Skinfaxi - 01.06.1914, Page 5
SKINFAXI.
75
ur síns, lifa fyrir hann, og borga fyrir
hann, uns hver einasti eyrir af skuldinni
væri goldinn. Hann fer til ábyrgðarmann-
anna, fær að vita hve miklar skuldirnar
eru og hvernig þeim er háttað; byrjar
síðan á að fullnuma sig í járnsmíði og
hafði lokið því á ótrúlega stuttum tíma.
Því næst gerðist hann kyndari á gufu-
skipi, og sparar alt hvað hann má og
greiðir jafnótt ábyrgðarmönnunum. Járn-
smíðið og veran á sjónum voru þó ekki
endatakmörk, heldur vegir áleiðis, og fyrst
inn í véladeild stýrimannaskólans. Þang-
að fór nú pilturinn, vann með elju og orku
og fékk að loknu prófi allvel launað starf
sem vélastjóri á gufuskipi. En öll fóru
launin í eina átt, í skuldina. Svo leið
niánuður eftir mánuð; hvert hundraðið
fylgdi öðru. Um nýárið i vetur var skuld-
in greidd, bróðurins hefnt.
Þeir menn sem þannig breyta eru gim-
steinar mannfélagsins. I kyrþey og yfir-
lætisleysi vinna þeir stórvirki, sem enginn
tekur eftir, sem fáir vilja og engir geta
launað. Þeir spyrja ekki um, hvað lélt-
ast sé, ekki um bókstaf laga og lögmáls,
sem teygja má og toga í allar áttir eftir
óskum fariseans. Þeir spyrja um anda
siðgæðisins, og fylgja boðum hans, hve
erfið sem þau reynast. Fyrir slíka menn
þarf engin lög, ekkert ytra hegningarvald,
sýnilegt eða ósýnilegt. Siðgæðið býr í
þeim sjálfum, er ljós á þeirra vegum og
lampi þeirra fóta. Að eiga sem flesta
menn þannig skapi farna er mesta gæfa,
sem hlotnast getur nokkurri þjóð.
Erlingur Pálsson
sundkappi var í London síðari hluta
vetrar og er nú nýkominn heiin. Hefir
hann iðkað þar sund hjá hinum ágætustu
meisturum og fengið loflega viðurkenningu
i verðlaunum og skrifuðum skilríkjum.
Ilefir hann numið þai1 nýjar sundlistir, sem
eigi voru fyr iðkaðar hér.
Frá fjórðungsþingi Sunnlendinga.
Fulltrúarnir voru 36. I fráfarandi stjórn
voru: Jónas Jónsson, Guðm. Davíðsson
og Magnús Tómasson. I núverandi stjórn
kosnir: Jón Ivarsson, fj.stj., SigurðurLárus-
son ritari og Guðm. Kr. Guðmundsson
gjaldkeri.
Fjárlögin. Tekjur. 1. í sjóði 232,93.
Fjórðungsskattur (áætlaður) 455,00. 2.
Úr samb.sj. 400,00. AIls kr. 1087,93.
Gjöld: 1. Samb.skattur 195,00. 2. Kostn-
aður við þing og stjórn 60,00. 3. Til
íþrótta 200,00. 4. Til fyrirlestra 350,00.
5. Áætlað í sjóði 282,93. Alls 1087,93.
Tillögur og áskoranir samþ.
1. Áskorun til félaganna að koma upp
hlóm og trjáreitum við sem flest sveita-
heimili.
2. Að útbýta ókeypis trjáfræi til félag-
anna á kostnað fjórðungsins.
3. Að félögin beitist fyrir að vekja áhuga
og samúð með þjóðgarði á Þingvöllum.
4. Að U. M. F- vermdi fugla- og eggja-
friðunarlög siðasta þings, og sam-
bandsþing taki málið til umræðu.
5. Að fengin sé undanþága, hjá L S. L
fyrir U. M. F. að þeir geti tekið þátt
í íþróttamótinu þótt eigi séu þeir í
í. S. í.
6. Að sambandsþing leitist við að U. M. F.
í. geti gengið í í. S. I. í einni heild.
7. Að skifta megi Sunnlendingafjórðungi
í 3 héraðasambönd (1. Borgarfj. Mýr-
arsýslur, 2. Arnes og Rángárv. sýsl-
ur, 3. V. Skaftafelssýslu) þegar meiri
hluti félaganna á þessum svæðum ósk-
ar þess, og 3/6 hlutar félagsmanna
þar eru skiftingu fylgjandi. Tak-
markafélög hafi þó valfrelsi. Reykja-
vík, og félög í nánd við hana mynda
þá samband saman.
8. Að sambandsþing breyti svo sam-
handslögunum, að myndast geti hér-
aðssambönd úr hinum fjórðungunum.