Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1913, Blaðsíða 3

Skinfaxi - 01.06.1913, Blaðsíða 3
SKINFAXI 43 mundi gera, ef l>að lifði. um, og félagsdauðanum eins og sóttkveikj- urnar dauða einstaklinganna. Hvað félagið Eimskipafélagið er stofnað vegna alþýðunnar í landinu. Ef því farnast vel, er það henni til mesta gagns. Þá mundi það breyta verslunar- og menningarleiðunum smátt og smátt, losa okkur úr læðingi Dana en knýta okkur viðskifta- og menn- ingarlega við öndvegísþjóðir heimsins, Þjóð- verja og Englendinga. Það mundi losa okkur við danska yfirlætisbraginn gagn- vart íslenskum farþegjum. Það mundi gera mikið til að veita okkur það sjálf- stæði, sem hingað til hefir átt að fá með fánýtu lögfræðisformi. Ef félagið Ef illa gengur, ef félagið fer Jirynur. ^ hausinn, þá harmar alþjóð Islendinga en Danir hlæja. Þá verður ástandið eins og það er nú, að viðbættri ósigufstilfinningunni og skaðanum. Hlutverk eig-enda Mesta viðfangsefnið verð- og kaupeuda. ur ag félaginu vel við. Það gera hluthafar best með því að vera vandir að stjórn, með þvi að út- skúfa þaðan öllum, sem hafa blett á fjármálaskildi sínum, öllum sem eitt- Jivað Jiafa verið eða eru riðnir við fjár- glœfrar eða félagslirun. En kaupendur allir í landinu, sem vilja heill íslands, og þrif félagsins, verða að versla eingöngu við þá, sem flyta á islensku skipunum. Állsherjarsamtök þurfa að myndast í landinu móti al-dönsku og hálf-dönsku verslunum. Voldugur armleggur þjóð- arviljans verður að knýja þœr til láta vera að framselja landið í 'ovina liendur. J. J. fslensk náttúra. Um Rangrárvelli og Fijótshlíð. Kigningar miklar og sifeldar höfðu lengi gengið. Hin breiða og þunga Þjórsá var að æsast, og ferjumaðurinn fékk sig full- reyndan við að ná í landtökustaðinn. — A hinum bakkanum er bærinn Þjórsárholt þegar horíinn í móðu. Við ríðum yfir móa, svarta hraun-sanda, mýrar og lygna læki, alla þá rigningargráu nótt. Við sjáum ekki nema fáeina faðma frá okkur, en það sem nærliggureralt sviplaust, ogandar ámát- legu þunglyndi frá sér. Við vitum þó af tignar- legum fjöllum í suðri og austri, af einni risavaxinni eldbungu, björtum tindóttum jökli — öll er dýrð sú, sem hún væri ó- sköpuð enn. — Um morguninu er farið að fyllast þetta móðu-ginnungagap; nátt- úran hefir verið í sköpunar-hríðum, meðan við sváfum. Nú rís Hekla, fölblá hvelfing, yndislega löguð, úr svartri, storknaðri hraun- iðu. Mjúklituð brot af Tindafjallajökli hanga innan um þokuhnoðrana, tveir tind- ar eru þó fullmyndaðir; hvassir og hrukk- óttir ljóma þeir i björtu skýja-rofi. Suðrið er lokað af drungalegum hæðum, en mitt í þeim, beint undan okkur, situr Þríhyrn- ingur, svartur, skýr og beinaber. Leiðin liggur yfir Eystri-Rangá; nú ríð- um við upp með ánni sunnanverðri, að móhellum þeim, þar sem Gunnar barðist, vó Skammkell upp á atgeirnum og fleygði á höfuðið. Brátt er komið að hæðunum og inn í lítið skarð; þar er maður inni- luktur af moldarveggjum, og saknar víð- sýnisins. Skyndilega opnast gluggi á vinstri veggnunn og sér i hrikalegt svart horn. Aft- ur gluggi til vinstri handar og tvö horn gnæfa við himin, átakanlega nálæg; enn þriðja hornið í fjarska, eins fölt og gljá- andi og hin eru svört og ójöfn: það er ein gnípan á Tindafjallajökli. Eftir dálít- inn tíma er Þríhyrningur allur kominn: þrjú hvöss, hrufótt horn, skemd af beinátu eins og gamall risajaxl; jökullinn tindótti stingur gnýpum sínum nppíloftið; manni liggur við að hugsa að hér sé of mikið um tennur, og kennir beygs af þessum neðri kjálka veraldarinnar. Nú hallar suður af, og vonum bráðar

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.