Skinfaxi - 01.07.1914, Síða 12
96
SKINFAXI
SKINFAXI
— mánaöarrit U. M. F. 1. — kemur útiReykjavlk
og kostar 2 kr. árgangurinn, erlendis 3 kr.
RITSTJÓRI :
Jóna8 Jónsson frú Hriflu.
Skóiavöröustig 35. Slmi 418.
Afgreiöslumaður:
Bjarni Þ. ilagnússon Skólavöróustig 6 B.
Ritnetnd:
Agúst Jósefsson, Guðbrondur Magnússon,
Tr. Þórhallsson.
bræður! Brjótum ísinn og greiðum götu
færeyskra bóka á Islandi! Hvert félag
ætti að kaupa eitt eintak af þessari bók,
til að byrja með. Hún kostar ekki nema
eina krónu. Pantanir má senda til Bóka-
verslunar Sigfúsar Eymundssonar í Rvík.
Kaupmannahöfn ”/4 T4.
Jón Dúason.
Heima og erlendis.
Um leið og öllum er hér með bannað
að skemma reynitrén, á nokkurn hátt,
eða birkikjarrið innan girðingarinnar, er
stranglega bannað að skjóta fugla eða
laka egg þeirra i Þrastaskógi. q q
J. H. 0. Djurhuus: Yrkingur.
Svo heitir færeysk ljóðabók ný út kom-
in 80 bls. I henni eru mörg kvæði og
velort; allur frágangur er hinn besti. Rit-
mál Færeyinga er svo líkt íslensku, að
það veldur engri fyrirstöðu í lestri.
Höf. þessi er mörgum Islendingum að
góðu kunnur og er bæði það, og gildi
Ijóðanna meðmæli með bókinni. En fleira
kemur til greina. Bókin er framlag til
þeirrar baráttu, sem Færeyingar, nánustu
frændur okkar, heyja fyrir þjóðerni sínu.
Þeir hafa ekki erft slíkan auð sem bók-
mentir okkar eru, og við mikið ofurefli
eiga þeir að etja, allar aíleiðingar innlim-
unarinnar dönsku. Bókaútgáfa er þeim
erfið vegna fámennis, en úr því gætum
við bætt til muna með því að kaupa góðar
færeyskar bækur. I þessu efni ber ung-
mennafélögum að ganga á undan. Okkur
hefir helst tii lengi gleymst að rækja frænd-
semi við Færeyinga. Þeir kaupa og lesa
mest erlendra manna íslensk blöð og bæk-
ur, og verður Færeyingum eigi sá greiði
hetur goldinn, en í sömu mynd. Félags-
Fuglafriðun.
Fram á síðasta mannsaldur voru engir
fuglar friðaðir hér nema æðarfuglinn (frá
því um 1800). En í öðrum löndum vaki>-
aði fyr áhugiað fluglarnir væru til yndis og
ánægju, svo áð þar voru drápgirndinni
sett nokkur takmörk með lögum, friðaðar
flestar tegundir og egg þeirra. En nú eru
margir menn svo gerðir, að þeim þykir
mikið varið í að eiga eggjasöfn, þótt eigi
séu þau í þaríir fræða eða vísinda. Hafa
þessir eggjaránsmenn streymt hingað á
seinustu árum, því að hér í skeytingar-
leysinu var þeim fyrirheitið land. Ferðast
kauphéðnar þessir nú um á vorin, snap-
andi og sm'kjandi um egg, og mest þeirra
fugla sem sjaldgæfastir eru (arnar, fálka,
þórshana o. s. frv.). I hugsunarleysi verða
mörg börn og unglingar til að styðja þessa
útlendu ránsmenn, sem eru að gera Iaud-
ið okkar fátækara og fáskrúðugra, ein-
göngu til að fullnægja safngræðgi erlendra
sérgæðinga. Síðasta alþingi endurbætti
friðunarlögin að mun og friðaði m. a.
egg um 20 tegunda. Þessi lög verða birt
í heild sinni síðar hér í blaðinu, því að
engir munu hafa betri vilja til að vernda
þau en umgm. félagar.
Kenslubækur.
Arni Pálsson sagnfræðingur hefir fyrir
skömmu í tveim alþýðufyrirlestrum vakið
máls á því, sem hann hefir talið veruleg-