Skinfaxi - 01.11.1913, Page 5
SKINFAXI
85
mentum fyr og síðar. Einar er djúpvitur
maður að náttúrufari, og lifir ríkara lífi í
höfuðbólum heimsmenningarinnar, heldur
en fallið hefirí hlut annara manna af þjóð-
stofni okkar. Er því ekki furða, þótt súg-
ur sé í vængjataki hans. Sú skaðlega trú
hefir komist inn í huga margra manna, að
gull Einars sé fólgið í flóknu völundarhúsi
en það er spá mín, að flestum sé gull hans
auðunnið, ef þeir knýja á dyrnar. Einkenni-
legter, að um sama leiti og Hrannir birt-
ast, kom út í Skirni eftir Einar smágrein
sem heitir Strœtapentarinn, aðeins þrjár
síður, en svo snildarlega rituð, að manni
finst Einar enn þá meiri rithöfundur en
ljóðskáld.
En eins verða þeir að gæta, sem dást
að afburðum Einars Benediktssonar: Form
hans og efnismeðferð er svo sérkennileg
að engum mannier fært að taka sér það til
fyrirmyndar. Vopn Goliats eru hlægileg
nema í höndum afarmennis.
Þá hefir Bjarni frá Vogi komið með
annað bindi af sögubálknum Forfeðurnir
eftir þýska skáldið Freytag, og heitir þessi
bók Ingvi-Hrafn. Freytag er stórfrægur
maður og hefir hann svo að segja ritað
alla sögu þjóðar sinnar í sagna bálki þess-
um. En Bjarni er ágætis-þýðandi, bæði
smekkmaður á mál og mentir. Er rétt að
geta þess sem gert er. Og þó skiftar séu
skoðanir um Bjarna, svo sem verða vill um
stjórnmálamenn, þá verður aldrei af hon-
um tekið, að hann hefir auðgað okkur
mest að skemtilegum þýðingum útlendra
snildarverka, næst Steingrími og Mattíasi.
íþróttir.
íþróttir og: íhaldsiucnn.
Margir góðir og gætnir menn lita horn-
auga til íþróttastarfsemi þeirrar, er ung-
mennafélögin hafa af stað komið i land-
inu. Þeir segja, að íþróttirnar dragi á-
hugann frá vinnunni, geri unga fólkið gá-
laus, hugsunarlítil börn. Frá okkur hálfu er
svarað, að alstaðar séu öfgar til, en að
langoftast hafi íþróttirnar hin allra heppi-
legustu áhrif á vinnuþol, viljastyrk og
velgengni mannsins.
Hvorir hafa réttara?
Fyrir fáum dögum fóru nokkrir menn
úr Rvik til Eldeyjar á súluveiðar. Einn
maðurinn hrapaði í berginu, neðarlega, og
datt í sjóinn. Brim var mikið. Enginn
sá þegar hann hrapaði; skipið og bátur-
urinn voru langt frá. En maðurinn var
prýðilega syndur; tókst honum að hafa sig
úr brimgarðinum við hamrana, og synda
að bátnum. Þá fyrst urðu félagarnir var-
ir þessa atburðar og björguðu honum.
Um sama leyti brolnaði planki undan
fótum manns, sem vann ó enda hafnar-
garðsins við Rvík. Hann féll i sjóinn.
Hann var ósyndur, fór í kaf, kom upp úr
aftur skamt frá. Félagarnir köstuðu borð-
um í áttina til hans. Þau komu nærri
honum, eu ekki svo hann næði í þau meft
hendinni. Bátur var þar örskamt frá.
Honum var hrynt fram, en þegar á stað-
inn kom var maðurinn sokkinn og drukn-
aður. Hann skildi eftir konu og fimm
ung börn.
Hvorir hafa réttara?
Olyinpiu-undirhúning'ur.
Nefnd sú í London er safnar fé til a5
undirbúa leikina fyrir Breta hönd hefir nú
þegar safnað liðugum 7000 sterl.pundum.
Þjóðverjar sendu nefnd manua til Banda-
ríkjanna til að kynnast undirbúningi Banda-
manna. Hún hefir valið þar einn hinn
jafnvígasta iþróttamann, Alvin C. Kraenz-
lein til að hafa alla stjórn og umsjón með
hinum þýska olympiu-flokki. Kraenzlein
er ráðinn til 5 óra og á að hafa um 180,000
kr. kaup fyrir allan tímann, Hann sest
nú að i Berlín, með 4 hjólparmenn frá
Ameríku.
Norðmenn hafa ákveðið að taka þátt í