Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.1913, Blaðsíða 6

Skinfaxi - 01.03.1913, Blaðsíða 6
SKINFAXI um, liklega svo að fremur væri undan- komu von, þó bærinn væri umkringdur af óvinaliði. Á veggbrotunum vaxa burnirót og smjörgras, útlagar sjálfir og viðskila við alt sitt kyn eins og útileguhjónin, sem börðust hér áður við örlögin, mennina og náttúruna árum saman. Hér er sumarfallegt, en ægilegt, jökla- sýnin er tignarleg, Sandurinn á aðra hönd en Þjórsá á hina. Beint á móti rís Arn- arfell upp úr Hofsjökli milli tveggja skrið- jökla og er þ'angað undur fagurt að líta. En hér er sumarið stutt, veturinn langur, grimmur og dimmur. Þó ekki væri annað en þola vetrargustinn af endalausum snjó- breiðunum þarftilþess sterk bein. Enda er haft eftir Eyvindi, að hann ætti engan óvin svo illan, að hann vildi óska honum að lifa þar við sín kjör. Ur Eyvindarveri eru 70 km. að næsta grasbletti við Kiðagil í afrétt Þingeyinga, jafn langt og úr Rvík austur að Þjórsár- brú. Jafnvel þó menn séu vanir fjallgörð- um og vegleysum gefur það enga hugmynd um Sprengisand. Maður ríður þar klukku- stund eftir klukkustund yfir öldumyndaðan, smágrýttan mel, þar sem hófurinn mark- ar ekki dýpra spor en á nýlegum malar- vegi. Hér og þar eru tjarnir og smá læk- ir en hvergi stingandi strá, ekki mosi eða skófir á steinum, engin kind, enginn fugl eða fluga. Ekkert hljóð heyrist, nema hófaslátturinn og þytur vindsins við mel- inn. Hestarnir eru óðfúsir áfram í von um gras og haga; þeir stökkva og mel- öldurnar jjjóta fram hjá eins og fugl fljúgi. Þó breytist ekkert nær manni, alt af sama auðnin. En himininn breytist, það hættir að rigna, loftið verður tært, skýin blá. Norð- urbrún Yatnajökuls kemur fram, löng og hvít; Kistufell Ijómar yfir alt eins og gull- altari, nýfallið af himnum. Askja, Dyngja og Herðubreið gnæfa yfir Odáðahraun. Norðlendingurinn sem leitar til átthaganna kannast við þessi einkenni, þekkir sinn himinn, sitt loft, sín fjöll, hugurinn ber hann hálfa leið, en alt kemur fyrir ekki’ Sandurinn er endalaus, hestarnir fara að letjast af áreynslu og sulti, það líður að kvöldi, ekkert sést til áfangastaðar. Þá fyrst skilja menn að Grímur vildi gefa vænsta klárinn til að vera kominn ofan í Kiðágil, þar er hagi. 1 kvöldhúminu tek- ur ferðamaðurinn að sjá ofsjónir, ekki borgir og pálmalunda, heldur grasivaxna fláka jafnvel að eins einhverskonar lítil- fjörlegan lífboða, skófir og mosa, en þeg- ar nær kemur eru alt þetta berir, gráir steinar, sem óskir og ímyndanir hafa vafið grænum gróðri. Um siðir kemur Kiðagil; sandinuni og ferðinni er lokið. Og á eftir þegar maður fer sömu leið i endurminningunni, á einu andartaki, þá er ekkert jafn átakanlega minnisstætt, eins og óbeitin á auðninni, á dauðanum í náttúrunni, og hinsvegar löng- unin eftir að sjá og vita lífi lifað í kring um sig — jafnvel þó það líf sé ekki full- komnara en skófanna á steinunum. J. J. Baugabrot.* Dásemd sveitavinnu og- sveitalifs. Af öllum mentastofnunum eru góð sveita- heimili líklega fullkomnust til að þroska ung- linga. Ber margt til þess: Holt urnhverfi, frelsi, einfeldni í siðum og háttsemi og þó einkum margbreytni vinnunnar. I ungdæmi mínu fyrir hálfri öld voru margir þeir menn hér í landi sem kunnu og unnu ekki minna en sextíu tegundir verka, sem nú eru orðnar sérstakar atvinnugreinar a. m. k. í bæunum. * Skiníaxi rnun birta með þessari fyrirsögn smágreinar ýmislegs efnis eflir merka höfunda innlenda og útlenda. Séu greinarnarþýddar verða þœr um leið styttar að jal’naði. Þessi grein er eftir einn ágœtasta uppeldisfræðing nútímans, Stanley Hall í Bandaríkjunum.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.