Skinfaxi - 01.04.1912, Side 4
28
SKINFAXI
————• , rrr-r. .—1——r. :„ ... . ... :—.■ :. . .. —r. .-—:——. .-
I j ! SKINFAXI — mánaðarrit U. M. F. í. — kemur út f Reykjavik og kostar 1 kr. árgangurinn, erlendis 1,50 kr. RTTSTJÓRI: Jónas Jónsson frá Hriflu, Skólavörðustig 35. ., Afgreiöslumaóur: Björn Þórhallsson Laufási. Ritnelnd: Agást Jósefsson, Guðbrendur Magnússon, Tr. Þórhullsson.
á líf sitt og framtíð undir því, hvort þjóð- in vill eiga hann og elska. — ekki er hún sammála um það. En svo margir unna
honum þó, að engin líkindi eru til, að hann
verði borinn út.
Þessi fáni á að líkindum fyrir sér að
blakta yfir Islandi á komandi öldum. Hann
á að verða merki þess, hvar sem hann
sést, að þar vaki andi íslensku þjóðarinn-
ar undir.
Og þjóðin er þegar farin að elska þenn-
an fána, vegna framtíðarvonanna, sem við
hann eru tengdar. En sú ást er ekki heit
eða viðkvæm enn sem komið er. Og hún
er ekki almenn. íslendingar eru jafnan
tómlátir og seinir til.
Fáninn hefir orðið að ásteitingarsteini i
stjórnmáladeilunum. Og eins og nú standa
sakir, eru opinberar umræður um hann
þýðingarlausar, og gætu jafnvel orðið til
ills. Og við verðum að hlífa fánanum við
því að velkjast á meinsemdum þjóðfélags-
ins.
Nú eigum við að vinna að því í hægð
og kyrþey að ryðja honum rúm í huga
þjóðarinnar. Eggjunarorðin gera fremur
að spilla en bæta; þau eiga svo lítinn
hljómgrunn í íslenskum hjörtum.
Við, sem enn erum ung, fáum þennan
fána ef til vill löghelgaðan og ef til vill
ekki. En við skulum þá sýna hann börn-
unum, sem seinna eiga að taka við hon-
um, og koma þeim í skilning um, hvað
hann þýðir. — Við eigum að gróðursetja
hann svo með þjóðinni, að þegar hún loks
fær fullt leyfi til að eiga hann, þá verði
enginn ágreiningur lengur — þá verði all-
ir á einu máli að fengnum sigri.
I þessu efni er verksviðið ekki hvað síst
í sveitunum. Eg vildi brýna það fyrir
þeim, sem þar búa og starfa.
Þjóðinni þarf að skiljast hvað felst í
þessum orðum skáldsins:
„Skín þú, fáni, eynni yfir
eins og mjöll í fjallahlið.
Fangamarkið fast þú skrifir
fólks í hjartað ár og síð.
Munist hvar sem landinn lifir
litir þínir alla tíð.
Hvert eitt landsins fley, sem flýtur,
fáni vor, þig beri hátt.
Hvert þess barn, sem Ijósið Iítur,
lífgar vonir, sem þú átt.
Hvert þess líf, sem þver og þrýtur,
þínum hjúp þú vefja mátt.
Meðan surnarsólir bræða
svellin vetra um engi og tún,
skal vor ást til íslands glæða
atl vort undir krossins rún,
djúp sem blámi himinhæða
hrein sem jökultindsins brún“.
H. S.
Um fundahús.
A fjórðungsþingi Sunnlendingafjórðungs
að Þjórsártúni síðastliðið sumar var því
hreift, hvort þingið sæi sér ekki fært, að
styrkja Ungmennafélög til þess að koma
sér upp fundahúsum. Því var strax svar-
að af þeim mönnum, sem voru i nefnd,
til að gera áætlun um fjárlög félagsins
næsta ár, að fé það, sem fjórðungurinn
hefði til meðferðar, væri svo lítið, að ekki
gæti komið til mála að gera það. Samt
sem áður var það einróma álit þeirra, sem
nokkuð töluðn um þetta mál, að það
væri hið mesta nauðsynjamál og mun það
álit vera alment í Ungmennafélögunum.