Skinfaxi - 01.07.1914, Síða 11
SKINFAXI
95
2. Að þau sendi skriflegt loforð þess
sem sótt er fyrir (umsækjanda), um
að hann taki að sér íþróttakenslu
hjá sinu félagi þá er það vill, á næsta
vetri, að minsta kosti.
3. Að sá sem sendur er, hafi ekkert
annað starf á hendi hér í bænum
meðan námsskeiðið stendur yfir.
4. Áð umsókn sé komin til fjórðungs-
stjórnarinnar fyrir 1. september næstk.
Kent verður:
1. íslensk glíma
2. Sund
3. Hlaup (ýmiskonar)
4. Stökk
5. Köst —„—
6. Knattspyrna
7. Boglist
8. „Min aðferð“ (J. P. Muller).
Fjórðungurinn kostar kensluna og það
sem að henni lýtur.
Styrkur til þátttakenda mun verða ein-
hver, en ekki hægt að ákveða hann að
svo stöddu.
Umsóknir má senda Guðm. Kr. Guð-
mundssyni, Laugaveg 70.
Reykjavík 21. júni 1914.
Fjórðungsstj. Sunnlendingafj.
Námsskeiðið í haust.
Nú er iþróttakenslan að færast í það
horf, sem æskilegt má telja, að hvert ein-
asta ungmennafélag hafi sinn eigin íþrótta-
kennara, sem Ieiðbeint getur félagssyst-
kinum sinum, á öllum tímum árs, þegar
annir leyfa. En til að ala upp þessa
iþróttakennara verða haldin námsskeið á
ýmsum stöðum á landinu, og hið fyrsta
hér Rvík í okt. í vetur eins og auglýst
er i þessu blaði. Þessi stefna er svo að
segja fundin upp af ungm.félögum í öll-
um fjórðungum landsins. Reynsla allra
hefir bent í sömu átt. Einhver einn
íþróttamaður mun verða fengin til að vera
aðalstarfsmaður við öll námsskeiðin, og
siðar meir til að verða starfsmaður sam-
bandsins. En víðast hvar, a. m. k. í Rvík,
munu margir aðrir íþróttamenn hjálpa til
að gera námsskeiðin sem best og fjöl-
breyttust.
Sunnlendingatjórðungur veitir þátttak-
endum einhvern styrk, sem síðar mun
ákveðinn. En -óhætt mun að treysta a5
félögin muni styðja hvert sinn mann að
nokkru, þar sem búist er við, að þeir
vinni ókeypis fyrir félagssystkin sín, er
þeir koma heim aftur. 'Ef félögin hafa
ekki ráð á í eitt skifti fyrir öll að veita
10— 12 ,'kr. jtil íþrótta, hvert, þá er varla
um mikinn áhuga að ræða. Og ef sum
félög eru svo sett, að enginn félagsmaður
vill leggja á sig að dvelja i Rvík hálfo
mánaðartíma til að auka líkamsmentun
sína, jafnvel þó það kosti hann dálitið, þá
verður slíkum félögum og mönnum var\a
við hjálpað, síst með®auknum fjárgjöfum-
ITm þrastaskóg.
í þrastaskógi U. M. F. [í. standa tvö-
reynitré, fögur og tiguleg, mæna þau hátt
yfir birkikjarrið umhverfis. En sá ljóti og
leiðinlegi siður hefir átt sér stað undan-
farin ár, að ferðamenn, sem fyrir forvitn-
issakir hafa tekið á sig krók til þess að
skoða þau, haía um Ieið gert sig seka í
því að rista i börkinn fangamörk sín og
ártöl. Svo mikið hefir kveðið að
þessu, að nú eru trjábolirnir allir tálg-
aðir og útskornir hátt og lágt. Slík hugs-
unarlaus rælni hefir orðið til til þess að
óprýða og skemma trén. Sumir hafajafn-
vel brotið greinar af trjánum til þess að
svala skemdarfýsninni. Öll slík skemdar-
verk ætti að víta, og þeir sæta ábyrgð
fyrir, sem fremja. Flestir sem skoða trén
dást að fegurð þeirra, og ættu því ekki
að verða til þess að skemma þau svo að
þau glötuðu fegurðinni.