Skinfaxi - 01.01.1913, Qupperneq 8
8
SKINFAXI
fjórðungi þannig, að félögin norðan Skarðs-
heiðar yrðu sér í sambandi, og að yfirleitt
kæmu áttungssambönd i stað fjórðungs-
sambanda.
Eitas'ófnunin.
Áður kvittað fyrir R7 kr. Síðan hafa
bæst við 25 kr. frá U. M. F. Iðunni, 3
kr. frá U. M. F. Drífanda og 5 kr. frá
U. M. F. Skjaldborg í Meðallandi. Sam-
tals 70 kr. Kunnugt er um nokkur félög
sem eru að safna. Yert að gera pað sem
gera á í snerpunni.
SKINFAXI
— mánaðarrit U. M P í. — liemur út 1 Reykjavík
og kostar 1 kr. árgangurinn, erlendis 1,50 kr.
RTTSTJÓRI:
Jónas Jónsson frá Hriflu.
Skólavörðustig 35.
Afgreiðslumaður:
Bjarni Þ. Magnússon Skólavörðustig 4 B.
Ritnelnd:
Agúst Jósefsson, Guðbrandur Magnússon,
Tr. Þórlinllsson.
Kappsund
var háð á Akranesi sunnud. 20. október
milli U. M. F. Akraness og U. M. F.
„Hauks“ í Leirársveit. Það hófst kl. 3 e.
h. og fór fram í Lambhússundi, er skerst
inn í vestanvert nesið.
Þatttakendur voru 11 alls; 5 Akurnes-
ingar og 5 Leirsveitingar.
Múgur manns hafði safnast saman niður
við ströndina, til að horfa á sundmennina
og auk Akurnesinga höfðu fjölmargir kom-
ið úr nærsveitunum.
Sundleiðin nam 50 stikum og synti einn
í einu.
Árni Böðvarsson úr flokki Leirsveitunga
reyndist fljótastur.
Að loknu sundinu komu menn saman í
Báruhúsinu, og þar var sigurvegaranum
ofhentur varðlauuapeningur. Þá voru ræð-
ur fluttar og sungið, og á eftir ræðunum
fóru fram leikir og dans.
Þetta sundmót er nýung í sögu Akra-
ness og nærsveitanna, og virðist vera dag-
boði íþróttalífs þeirra í framtíðinni. Og
eílaust verður það til að örva menn í fram-
tíðinni gegn deyfðarfæddum hindurvitnum
og fáfræðisvenjum, sem lengi hafa tak-
markað útbreiðslu sundkunnáttunnar.
0 Sv.
Nýárssundið.
Þeir voru að eins 4 sundmennirnir, er
þátt tóku í nýárssundinu að þessu sinni.
Hlutskarpastur varð — eins og í fyrra —
Erlinc/ur Pálsson. Hann svam 50 stikur
á 384/6 sek. (í fyrra 37'/2 sek.) næstur varð
Sig. Magnússon (444/0 sek.), þriðji Sigurjón
Sigurðsson (47 sek.), fjórði Guðm. Kr. Guð-
mundsson (494/5 sek.).
Leiðrétting-.
í „Skinfaxa“ — 10. tölubl. þessa árg.
(1912) er sagt að U. M. F. Dagrenning
hafi ekki sent skýrslu fyrir árið 1911 til
fjórðungsstjórnarinnar.
Ut af því vil eg taka fram, að skýrsla
frá félaginu — ásamt fjórðungsskatt — var
afhent fj'órðungsstjóra í janúarmánuði síð-
astliðnum.
Að félagið hafi ekki sent skýrslu er
því rangt.
í stjórn U. M. F. Dagrenning 23. nóv. 1912.
Jón Ivarsson.
Tilkynning
fríi stjérn Sunnlending-afjórðung-s.
Ný sambandsfélög:
U. M. F. Baula, Mýrasýslu.
„ „ „ Björn Hítdælakappi, Mýrasýslu.
„ „ „ Garðurinn, Gullbringusýslu.
„ „ „ Meðallands, Skaftafellss.
Þessi félög hafa sent skýrslu osr skatt
fyrir 1912:
U. M. F. íslendingur.
„ „ „ Stokkseyrai-.
Skatt en eigi skýrslu:
U. M. F. Drífandi.
„ „ „ Samhvgð.
Félagsprentsiniðjan.