Skinfaxi - 01.07.1914, Qupperneq 5
SKINFAXI
89
Nú er því einmitt svo farið, að eitl hið
mesta gagn sem ungir synir og dætur
ættjarðarinnar geta gert henni, er það að
manna sjálfa sig sem best og efla sem
mest andlegan og líkamlegan þroska sinn,
því að af því marga, sem heill og ham-
ingja fósturjarðarinnar er komin undir á
ókomnum tíma er líklega ekkert eins þýð-
ingarmikið og það, að börn hennar mann-
ist vel; verði sú aftur á móti reyndin á
að „úáran sé í fólkinu“, þá voíir sá mesti
háski yfir ættjörð vorri sem nokkurt land
getur komist í. En með því aðeflaþroska
vorn, eflum vér og aukum farsæld vora.
Sambandsþingið.
Það var haldið í Rvík, í Bárubúð uppi,
12—14 júní s. 1. Alls voru mættir 17
fulltrúar.
Ur Norðlendingafjórðungi 3:
Halldór Guðlaugsson, Hvammi.
Hólmgeir Þorsteinsson, Grund.
Þórhallur Bjarnarson, Akureyri.
Ur Vestfirðingafjórðungi 2:
Björn Guðmundsson, Núpi.
Jón Geir Jónsson, Isafirði.
Úr Sunnlendingafjórðungi 12:
Andrés Eyjólfsson, Síðumúla.
Árni Böðvarsson, Vogatungu.
Björn Björnsson, Grafarholti.
Guðm. Davíðsson, Rvik.
Guðrún Björnsdóttir, Grafarholti.
Inga Lára Lárusdóttir, Rvílc.
Jón Ivarsson, Rvík.
Jónas Jónsson, Rvík.
Kristján Albertsson. Rvík.
Páll Zophóníasson, Hvanneyri.
Pétur Eyvindsson, Grafarholti.
Viktoria Guðmundsdóttir, Gígjarhóli
Ur Austfirðingafjórðungi kom enginn.
Forseti var kosinn Þórhallur Bjarnar-
son.
Skrifarar voru kosnir:
Halldór Guðlaugsson
Jón Ivarsson.
Þetta gerðist helst á þinginu:
1. Sambandsstjóri gaf stutt en glöggt
yfirlit um ástæður og hag félaganna og
Iagði fram reikninga.
2. Lagabreytingar. Samþyktar ýms-
ar breytingar á sambandslögunum, og
samþ. viðaukalög.
3. „Þingið skorar á U. M. F. að taka
til rækilegrar umræðu nauðsyn innlendra
tryggingarsjóða: Líftryggingu, slysa, sjúk-
dóma, atvinnu og eldsvoðatryggingu.“
4. Fyrv. bankastj. Tryggva Gunnars-
syni sent svohljóðandi símskeyti: „Sam-
bandsþing U. M. F. í. færir yður hug-
heilar þakkir fyrir hina veglegu gjöf yðar,
skóglendið í Öndverðanesi“.
5. Þjóðgarðsmálið. „Sambandsþing-
ið lýsir því yfir að það sé hlynt þjóðgarðs-
stofnun á þingvölli við Öxará, og skorar
á sambandsstjórnina að Ieita álits alþingis-
manna á því, á hvern hátt þjóðgarði yrði
komið á fót á Þingvöllum. Jafnframt skor-
ar þingið á öll ungmennafélög að kynna
sér og öðrum þjóðgarðshugmyndina, og þar
sem þau koma því við að sjá svo um, að
málinu verði hreyft á þingmálafundum“.
5. Samþyktir sambandsreikningar í einu
hljóði, að lokinni athugun.
6. Þrastaskógur. Guðm. Davíðsson
lýsti nákvæmlega skóglendinu, staðháttum,
girðingunni, og því hvað þar lægi hendi
næst til framkvæmda.
7. íþróttamál. Þingið hafði fengið
mjög víða að áskoranir um að Ieita hóf-
anna við stjórn í. S. I., hvort ungmenna-
félögin gætu ekki gengið í Iþróttasamband-
ið öll í einu lagi, eða a. m. k. fjórðung-
arnir. Var þessa farið á leit við stjórn
í. S. I. méðan á þingi stóð, og svaraði
hún bréflega 15. júní svo sem hér segir:
„Stjórn í. S. í. lýsir því hér með yfir,
að hún heimiiar fjórðungum óg héruðum