Skinfaxi - 01.11.1915, Síða 8
128
SKINFAXI.
SKINFAXI.
Mánaðarrit U. M. F. í.
Yerð: 2 krónar.
Ritstjóri: Jónas Jónsson, Skólavörðustíg 35.
Sími 418.
Afgreiðslumaður: Etjill GuUormsson.
Skólavörðustíg 16. Sími 144.
Iiafa efni á að hafa húsið verulega mynd-
arlegt.
Afturelding
í Mosfellssveit vinnur nú að því að koma
sér upp verulega góðri sundlaug og verð-
ur hún nokkuð dýr. Þar i sveitinni er all-
mikið um heitar uppsprettur og því gott
að æfa sund, ef náttúruskilyrðin eru not-
uð réttilega. Er því þetta verkefni félags-
ins hið lofsverðasta í alla staði.
Yámsskeið á Akureyri.
Svo fór sem vænst var eftir, að Norð-
lendingar fengu einn hinn besta íþrótta-
mann úr höfuðstaðnum til að fara norður
og halda námsskeið fyrir jólin. Þessi mað-
ur er ólafur Sveinsson prentari. Hann
er áður kunnur Iesendum Skinfaxa vegna
greina sinna um íþróttir. Hefir hann stund-
nð íþróttir um mörg ár með mestu elju
og nákvæmni og er i einu manna best að
sér í ýmsum úti-íþróttum, einkum köstum
og stökkum, og mjög bókfróður um íþrótta-
framfarir erlendis.
Fyrir austan.
Á Austurlandi eru ungm.fél. mjög fá
onnþá, en aðstaðan fyrir tilvonandi héraðs-
samband er prýðileg. Alt Austurland get-
ur tekið höudum saman við Lagarfljóts-
hrú: Héraðið, Jökuldalurinn og firðirnir.
Staðurinn yndislegur og greiðar samgöng-
ur úr tveimur sýslum.
Frá félagsmönnum,
Ársæll Árnason
bókbindari brá sér til Svíþjóðar í haust
til að kaupa sér áhöld í hina nýju vinnu-
stofu er hann setur á stofn. Ársæll hefir fram-
ast mjög erlendis svo sem áður hefir verið
frá sagt hér í blaðinu. Má óhætt treysta
því að vinnustofa hans verði í allra besta
lagi.
Björn Þórliallsson
í Laufási fer til Noregs í vetur. Búist við
að hann dvelji árlangt a. m. k. Fyrst
verður hann í Ási, rétt hjá Kristjaniu.
Þar er landbúnaðarháskóli Norðmanna.
Jón Kjartansson
kennari úr Önundarfirði er nú á fyrir-
lestraferð um Skaftafellssýslu og heldur
síðan áfram í sömu erindum til allra sam-
bandsfélaga austanfjalls. Jón er að vísu
ungur maður en þó reyndur að miklum
áhuga og dugnaði í starfsemi fyrir ung-
mennafélögin. Má vænta hins besta árang-
urs af för hans.
Rikarður Jónssou
myndhöggvari er nú í þann veginn að
ljúka við brjóstmynd af Tryggva Gunnars-
syni. Verður sú mynd síðar í vetur sett
á stöpul á einhverjum fallegum stað í
bænum. Myndin er afbragðs vel gerð svo
sem vænta mátti. Má það vera okkur
ungmennafélögum til óblandinnar ánægju
að einn úr okkar hóp hefir gert Tryggva
ódauðlegan í málmi, þvi að Tryggvi er
okkar mesti velgerðamaður og með allra
mestu framfaramönnum, sem þetta land
hefir átt.
Ritstjóri: Jónas Jónsson frá Hriflu.
Félagsprentsmiðjan