Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1913, Blaðsíða 1

Skinfaxi - 01.06.1913, Blaðsíða 1
6. BLAB REYKJAVÍK, JÚNÍ 1913. IV. ÁR Dagarnir líða. Eimskipa- Fyrir skömmu gerðist merkileg- félagiö. ur atburður hér á landi. Það var stungið upp á að gera nokkuð þjóðinni til gagns, og allir urðu sammála, í byrjun- inni a. m. k. Allir flokkar, öll blöð og allar stéttir lögðu blessun sína yfir áformið. Þessi vinsæla hugsjón var stofnun íslenska Mmskipafélagsins. Danir valdir að Hverju sætti þessi sjald- samlyndi okkar. gæfa eindrægni? Hún átti sér margar rætur, en aðallega í ólag- inu, sem verið hefir á samgöngum okkar á sjó, bæði til útlanda, og með ströndum fram. Danir hafa haft allar siglingar fyrir okkur með höndum í mörg hundruð ár, og er þar ekki margs að minnast, sem þakkavert er. En sú kynslóð sem nú lifir mundi sennilega hafa grafið gamlar syndir Dana i gleymsku, ef ekki hefðu verið nóg skapraunarefni í framkomu Dana nú á áögum, í siglinga-aðgerðum þeirra hér. Þeir hafa miðað ferðirnar til útlanda oingöngu við Danmörku og telja sjálfir, að þeir græði miljón króna árlega á íslensku versluninni, en það er vitanlega of lágt talið. Er Dönum því mikið í mun að halda okkur í verslunarböndum við sig. Engar feröir hafa þeir viljað milli Islands og annara landa, ef þeir mættu ráða. Og þótt skip Dana, er til Islands fara, komi oft við í Leith, þá reyna Danir að bægja okkur frá viðskiftunum við England, með að hafa fargjöld og flutningsgjöld þangað óhæfilega há. Þó færðist skörin upp i bekkinn í vetur, þegar Sameinaðafélagið lagði okurgjald á varning milli íslands og Þýskalands, svo að nærri stappar nú fullri verslunarþrælkun undir Dönum. Þannig hefir skipaeinveldi Dana verið notað okk- ur til tjóns, en þeim til góðs. En í við- bót við efnalegt tjón, sem leitt hefir af samgöngum þessum, ern önnur mein sem minna ber á í fljótu bragði en voru þó engu hættuminni. Ferðirnar tengdu nienn- ingarbönd okkar eingöngu við Danmörku, og návist Dana við stjórn á skipum kring- um landið hefir sifelt verið öllum hugsandi íslendingum mikið skapraunarefni. I sjálfu sér eru Danir raunar góð þjóð, og mega heita sanngjarnir í viðbúð við flestar aðrar þjóðir, enda oft oröið að kenna þar atls- munar og lúta í lægra haldi. En gagn- vart Islendingum, og ekki síst á skipunum, hafa þeir sífelt beitt yfirlæti uppskafnings- ings; eru dæmi þess öllum helst til kunn, enda hefir áður í þessu blaði verið sýnt fram á meðferðina á Islendingum á dönsku skipunum, og stóróheillavænleg áhrif hins danska einveldis í menning Islendinga. En íslenska samlyndið í þessu máli er þó Dön- um að þakka. Fjársöfnunlu Aðgerðir hafa verið skjót- gengiö greiðlega. ar og góðar; fé Jiefir safn- ast til skipanna fram yfir allar vonir, og má nú heita liklegt, að fyrirtækið komist í framkvæmd innan skamms. Tvær Þó er ekki alt búið þá. Skipa- hættur. félagið getur mætt tvenskon- ar hættum, og er mikil nauðsyn, að þjóðin viti hvernig þeim er háttað.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.