Skinfaxi - 01.06.1914, Qupperneq 1
S&\xvjaxv
6. BLAÐ
REYKJAVÍK, JÚNÍ 1914.
V. ÁR
Hvar eiga skólarnir að vera?
Það kemur þjóðinni talsvert við, hvar
skólarnir hennar eru settir, hvort heldur
er litið á kostnaðinn, sem þjóðin óneitan-
lega þarf að borga, eða gagnið sem hún
á, að njóta. Þingið og leiðandi menn okk-
ar hafa svarað þessari spurningu svo, að
skólarnir œttu helst að vera í kauptúnum.
Þar eru allir þeir skólar, sem þing og
stjórn hafa stofnsett, nema bændaskólarn-
ir; kom þó til orða nyrðra, fyrir fáum ár-
um, að ílytja Hólaskóla að Kjarna við Akur-
eyri.
Tvær mót- Þegar þessi mál hafa verið
foárur. rædd, hafa menn haldið fram
einni ástæðu aðallega gegn því að hafa
skólana í bæjunum, nefnilega siðspilling-
unni, áhrifum slóða og slæpinga í bæjun-
um. En þessu hefir verið lítið skeytt.
Hér er rænuleysið í siðferðismálum á svo
háu stigi, alt efað, sem eigi verður komið
með beinharðar sannanir fyrir, og þekking-
arleysið á uppeldismálum svo gengdarlaust,
að kauptúnavinir hafa brosandi sannfært
menn uni, að Reykjavík, Hafnarfjörður og
Akureyri væru svo lítil og „saklaus“ enn,
væru nokkurskonar sveit og ekkert af þeim
að óttast. Þessi hlið málsins hefir áður
verið rakin í lýsingunni af ensku skólun-
um, og því ekki farið út í þá sálma í
þetta sinn. En þótt undarlegt sé, hefir
sama sem öllum komið sarnan um, að
það yrði þjóðinni ódýrast að hafa skólana
i bæjunum. Og þó er það einhver hin
mesta fjarstæða sem hugsast getur, eins og
nú skal sannað.
Kostnað- Þegar rætt er um kostnaðinn,
urinn. kemur tvent til greina: Fyrst
hvað landssjóður þarf að borga starfs-
mönnum við skólana, svo að þeir geti
komið sómasamlega fram, keypt nauðsyn-
legar bækur o. s. frv., og annað, hvað vanda-
menn námsfólksins þurfa að leggja til nauð-
synlegrar framfærslu þess, meðan það er
í skólunum. Eg vil sérstaklega bera sam-
an bændaskólann á Hvanneyri og Kenn-
araskólann. Það eru hvortveggja alþýðu-
skólar, báðir jafngamlir í þeirra núverandi
myndum, skólatíminn nær því jafnlangur
hvert ár o. fl, sem er sameiginlegt. En
það sem munar er það, að af því bænda-
skóli gat ekki vel verið í kaupstað, án
þess að verða broslegur, þá var hann
settur i sveit. En til að spara landinu fé,
var Kennaraskólinn settur Rvík. Þeir sem
efa þetta, ættu að lesa umræðurnar í þing-
tíðindunum.
Það mun mega telja, að námsfólkið í
þessum skólum dvelji 7 mánuði á skóla-
stöðvunum árlega, því að svo hagar venju-
lega til skipaferðum og atvinnu, að kenn-
araskólafólk er hér alt að mánuði lengur,
að jafnaði, heldur en það beinlínis þarf.
Sjö mánuðir á Hvanneyri kosta í fæði og
þjónustu um 125 kr. Annar kostnaður,
bækur og aðrar nauðsynjar, venjulega um
75 kr. eða vetrardvölin 200 kr., skóla-
vistin öll 400 kr. Fyrir þessu geta menn
hæglega unnið með sumarvinnunni, og
farið skuldlausir úr skólanum. Fyrir fæði