Skinfaxi - 01.10.1913, Qupperneq 4
76
SKINFAXI
SKINFAXI
— mánaðarrit U. M. F. i. — kemur út f Reykjavík
og koatar 1 kr. árgangurinn, erlendis 1,50 kr.
RITSTJÓRI:
Jónas Jónsson frá Hriflu,
Skólavörðustig 35.
Afgreiðslumaður:
Bjarni Þ. Magmísson Skólavörðustlg 6 B.
Ritnetnd:
Agúst Jósefsson, Guðbrondur Magnússon,
Tr. Þórhallsson.
íþröttamótið í Borgarfirði
eftir
Bjarna Asgeirsson.
I.
Til þess efndi ungmennasamband Borg-
arfjarðar, en í því eru ílest sambandsfélög
í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu. Var það
haldið að Hvítárbökkum 10. ág. síðastlið-
inn bjá skólasetri Sig. Þórólfssonar. Dag-
urinn var einn af þeim fáu þurru dögum,
sem þeim héruðum hlotnaðist á þessu sumri
og var þar því, eða þó, saman kominn
fjöldi manna. Enda er staðurinn sjálfkjör-
inn samkomustaður þeirra héraða fyrir
margra hluta sakir. Bakkar eru þar mikl-
ir og því einkar hentugir fyrir svona leik-
mót. Einnig er héraðið- þar umhverfis
mjög fagurt og aðlaðandi, og vegir að
staðnum góðir, nema hvað Hvítá er nokk-
ur farartálmi fyrir þá, sem vestan að koma.
En úr því er auðvelt að bæta með nokk-
urri fyrirhyggju.
Mótið setti að líðandi hádegi Bjarni Ás-
geirsson í Knarrarnesi, en ræður fluttu þeir
síra Tr. Þórhallsson á Hesti, Halldór skóla-
stjóri á Hvanneyri og Valtýr Nielsson bóndi
á Grímsstöðum. Að endingu skýrði for-
maður sambandsins, Jón Hannesson bóndi
í Deildartungu frá vinningum á mótinu og
sleit þvi síðan. Þess á milli voru þessar
íþróttir háðar: Sund, íslensk glíma og
hlaup, 100 m. og 500 m. Auk þessa
sýndi flokkur manna leikfimi undir stjórn
Einars Jónssonar leikfimiskennara á Hvann-
eyri og voru það aðallega skólasveinar
þaðan.
Synt var í Hvítá sjálfri með því að ekki
fékst annar staður heppilegri. Um 20
menn tóku þátt í þvi. Svámu þeir200m.
í blágráu, járnköldu jökulvatninu, en áhorf-
endur röðuðu sér á bakkann með-
fram ánni. Syntu ekki nema einn eða
tveir í senn. Vegna þess að straumur
var með, gekk sundið fyr enn ella, en af því
að hann var fremur jafn breytti hann ekki
öðru en því að hraðamunur manna varð
nokkru minni en annars hefði orðið. Af-
girt svæði var fyrir glímur og leikfimi, og
stóðu menn umhverfis og horfðu á. Hvert
félag sendi 3 menn til glimunnar, og voru
þeir táknaðir, eftir gæðum, með tölunum
1, 2 og 3. Þegar til mótsins kom, var svo
glímt i þrennu lagi. Saman glímdu allir
þeir er táknaðir voru sömu tölu; allir bestu
glímumenn hvers félags í 1. flokki o. s.
frv. Að loknum glímunum voru lagðir
saman vinningar hvers félags í öllum flokk-
unum, og bar það félag sigur úr býtum,
sem tlesta hafði vinningana, eða með öðr-
um orðum, sem átti jafnbesta glímumenn.
8 félög tóku þátt í glímunni, en 7 í sund-
inu sökum þess að einn mann vantaði frá
einu félaginu. Allvandaðir verðlaunaskild-
ir vorn veittir fyrir glímur og sund, og hlaut
U, M. F. Reykdæla þá báða. Eu fullkom-
in eign þess verða þeir ekki, nema það
vinni þá þrisvar í röð, en þau afdrif ætlar
þeim víst ei nema eitt félag. Verðlauna-
skjölum var útbýtt til besta glimumanns,
sundmanns og hlaupara. Bestur glímu-
og sundmaður var Sigurður Gíslason úr
U. M. F. íslendingur. í 500 m. hlaupinu
var Karl Guðmundsson hlutskarpastur, en
Bjarni Hallsteinsson í 100 m. hlaupinu;
þeir eru báðir í U. M. F. íslendingur.
Þetta var hið fyrsta opinbera íþróttamót,
sem haldið hefir verið i þessum héruðum
á síðari tímum; var þvi auðvitað þar meiri