Skinfaxi - 01.04.1912, Síða 5
SKINFAXI
29
Mig langar til i línum þessrm, að tala
um veg til að koma upp fundaliúsum og
þörf þeirra og þýðingu.
Eg vil þá fyrst fara nokkru orðum um
þau Ims, sem bygð hafa verið.
Þau Ungmennafélög, sem eg veit til að
hafi komið sér upp sfeinsteypuhúsum til
fundarhalda eru félög Reykdæla og Brúin í
Borgarfirði. Hús Ungmennafélags Reyk-
dæla er 8X12 álnir að innanmáli, rúmar
4 álnir að vegghæð. Veggir óþiljaðir innan,
en sléttir vel. Þak er úr járni og undir
því pappi og 1 þumlungs þykk horð, plægð.
Loftið þiljað í hálfhvelfing með panel. 3
gluggar eru á hvorri hlið, dyr á stafni. I
fyrstu átti að þilja húsið í sundur, en þeg-
ar til kom, þótti það of lítið til þess. Kostn-
aður við að koma húsinu upp var 1500 kr,
Hús Ungmennafélagsins Brúin er 1H1/^
X7y2 alin að innanmáli, bygt á sama
hátt og hitt, nema í öðrum enda þess eru
tvö afþiljuð herbergi lítil; myndar annað
inngang inn í aðalhúsið, hitt er til hliðar
við það. Eins og nærri má geta eru þetta
engar skrautbyggingar, en þau svara nokk-
urnveginn þeim kröfurn, sem Ungmenna-
félög í sveit geta gert til fundahúsa. Helsti
galli á húsi Reykdæla er, að það er
heldur stutt til þess að þilja af því her-
hergi til að fara úr vosklæðum í o. íl.
Væri það 2 álnum lengra, myndi það
vera viðunandi, með sama meðlimafjölda:
40—50.
En hvernig var fengið fé til að koma
húsum þessum upp?
Það var mjög svipað í báðum félögun-
um, og í Ungmennafélagi Reykdæli var það
á þennan hátt:
Fyrst var stofnað hlutafélag með 10 kr.
hlutum innan félagsins og fengust þannig
um................................. 700 kr.
Félagið hélt hlutaveltu og var
ágóði við hana um ............... 300 —
Félagið lagði frarn úr sjóði sín-
um................................ 150 —
Meðlimir unnu allir 2 daga fyrir
ekkert endurgjald og má reikna
það að minsta kosti................ 150 —
Lánað var hjá einum télags-
manni nær . . . ................... 200 —
Samtals: 1500 —
Um hlutaféð er það að segja, að Ung-
mennafélagið borgar 5°/0 i vöxtu af því
árlega, og hefir gert samning um að
draga úr eftir 3 ár 5 bréf árlega til
útborgunar. Það gekk mjög greiðlega að
fá hlutafé þetta og 180 kr. voru aldrei
notaðar af því sem lofað var. Hlutavelt-
an var haldin, þegar húsið var fokhelt og:
unnu félagsmenn að henni, og veitingum
við hana, endurgjaldslaust.
Frívinnan, sem við svo köllum, var unn-
in af öllum félögum, einn dag hvorum,
þegar húsið var bygt og einn dag árið
eftir, við að slétta og laga í kring um
það, og býst ég við, að þannig verði unn-
ið 1 dag árlega í Ungmennafélagi Reyk-
dæla, þegar það hefir eitthvað verklegt með
höndum. Þess má geta, að lánið, sem fé-
lagið tók, um 200 kr, lánaði einn áhuga-
samur félagsmaður tryggingarlaust, en nú
eftir tæp 3 ár er búið að endurborga lái>
þetta.
Þegar menn hugsa um fjárhag Ung-
mennafélaganna, þá er von að menn láti
sér vaxa í augum þann kostnað, sem af
því leiðir að byggja hús. Hér að framau
hefi ég lýst, hvernig ársgamalt félag kom
því i framkvæmd, og ég er í engum vafa
um, að mörg félög gætu farið eitlhvað
líkt að.
Ef sameiginlegur vilji er, þá er fljóttað
safnast hlutafé, þó ekki sé farið út fyrir
takmörk félagsins. Áhugamennirnir sem
dálítil fjárráð hafa láta t. d. alt að 100 kr. og
flestir, helst allir geta látið 10 kr. Félag-
ið ætti að geta svarað rentu af fénu og
þá er þetta eins og sparisjóður.
Hlutaveltur eru vitanlega gallagripir, og
þar er mikið komið undir félagsmönnum
sjálfum með starf og framlög.
Til sveila, þar sem hlutaveltur eru
ekki orðnar alt of algengar, eru þær fé-
þúfa, einkum ef skemtun er með og starf