Skinfaxi - 01.09.1913, Page 7
SKINFAXI
71
sem hann er grafinn. Gjafir til minnis-
varöans má senda Sigurði Nordal, Dosse-
ringen 6TI í Kaupmannahöfn, eöa Jónasi
Jónssyni, Skólavörðustíg 35, Rvík.
Alþjóða-skautaþingr
er ný-afstaðið í Budapest. Um leið héldu
skíðamenn samskonar fund í Bern á Sviss-
landi. Norðmaðurinn Dahl var kosinn for-
seti sambandsins, ákveðið að næsti fundur
skuli vera i Kristjaníu að vetri.
Loft- og sólböð
tíðkast nú meir og meir í öðrum lönd-
um, en mega heita algerlega óþekt hér á
landi. Menningaþjóðir fornaldarinnar höfðu
mikla leikvelli þar sem ungir og gamlir
gengu klæðlausir til að hressast af sólskin-
inu og loftinu. A miðöldunum var við-
kvæði allra að „holdið verðskuldaði enga
vægð“, og var hreinlæti alt og líkamsmenn-
ing þá í mestu niðurlæging. Loftböðin
féllu í algerða gleymsku þar til Svisslend-
ingurinn RiMi kom þeim á fót að nýu
1855. Hafa þau útbreiðst stórum síðan,
og mega heita algeng í og við allar stór-
borgir í Evrópu. Mjög víða er sameinað
i eitt, sjóbað, sólbað og loftbað. Liggja
þeir baðstaðir við sjó, völlur allmikiil, lukt-
ur hárri girðingu. Menn sem venja sig á
að láta hreint Ioft leika um líkamann,
nokkra stund á dag, geta varla verið án
þess fremur en matar og drykkjar. Ef til
vill mætti nota einhvern hluta Iþróttavall-
ins til loftbaða, með dálitlum breytingum.
KappróÖrar
eru nú einhver almennasta íþrótt úti í
löndum, en óþekt hér. Kappróðrarbátar
eru dýrir mjög 200—1200 kr. eftir stærð,
mjög þunnir og Iéttir, gerðir úr mahogni
og öðrum dýrum og þéttum viðartegund-
um. Eftirfarandi tölur sýna nokkuð róðra-
huga ýmsra nábúa þjóða.
Frakkland 108 róðrarfélög, félagar 9000
Þýzkaland — 50000
Svíþjóð 15 — — 1690
Danmörk 34 — — 3160
Noregur 7 — — 900
Heilsufræðingar
héldu nýlega alþjóðafund i París. Á-
kveðið að leita meir en gert hefir verið
samvinnu við lækna í íþróttaefnum til að
tryggja íþróttamenn gegn öfgum af illa
völdum kappraunum. Þar voru sýndýms
leikfimiskerfi, en hin sænska leikfimi þótti
bera langt af öllum hinurn. Verður það
sennilega til að auka meir gengi hennar í
Suðurlöndum.
Maraþons-lilaup
á Englandi fór fram frá Windsor tit
Stamford Bridge nýlega. Sigurvegarinn,
sænskur maður, Ahlgren vann hlaupið, var
2 klst. 36 m. 6 sek. Þessi leið er næstum
eins og milli Þingvalla og Rvíkur.
íþróttanámsskeið
Sunnlendingafjórðungs.
Iþróttanámsskeið fyrir væntanlegaíþrótta-
kennara verður haldið í Reykjavík frá 1.
nóv. til 6. des. n. k. Kendar verða flest-
ar þær íþróttir, sem nú eru æfðar hér á
landi, en mest stund lögð á þær greinar,
sem líklegast þykir að koma megi við í
sveitum hér á landi eins og ástæður eru
nú. Bestu íþróttakennarar og íþróttamenn
Rvíkur hafa lofað aðstoð sinni við kensl-
una, hver í sinni grein.
Þátt-takendur verða að vera í einhverju
U. M. F. í S. F., hafa nokkurt orð á sér
sem vænlegir íþróttamenn, og geta sýnt,
að formenn í nokkrum U. M, F. vilji fá
þá til íþróttakenslu fyrir félög sín, er þeir
hafa lokið námi. Fjórðungssjóður borgar