, ef skiftingunni
verði þá lokið.11
7. Þátttaka í Iþróttasambandi Islands.
Tillaga samþ.: „Með því að enn eru ekki
samþykt fullnaðarlög fyrir íþróttasamband
íslands, og ekki nægar upplýsingar fyrir
hendi, þá leggur nefndin til að kosin verði
4. manna milliþinga nefnd, er ásamt sam-
bandsstjóra leiti samninga við stjórn Iþrótta-
sambandsins um þátttöku Ungmannafélag-
anna.
Ef nefndinni virðist brýna nauðsyn bera
til, niá hún i samráði við fjórðungsstjórn
semja fyrir hönd Sunnlendingafjórðungs
um inngöngu í Iþróttasambandið.11
í milliþinganefndina voru kosnir: Tryggi
Þórhallsson, Magnús Tómasson, Þorkell Þ.
Clemenz, Sigurbjörg Ásbjarnardóttir.
8. Skógrækt. Samþykt var að veita
kr. 420,00 til að girða land það, er Tryggvi
Gunnarsson gaf U. M. F. I., að skora á
sambandssjóra að fara þess á leit við hina
fjórðungana, að þeir leggi hlutfallslega eins
mikið fé til landsins, að kjósa tvo menn
er ásamt sambandsstjóra sjái um allar
framkvæmdir í þessu máli; þessir voru
kosnir: Tryggvi Þórhallsson og Guðmund-
ur Davíðsson.
9. Heimilisiðnaður. Lára Inga Lárus-
dóttir ílutti ítarlegt erindi um málið. Sam-
þykt tillaga: „Þingið skorar á fulltrúana,
að vekja máls á heimilisiðnaði heima fyrir
í félögum sínum og gangast fyrir tillögum
um hann, fyrir næsta fjórðungsþing.
10. Fjárlögin Helstu gjaldaliðir eru
þessir: Til skógræktar kr. 420,00; til
íþrótta kr. 375,00, til fyrirlestra kr. 225,00.
Fjárlögin verða send félögunum.
11. Kosin fjórðungsstjórn. Kosningu
hlutu:
Fjórðungsstjóri: Þorkell Þ. Clemenz,
— ritari: Ásgeir Ásgeirsson,
— gjaldkeri: Björn Jakobsson.
Asg. Ásgeirsson.
Fáninn.
(Flutt aö þing-slitum á fjórðuugsþingá Suuu-
leudingafjórðungrs 4. apríl 1912.
Það er útaf yfirlýsingunni okkar um
fánann, að eg vildi segja nokkur orð.
Þó hún sé góð, og sjálfsögð í raun og
veru, þá hefði eg þó nærri frernur óskað,
að hún hefði ekki komið fram.
Það kann að þykja kynlegt. En við
erum búin að segja það nógu oft, að við
ætlum að ryðja fánanum braut — segja